Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1913, Síða 27

Sameiningin - 01.10.1913, Síða 27
251 19. Vegna manna mann og gu?S mildan lofi sœtlega sérhver tunga sanntrúu'S, sjálfra vegna mannanna. Á síðastliðnutn vetri fékk ritstjóri „Sam.“ línur frá húsfrú Vil- 'borgu Jónsdóttur á Unalandi viö íslendingafljót, ekkju Eyjólfs heit- ins Magnússonar, með útklippu úr jólablaði „Lögbergs“ næsta á und- •an, er á voru prentuð ljóðin, sem þar nefnast Manndómsvísur Jesú Krists. Mælist hún til, að ljóð þau birtist endrprentuð í „Sam.“, segir sér þyki sérstaklega vænt um kvæðið frá þvi er hún nam það kornung af rnóður sinni, og telr líklegt, að það geti oröið til uppvakn- ingar einhverjum, er blað þetta les. Einu erindi, sem vantaði í „Lög- bergs“-útgáfuna, bœtir hún við. Ritstjóra „Sam.“, sem kannaðist ofr lítið við kvæðið frá því er hann var í œsku, þótti kvæðið vel þess vert, að þvi væri enn á loft 'haldið. En vér vildum ekki endrprenta það hér fyrr en vér gætum J>á um leið frœtt lesendr blaðs vors um uppruna þess. í því skyni leituðum vér upplýsinga til þeirra manna á Islandi, sem líklegastir ’þóttu til að veita fullnœgjandi úrlausn. Ritstjóri „Bjarma“, hr. Bjarni Jónsson, hjálpaði i því efni upp-á ■oss, og kunnum vér honum beztu þökk fyrir. Hann sendi oss með bréfi frá 12. Júlí í sumar vandað eftirrit af kvæðinu, sem hann sjálfr hafði tekið, og er sumt þar augsýnilega réttara en í endrprentan þeirri. er birtist í „Lögbergs“-blaðinu. 1 bréfi vinar vors stendr þætta: „Eg var orðinn vonlaus urn, að eg myndi nokkurn tíma geta út- vegað yðr þessar vísur. En í dag rakst eg á gamlan mann, sem átti nokkur blöð úr gamalli ljóðabók, líklega frá 1773, prentaðri á Hólum. Hafði þar verið á Diarium Hallgríms prests Pétrssonar, að ætlan bans, en eftir var: ‘Maríu-æfi eða lífssaga helgustu guðs móður’ i ljóðum og þessar vísur.*J (Varð eg þá fegnari en frá megi segja, því-að þá eru vísurnar áreiðanlega réttar, prentaðar að höfundinum 'lifandi. Á Landsbókasafninu finnst þessi útgáfa ekki. „Guð vill, að vísuraar lifi —hugsaði eg. „Gunnlaugr prestr Jhöfundr ljóðannaj var sonr Snorra prests að Helgafelli, sem þessi vísa er um kveðin: „Það er ekki lítið lán að ljóma’ í skarlats-hökli og vera fœddr alls þó án undir Snæfellsjökli. „Séra Gunnlaugr þótti lærðr á sinni tíð og einkar málfróðr, hinn nákvæinasti læknir og leikinn að skrifa og teikna. Auk Fœðingar- *) Bók sú, sem hér er átt vit>, mun vera nr. 85 i bókaskrá þeirri, er Willard Fiske prófessor birti í Bibliograplíical Notices frá 188 9. 1 kveri því er—eftir þvf, sem þar stendr—ekki Diarium Hallgrims Pétrs- sonar, heldr Diarium Jóns prests Vigfússonar, sem dó ungr áriS 1707, en kveri'S prentað í Hrappsey 1783. Ritst.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.