Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1916, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.06.1916, Qupperneq 12
108 Höfundurinn ber svo þessi rússnesku þjóðarein- kenni saman við landssiði og verklag Þjóðverja: “Á Rússlandi fann maður ótaminn og óæfðan þrótt andans, sem blés, eins og vindurinn, hvar sem hann vildi. en á Þýzkalandi aftur á móti var mikiÖ hugsað um gagn ein- staklingsins, en lítið sem ekkert um persónuleg sérkenni hans eða frumleik; þar var öllum hlutum stjórnað með röð og reglu; nóg um skipulag, aga og upplýsing; alt felt og smelt með stökustu nákvæmni eins og í stundvísri klukku; þjóðlífið var eins og vél, dásamleg og afkasta- mikil, en sálarlaus.” 1 þessu mikla djúpi, sem staðfest er milli þjóðlífseinkenna Þýzkalands og Rússlands, seg- ir höf. að liggja frumorsök ófriðarins. Þjóðverjum stóð stuggur af “stjórnleysi” og “skrælingjahætti” Rússa. Þeir vildu kveða þá drauga niður og vilja enn. Þeir vita, fyrir hverju þeir eru að berjast, og þar í liggur að- al styrkur þeirra. “En vér vitum í raun og veru ekki hvað það er, sem vér erum að berjast fyrir, og í því er fólginn hálfur veikleiki vor. Vér teljum oss enn trú um, að keppikeflin sé flest á sviði stjórnmálanna—frelsi Belgíu, varðveizla smáþjóðanna, jafnvægi stórveldanna, og annað því um líkt. Vér höfum enn ekki gert oss fulla grein fyrir þeim andlegu málum, sem í húfi eru.” “Hvert stefnir með alt mannfallið og fórnfæring- arnar? Erum vér ekki sem óðast að gera alla Norður- álfuna eins og Þýzkal andi Og getur ekki hæglega farið svo, að Þjóðverjar verði ofan á, hvort sem þeir bera úr býtum sigur eða ósigur á blóÖvellinum? Því að jafnvel þótt þeir bíði ósigur, þurfum vér þá ekki að beita þeirra vopnum, andlegum og veraldlegum, til þess að sigra þá ? Þurfum vér ekki að beygja oss undir þýzka stjórnar- skipun, þýzkt verklag, þýzka mentun, þýzka- stjórnar- valds-lilutsemi? Getur eklti farið svo, að vér sjálfir verðum prússneshir í anda, áður en vér getum brotið prússneskuna á bak aftur? Á þessu er miklu meiri liætta, lieldur en vér gerum oss í liugarlund. En komi sá illi draumur nokkurn tíma fram, þá sé eg að eins einn veg til undankomu. Að eins ein þjóð verður þess megn- ug að bjarga oss undan hinstu afleiðingum þýzkaðrar

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.