Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1916, Page 14

Sameiningin - 01.06.1916, Page 14
110 andi komna meinvætti þá, sem vér vanalega nefnum ‘ ‘ pólitík. ’y Pukrið og tvískinnungurinn; smjaðrið fyrir kjósendum; dekrið við lægstu hvatir alþýðunnar; kosn- inga-moldviðrið með skraffimium sínum og atkvæða- smölum, með skruminu, róginum og svikaloforðunum; vandræðin með að fá beztu menn þjóðarinnar til að gefa sig við stjórnmálum, en hina til að sitja heima; dóma- dags-þingræður, þrumaðar yfir auðum bekkjum og ætl- aðar til kjósendafóðurs eftir á; flokksaginn, sem margan þingheim gerir að dauðri atkvæðavél; spaðtunnan*), sem mörg fjárlagasamþyktin fyllir með bitum lianda einstök- um mönnum eða lieilum kjördæmum í launaskyni fyrir flokksfylgi, þangað til ekkert er eftir nema hraunin, til að seðja með sannar þarfis landsins—alt þetta höfum vér haft hjá oss hér vestra og þekkjum uppá vora tíu fingur. Fljótt og vel hafa íslendingar þar lieima lært þetta alt saman, ekki lengra en umliðið er, síðan regluleg flokkbundin þingræðisstjórn komst á laggirnar lijá þeim. En það er hvorttveggja, að vér teljum oss vitsmuna- þjóð, enda er auðlærð ill danska, Er nú lýðveldishugsjónin eftir alt saman svika- draumur ? Er ómögulegt að gefa alþýðu nokkurs lands verulegan hlut í stjórnar-valdinu án þess að sú tilhögun dragi þennan illa dilk á eftir sér? Sé svo, þá liafa mörg mætustu mildlmenni sögunnar unnið fyrir gíg. Hitt mun vera kollgátan, að eina ráðið til þess að hæta stjórn- arfar livaða lands sem er, sé að glæða sem allra bezt heilbrigða hugsun og sannan manndóm meðal almúgans. I því þjóðræktarverki þarf kirkjan að eiga mikinn og góðan þátt, beggja megin hafsins. -----O---- Blaðið American Lutheran Survey birti fyrir skemstu yfirlit yfir umtalsefni þau, sem prestar í New York og Boston hafa nú í síðustu tíð haft til meðferðar í prédikunum sínum og auglýst fyrir fram í blöðunum. Hér eru nokkur ræðuheiti úr þeirri skrá: “Samtengingarmerki og lýsingarorð”, “Yegurinn *) “Pork barrel legislation” kalla Amerikumenn fjárlagasam- þj'ktir svipaSar þeirri, sem J6n Trausti lýsir I sögunni.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.