Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1915, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.06.1915, Blaðsíða 15
111 snýst í, sem teknr bnrt alla alvöru úr lífinu og gerir það að auðvirðilegum léttúðar-dansleik. Sumir heiðingjar á fyrri dögum komust í goðadýrk- un sinni stundum í æsingar-ástand, svo að þeir dönsuðu, grenjuðu, rispuðu sig með lmífuru. Þessi tryllingur á sér enn stað meðal sumra heiðingjanna, og hlýtur að sjálfsögðu að útiloka skynsamlega athugun, því hún er ómöguleg án stillingar. Eflaust er til stilling af þeirri sauðarlegu deyfðar- tegund, sem ekki leiðir af sér mikinn skilningsþroska; en þótt stilling sé til án skilningsþroska, er það víst, að skilningsþroski er ekki til án stillingar. Franskur læknir, sem var rétt að hyrja á uppskurði, sagði við aðstoðarmenn sína: ‘ ‘ Flýtið yðar ekki, lierr- ar mínir, því nú má engum tíma tapa.” Hann sá, að stillingin var skilyrði fyrir nálrvæmri athngun, ekki síð- ur en sterknm taugum. Lítið á hellubjargið, sem þér eruð af höggnir. Hellubjargið er Guð, hinn eilífi, þríeini Guð; sá, sem hefir opinberað sig sem Guð í náttúrunni, samvizkunni, í náðarmeðulum kristinnar kirkju; sá Guð, sem opinber- ar sig í bænarlífi liins trúaða; sá Guð, sem gaf öllu liinu sýnilega tilveru og viðheldur öllu með gæzku sinni; sá Guð, sem á liinn fullkomnasta hátt hefir opinberað sig í Jesú Kristi, frelsara vorum; sá Guð, sem sagði: verði ]jós, og þar varð ljós, Ijós gjörvallrar sköpunarinnar; sá Guð, sem aftur sagði: verði ljós, og þar varð ljós, ljós sáluhjálparinnar fyrir alla menn; sá Guð, sem Páll talaði um við Aþenumenn og sagði: “1 honum lifum, hrærumst og erum vér, eins og líka nokkur af skáldunum ]ijá yður hafa sagt: Því að vér erum líka hans ættar.” Heiðnar þjóðir til forna röktu ætíð ættir konunga sinna og annarra lietja þeirra, sem langt náðu aftur í rökkur þjóðsagnanna, til goðanna. Þannig áttu konung- ar Norðurlanda að vera komnir af Ásum. Þótt sagnir þessar væri ekki sannleikur í þessarri mynd, sem þær voru sagðar, fluttu þær engu að síður þann djúpa sannleika, að allir menn séu frá Guði komn-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.