Sameiningin - 01.06.1915, Qupperneq 27
123
Það var fyrir mörgum árum síöan, í fátækt og frumbýlingsskap
Islendinga í þessarri borg, atS þér stofnuöuð félag vort- Viö marga
öröugleika var þá að stríöa. sem hinar yngri félagskonur þekkja
ekki nema aö nijög litlu leyti, þó fáeinar hafi meö yöur unniö alt
frá byrjun. Frá lítilli og fátæklegri byrjun hefir félagiö v'axiö og
þroskast undir leiðsögn og forystu yöar. Oss er fyllilega ljóst, aö
yður er að langmestu leyti að þakka sá þroski, sem félagið hefir
náö, og það traust, sem þaö nú nýtur, og einnig flest það góða, sem.
því hefir auðnast aö láta af sér leiða.
Þrek yðar og staöfesta hefir verið styrkur félagsins þessi
mörgu ár, sem þér hafið stjórnað því, og trú yðar, sterk og hrein og
einlæg, hefir umfram alt verið þess leiðarljós.
Vér vonum, að félag vort víki aldrei af þeim vegi, sem þér
hafið vísað því og leitt það eftir.
Vér þökkum yöur hjartanlega fyrir leiösögnina og samvinnuna
alla, fyrir öll yðar viturlegu og hollu ráð; fyrir þrekið og Vilja-
kraftinn í baráttunni; en bezt af öllu þökkum vér fyrir trúarstyrk-
inn, sem þér hafið veitt oss með yðar eigin óbifanlegu trúarvissu á
sannleiksgildi kristindómsins og á sigursæld hins góða málefnis.
Ávarpi þessu fylgir lítil gjöf, sem vér biðjum yður að þiggja
og vonum, að hún megi verða yður til gagns í hinni löngu ferð,
sem fyrir yður liggur.
Vér kveðjum yður svo og óskum yður góðrar og ánægjulegrar
ferðar. Verið vissar um, að kærleikur vor, veikur og ófullkominrb
að vísu, en einlægur, fylgir yður, og vér biðjum algóðan Guð að
leiða yður aftur farsællega heim til vor. Vér vonum, að mega enn
njóta margra ánægjustunda með yður..
Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg.”
KIRKJULEGAR FRÉTTIR.
Deild þessa annast séra Kristinn K. ólafsson.
Fyrir 50 árum voru að eins 10 kristniboðar í Japan. Nú eru
þar 900 trúboðar. Tala kristinna manna þar nú er 189,000. Eru
þar 1,600 sunnudagsskólar með 100,000 nemendum.
í Valley City í Norður-Dakota er kennaraskóli ('Normal SchoolJ
og sækja hann um 600 nemendur. Af þeim tilheyrir hér um bil
helmingurinn lútersku kirkjunni. Hefir þar verið nýlega stofnað fé-
lag lúterskra námsmanna, og var eitt af þvl fyrsta, er það gerði, að
sjá um, að blaðið Lutheran Survey kæmist í lestrarstofu skólans.
Áður höfðu engir kirkjuflokkar, nema kaþólskir og Christian Scient-
ists, sýnt framkvæmd í að koma blöðum sínum þar að.