Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1915, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.06.1915, Qupperneq 19
115 En livaða augum, sem menn líta á það, sem vér eig- um, livort sem þeir telja það meðal hins bezta, er þjóðir ■eiga, eða skipa því sæti meðal hins allra-lélegasta, þá er það víst, að vér eigum eitthvað, og að oss liefir ekki verið gefið það til að troða það niður í saurinn. Sérhverjum manni, sem fæðist í þennan lieim, liefir verið gefinn blettur, sem hann á að plægja og herfa, sem liann á að sá í, sem hann á að verja illgresi, og þar sem hann á að hlynna að jurtunum á allan hátt, svo garður- inn verði sem fegurstur. Þessi garður er maðurinn sjálfur. En eitt þýðingarmesta atriði í sambandi við garðinn, er járðvegurinn, og mikill hluti af jarðveginum er þjóðernið, sem maður er kominn af. Garðyrkjumað- urinn verður að þekkja jarðveginn, sem hann er að yrkja. Og einstaklingurinn verður að líta á þjóðernis- lega bjargið, sem hann er af brotinn. Enginn getur náð hinu hæsta stigi mannlegs þroska, nema hann þekki sjálfan sig, og enginn þekkir sjálfan sig til hlítar, sem ekki þekkir þjóðernislega hellubjargið, :sem hann er af brotinn. Fyrir oss Islendinga að skilja og þekkja þjóð vora, tungu hennar, sögu, bókmentir og eðli, að sýna henni virðingu og ræktarsemi, að meta hið góða, sem liún liefir gefið oss, er göfgandi og betrandi fyrir livern mann, vegna þess það er rétt og eðlilegt; en, á hinn bóginn, er það varmenska, að fyrirlíta eða vanrækja móður sína, hvort sem það er sú móðir, sem liefir borið mann inn í þennan heim, eða það er liin þjóðernislega móðir. Alt það, sem sagt hefir verið um ræktarsemi til hins íslenzka þjóðernis, má auðvitað með eins miklum sanni segja um liið canadiska þjóðerni, sem vér erum nokkur hluti af. Munurinn er að eins sá, að afstaðan sögulega er dáltíið önnur; en hin göfugu einkenni eiga þar ekkert síður að koma til greina. Þegar til þessa skóla var stofnað, voru reistir tveir undirstöðusteinar fyrir liann að hvíla á. Þeir voru kristindómurinn og þjóðernið. Þá tvo steina liefi eg leit- ast við að benda á í dag, og á þeim verður skóli vor að hvíla. Og jafnvel þótt kristin fræði og íslenzk tunga

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.