Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1915, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.06.1915, Blaðsíða 11
107 síðasta píningarsálms, og er eg leit til öldungsins—var hann liðið lík. — Hálf öld er nú senn, hvað líður, síðan liðin, og margar byltingar liafa síðan orðið í liugsunum mínum og skoðunum. Eg hefi verið trúaður og vantrúað, kaþ- ólskur og prótestanti, únítari og nýguðfræðingur, kynt- mér allskonar “isma.” eða heimspeki, en hjarta mitt hef- ir aldrei glevmt sálmum Hallgr. Péturssonar. Það er líka mín lífsskoðun, að þjóðirnar eldist seint frá fórnar- trúnni; öll trúarbrögð, sem lýst liafa voru kyni, og allir sorgarleikir eldri og nýrri, liafa kent liið sama. Án æðri hjálpar og friðþægingar verður lífsgátan ekki leyst eða ráðin. (foetlie lætur Faust deyja í himneskum söng. Sama hefir vort bezta skáld og spekingur gert; hann hefir kent oss að deyja í himneskum söng—söng, sem ekki má fyrnast meðan málið ekki deyr.—N. Khl. Kletturinn. Prédikun út af Bs.. 51, 1, flutt á trínitatis 1915 í Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg, viS uppsögn Jóns Bjarnasonar skóla. Eftir sera Rúnólf Marteinsson. Fimtudaginn 13. Sept. 1759, stóð ungur hershöfð- ingi fyrir framan snarbratta, klettótta hæð, en liæðin var norðurbakkinn á St. Lawrenee fljótinu, skamt fyrir vestan borgina Quebee. Hann var foringi enska hers- ins á þeim stöðvum, en geigvænlegur ófriður stóð þá milli Engla og Frakka. Hershöfðingi þessi, James Wolfe, hafði verið sendur til að taka Quebec, sterkasta vígið í Norður-Ameríku, herskildi. Hann hafði þegar barist við Frakka og beðið ósigur. Og nú voru Frakkar uppi á klettinum, en hann fyrir neðan. Sjálfur hafði hann legið veikur, var enn sárlasinn og var jafnvel von- daufur um bata. Engin furða þótt honum ekki litist á, er liann horfði upp hæðina, enda hafði hann orð á því við einn félaga sinna. Jafnvel þótt liann og allur herinn kæmust upp, var hættan skelfileg. Franskur her, stærri en hans eigin, var innan borgarhliða Quebec og annar

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.