Sameiningin - 01.07.1913, Síða 8
136
grein að efni til úr einni spádómsbókinni í gamla testa-
mentinn (Esaj. 29, 14): „Vizku vitringanna mun eg
eyða, og skynsemi hinna skynsömu mun eg að engu gjöra“
(1. Kor. 1, 19). Það er guð sjálfr, sem þar hefir orðið.
Hann lieitir því þar, að liann skuli gjöra skynsemis-trúna
að beimsku, 0g hann hefir haldið orð sitt. Skynsemis-
trúin er með Jesú Kristi orðin að heimsku.
III.
Hvernig rökstyðr nú Jesús þann dóm sinn, að það sé
lieimska að hleypa ekki boðskap hans inn-í líf sitt? Það
gjörir hann meðal annars með þessum orðum: „Og
steypiregn kom ofan, og vatnsflóð komu, og stormar
blésu, 0g skullu á því húsi, og það féll, og fall þess var mik-
ið.“ Flestir skilja víst, hvað Jesús á við, er hann nefnir
steypiregn, vatnsflóð og storma: Mótlætis-áföllin, sem
mannlegt líf verðr hér fyrir. En í líkingarmáli því, sem
nú er um að rœða, felst meira: Það allt, sem brjóta vill
manninn niðr andlega 0g í einliverjum skilningi gjöra út-
af við liann. Og vitanlegt er öllum, að í meðlætinu mœta
mönnum einatt þær freistingar, er ógna því, sem bezt er
og' göfugast í manns-sálinni, með dauða. Það blasir skýrt
við í einni af dœmisögum frelsarans. Akr ríkismanns
nokkurs hafði borið mikinn ávöxt; þá liugsaði maðrinn
með sjálfum sér: Hvað á eg nú að gjöra ?—því eg hefi
ekki rúm fyrir afurðir mínar. En svo datt honum þetta í
liug: að rífa hlöður sínar og byggja aðrar stœrri;—þang-
að skyldi hann safna hinum vaxandi auðœfum. Við sálu
sína hyggst hann þá munu segja: „Þú liefir mikil auðœfi,
geymd til margra ára; hvíl þig nú, et og drekk og vert
glöð.‘ ‘ En guð sagði við hann: „Heimskingi! á þessarri
nóttu verðr sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það,
sem þú hefir aflað?“ „Et og drelík og vert glöð“—þau
orð úr samtali mannsins við eigin sál sína benda á, að
hann hafi látið meðlætið eða hina jarðnesku velgengni
brenna burt úr innra manni sínum allt hið göfugasta og
bezta. Hagsældin jarðneska virðist hafa gjört út-af við
mann þennan. Hver sá, er sökkt hefir sér niðr í fjárgróða,
jarðneska lífsnautn eða jarðneska áliyggju, er á leið með
að fremja andlegt sjálfsmorð, ef hann hefir ekki þegar