Sameiningin - 01.07.1913, Qupperneq 6
134
ekki til, lieldr sé það tómt tál. Hlœgileg lieimska, en þó
öllu fremr grátleg heimska; grátlegasta heimskan, sem
til er.
II.
Jesús talar um mann, sem heyrir hoðskap hans og
breytir eftir lionum; þeim manni, segir hann, má líkja við
hygginn mann, er byggði hús sitt á bjargi; þótt steypi-
regn kœmi og vatnsflóð, og þótt stormar blési og skylli á
því liúsi, þá var því óliætt—af því að það var grundvallað
á bjargi. 1 annan stað talar hann um mann, sem heyrir
orð hans, en breytir ekki eftir þeim, og segir, að þeim
manni sé að líkja við heimskingja, þann er byggði hús sitt
á sandi; steypiregn kom og vatnsflóð, og stormar blésu og
skullu á húsi því; það féll og fall þess var mikið.
Svona endar fjallrœðan, víðtœkasta og djúpsettasta
siðalærdóms-prédikan, sem flutt liefir verið liér í heimi.
Næst á undan niðrlagsorðunum er þetta: „Farið frá
mér þér, sem ranglæti fremjið.“ Það ei’U dómsorð drott-
ins yfir öllum fals-kristindómi, allri trú á Jesúm Krist,
sem ekki er annað en dauðr bókstafr; eilífðardómr drott-
ins yfir lýð ranglætisins Og er það skýrt bergmál af
dómi þeim, sem sérhver maðr með glaðvakandi samvizku
kveðr upp yfir sjálfum sér, svo framarlega sem hann fæst
ekki til að láta kristindóminn verða lijá sér að helganda
og upplyftanda lífsafli. Svo lengi sem samvizkan er í
lagi, heilbrigð, vakandi, segir liún hverjum manni, að
kenning kristindómsins sé sannleikr. Og hún segir manni
það allt eins fyrir því, þótt boðskapr sá í mörgum greinum
liggi fyrir utan endimörk skynseminnar. Yantrúin segir
það sé skynsemi að afneita undrum þeim hinum yfirnátt-
úrlegu og óskiljanlegu, sem frá er sagt í guðs orði; en
Jesús Kristr segir það sé lieimska. Yantrúin telr það
heimsku að aðliyllast kristindóminn, fyrir þá sök að hann
verði ekki samrímdr skynseminni; en Jesús talar um það
sem vizku eða hyggindi að aðliyllast kenning hans af-
dráttarlaust og a.f öllu hjarta, þótt liann vel viti, einsog
hann líka tekr skýrt fram, að þau sannindi eru hulin spek-
ingTim og vitrum mönnum—liggja með öðrum orðum fyrir