Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1913, Qupperneq 28

Sameiningin - 01.07.1913, Qupperneq 28
156 -uSrinn er 16 ára gamall. Nálega allir byggSarmenn eru í söfnuðinum. Ekki hefir söfnuðrinn fastan prest, en hann hefir notiS nokkurrar þjónustu frá prestunum, sem þjónað hafa söfnuSum vorum í Pembina County. Kirkju hefir söfnuSrinn ekki reist enn sem komiS er, en 'hefir kirkjubygging nú í huga. Samkomuhús myndarlegt er í byggS- inni. Þar heldr söfnuSrinn guSsþjónustur sínar. Þótt sjaldan sé „messaS“, þá kemr þó söfnuSrinn engu aS síSr saman til guSsþjónustu á helgum dögum, og eru þá lesnir „húslestrar“ í samkomuhúsinu, Sunnudagsskóla er haldiS uppi mikinn part árs hvern sunnudag, og er ’kennt á 3—4 stöSum í byggSinni, svo sem hentugast sé fyrir börnin aS sœkja. Bindindis-samtök hafa byggSarmenn öflug og hafa aS mestu útrýmt allri vínnautn. FriSr og einingar-andi einkenna safnaSarlífiS og sambúS manna. Kirkjufélagi voru er söfnuSr þessi einlægr og trúr. Sundrungar-öflin hafa ekki fengiS aS komast þar aS, og ekkert •erindi eiga sundrungar-mennirnir í Melanktons-söfnuS. Eg hefi ekki getaS komiS því viS aS heimscekja Melanktons- söfnuS fyrr en nú í lok Júní-mánaSar. Fyrir sterka áskoran manna þaSan aS vestan, sem staddir voru á kirkjuþinginu aS Mountain, fór •eg þangaS meS þeim þegar er þingi var slitiS. f förina slógust þeir einnig séra Kristinn K. Ólafsson og hr. Bjarni Jones frá Minneota. ViS áttum ágæta komu í byggSina. Fimmtudaginn 26. Júní var hátíSis- dagr í nýlendunni. Þá komu nærri því allir byggSarmenn saman í samkomuhúsi sínu. Þann dag var 25 ára hjúskapar-afmæli byggSar- höfSingjans GuSmundar Freemann’s og konu hans, og var þess minnzt á hátíSlegan hátt og þeim heiSrshjónum rnikill sómi sýndr. Á sam- komunni fór fyrst fram guSsþjónusta, er viS prestarnir stýrSum, og á- varpaSi eg þá söfnuSinn í nafni kirkjufélagsins. Þá tók viS stjórn- inni hinn vaski safnaSar-forseti, hr. Stefán Einarsson, og stýrSi sam- komunni meS rausn mikilli. Voru þar bornar fram ríkmannlegar veitingar og fluttar margar rœSur. TöluSu þar auk vor aSkomumann- anna þriggja og safnaSar-formannsins, þeir hr. Ásmundr Benson, lög- frœSanemi, og hr. SigurSr Jónsson, hinn sögufróSi maSr. GleSiefni mikiS var mér sú hin hlýja velvild í garS kirkjufélagsins, sem kom í ljós á samkomunni. Kirkjufélaginu má sannarlega þykja vænt um þennan söfnuS sinn viS Mouse River. Sjálfr þakka eg brœSrunum þar hjartanlega fyrir viStökurnar á dögunum. Drottinn blessi Melanktons-söfnuS og farsæli framtíS hans. B. B. J. Sigrveig horláksdóttir, kona Ágústs Árnasonar, aS Hóla-pósthúsi, Sask., frá GarSi í ÞitilfirSi, 42 ára, dó 9. Maí siSastl. — GuSlaug hor- geirsdóttir, kona 70 ára gömul, ættuS af SuSrlandi, dó aS Kristnesi 8. Maí. — Friðjón Backmann, 34. ára, ættaSr úr Dalasýslu á íslandi, dó á •spítala í Saskatoon, Sask.; lætr eftir sig ekkju og sex börn (í. 28. Ágúst 1879J. Haraldr Sigmar.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.