Sameiningin - 01.10.1913, Síða 25
249
réttar’, sem svo er nefndr; þaö er sérstakr dómstóll í ríkiskirkju
Dana, sem dœma á í málum út-af brotum kirkjulegra embættismanna.
Dómi prófasts-réttar má skjóta til œöra dómstóls, sem í eru biskup
og stiftamtmaör; og síðast getr í slíkum málum oröiö dœmt af hæsta
rétti ríkisins. Getr maör meö öðrum eins trúarskoöunum og þeim, er
fram hafa komiö hjá Rasmussen, þjónaö prestsembætti í þjóðkirkj-
unni dönsku? Úr þvi eiga nú eftir þessu dómstólarnir að skera.
Meöan fullnaöardómr hefir ekki verið kveöinn upp i máli Rasmus-
sens, getr stjórnin ekki veitt honum annað prestsembætti, og veröi
hann fundinn sekr um þaö, sem á hann er borið, verðr honum að
sjálfsögöu aö fullu og öllu vikið úr embætti.
Á málrekstrinum getr sennilega lengi staðiö.
Ef til vill veröa aðfarir þessar í Danmörk brœðrum voruin á ís-
landi, þeim er mest ‘dependera’ af Dönum, bending til góðs.
Kandídat Sigrbjörn Ástv. Gíslason hefir sent út boðsbréf um
hugvekjusafn, sem hið bráðasta á að koma út í Reykjavik. Alls
121 hugvekja. Langmest í bókinni, sem á að verða 230 bls. að stœrö,
þýtt úr dönskum, norskum og sœnskum guðsorða-bókum, er mikiö
þykir í varið. Örfáar hugvekjur sagöar frumsamdar á ísl., af ó-
nefndum höfundi. Góðu bandi lofaö á bókinni og verð á ísl. ákveðið
2 kr. 50 a. — Með riti þessu vill hr. S. Á. -G. reyna til að reisa við
hnignandi heimilis-guðrœkni hjá löndum sínum, og verðskuldar þökk
allra góðra manna. Bókin er nefnd „Góðar stundir“, og gefr hr. Pétr
Halldórsson, bóksali, hana út.
1 Ágúst-mánuði létust hér í Winnipeg tvær íslenzkar konur roskn-
ar, báðar ekkjur: Halldóra Brandsdóttir Vigfússon hinn 15., hálf-sjö-
tug, og Jóhanna Bjarnadóttir Thorstcinsson, um sjötugt. Fráfalls.
þeirra átti að verða minnzt í síðasta blaði.—Látinn er og Jakob Odds-
son í Lundi norðr frá Gimli í Nýja íslandi, hálf-nírœðr, hinn 8. þ. m.
Kom hingað til lands frá Húsavík í Þingeyjarsýslu árið 1884.
Siginundr Jónatansson. — Hann lézt skyndilega af hjartaslagi
sunnudagskvöldið 14. Sept. á heimili sínu í Minneota, Minn. Var
fœddr að Hofi í Flateyjardal í Þingeyjarsýslu á fslandi 17. Ágúst
1837 °g á þeiin stöðvum uppalinn. Hann var kvæntr Hólmfríði
Magnúsdóttur frá Sandi í Þingeyjarsýslu. Hún lifir mann sinn.
Þau bjuggu í Köldukinn og á Vatnsnesi fyrstu árin. Um nokkur ár
var Sigmundr Jónatansson gestgjafi á Húsavík, en löngum stundaði
hann sjóróðra, var formaðr og hinn mesti sjóvíkingr. Árið 1873
fluttust þau hjón vestr um haf og settust þá fyrst að í Wisconsin-ríki.
Árið 1876 komu þau til Lyon Co. í Minnesota og reistu bú. Þar
bjuggu þau rneir en 30 ár, og var bú þeirra og heimili með mestu
rausn og ríkmannlegt. Síðustu árin áttu þau hjónin heimili í bœnum
Minneota. Til íslands ferðaðist Sigmundr heitinn fyrir nokkrum
árum og hélt til dauðadags tryggð við ættlandið. l'vö börn þeirra