Sameiningin - 01.07.1913, Side 32
ióo
aS ráSi sínu einsog Múhameðsmenn, sem vildu neyða kóraninum upp-á
oss, heldr koma þeir með hana og segja: Þessi bók hefir mannað
oss; takið við henni og lofið henni að manna yðr. Það er sannfœr-
ing mín, að hvernig sem vér lítum á biblíu kristinna manna og hvernig
sem vér kunnum að amast við henni, þá verði það samt hún, sem fyrr
eða síðar kemr til leiðar endrfœðing lands vors.“
Beztu og vitrustu menn Aústrlanda-þjóSa finna til þess, hvílíkt
blessunar-afl kristindómrinn er fyrir þjóðlífiS. Honum hefir tekizt
að vekja til starfs og framsóknar þjóðir, sem öldum saman að kalla
má hafa sofiö og staðið í staS. Hvílík hvöt fyrir oss að nota sem bezt
ljósiö, sem guS hefir gefiS oss! Og hvílík hvöt til að leggja einhvern
skerf til þess, aS ljós fagnaöarerindisins komist sem fyrst til þeirra,
sem enn eru í myrkrinu !
Gaman.
Einkennileg meðmœli. — GarSyrkjumaSr stal ávöxtum og kálmeti
úr garöinum, sem hann átti aS hiröa um, svo að húsbóndi hans sá sér
ekki annaS fœrt en aS segja honum upp vistinni. En hann kenndi í
brjósti um konu og börn þessa ófróma vinnumanns síns, og gaf honum
svo hljóSandi meSmæli: „HérmeS vottast, að N. N. hefir verið garð-
yrkjumaSr minn síSastliSin tvö ár og aS hann hefir haft meira upp-úr
garöi mínum en nokkur annar garSyrkjumaSr, sem hjá mér hefir
unnið-“
Besta ráðið. — Kennari er aS spyrja börnin, hvort þau viti,
hvernig bezt sé aS geyma mjólk, þegar hiti er á sumrin, svo aS hún
súrni ekki.—Lítil stúlka réttir upp höndina. — Kennarinn: „Seg þú
mér það þá, Anna mín !“ — Anna litla: ,Þaö er bezt aS geyma hana
í kúnni.“
„EIMREISIJf“, eitt fjölbreyttasta íslenzka tímaritiÖ. Kemr út í
Kaupmannahöfn. Ritstjóri dr. Valtýr Guðmundsson. 3 hefti á. ári,
hvert 40 ct. Fæst hjá H. S. Bardal i Winnipeg, Jónasl S. Bergmann á
GarSar o. fl.
"BJARMI“, kristilegt heimilisblaö, kemr út I Reykjavík tvisvar á
mánuði. Ritstjóri Bjarni Jónsson. Kostar hér í álfu 75 ct. árgangr-
inn. Fæst i bðkabúð H. S. Bardals í Winnipeg.
„XÝTT KIRIvJUIiLAÐ", hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristi-
lega menning, 18 arkir 4 ári, kemr út í Reykjavík undir ritstjórn hr.
pórhalls Bjarnarsonar, biskups. Kostar hér I álfu 75 ct. Fæst í bóka-
verzlan hr. H. S. Bardals hér í Winnipeg.
„SAMEININGIJí" kemr út mánaðarlega. Hvert númer tvær arkir
heilar. Verö einn dollar um áriö. Skrifstofa 118 Emily St., Winnipeg,
Canada. — Hr. Jón J. Vopni er féhiröir og ráösmaör ,,Sam.“.—Addr.:
Sameining'in, P.O. Box 3144, Winnipeg, Man.