Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1913, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.07.1913, Blaðsíða 3
I3i (á bls. 230), að setja axarskaft þetta í prentvilluskrána og ganga þar frá því með svo hljóðandi ummælum: „Kristr spurði þó sjálfr“ : [Hvað er sJ] les: „Kristi varð þó sjálfum svarafátt, er liann var spurðr:“ [Hvað er s.!]. Með þessu er gráu bœtt ofaná svart. Hyggindin mestu og heimskan mesta. ,„Hverjum, sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, honum má líkja við heimskan mann.“ — Matt. 7, 26. I. Til er það, sem nefnt er skynsemis-trú. Og til eru þeir menn, er kalla sig skynsemis-trúar-menn, og enn fleiri, sem í raun og veru heyra sama mannflokknum til, þótt ekki nefni þeir sig svo sjálfir, — fyrir þá sök að þeir telja sér trú um, einsog hinir, sem opinberlega nefna sig svo, að þeir trúi engu öðru en því, er þeir fullkomlega fá samrímt við skynsemi sína. Því skynsemis-trú—eða það, sem svo nefnist, — er sú ímyndan þess eða þess manns, að liann hafi ekkert annað fyrir satt en það, sem liann til íulls getr gjört sér grein fyrir frá sjónarmiði eiginnar skynsemi. Mennirnir, sem hér er um að rœða, segjast engu trúa og engu mega trúa öðru en því, sem þeir geti skilið. Að trúa öðru sé heimskuleg hjátrú, ósamboðin ver- um skynsemi gœddum. Skynsemin sé œðsta og í rauninni eina þekkingar-ljósið, sem til sé fyrir manninn; og fari maðr að ímynda sér, að til sé eitthvert annað og meira Ijós, þá sé það herfileg missýning. Fyrir utan svæði það, sem ljós skynseminnar nær út-yfir, sé 0g hljóti ætíð fyrir mannlega vitund að vera tómt myrkr. Og ef einhverjum sýnist þar vera ljós, eða lionum finnst hann sjái þar eitt- hvað, þá sé slíkt rétt einsog mýraljósið í náttúrunni. Ferðamaðr kemr á það auga í náttmyrkri, telr víst, að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.