Sameiningin - 01.06.1916, Qupperneq 19
115
ekki, að þú þá vera í ákaflega stórri þakklætisskuld við
þessa menn?
Já, víst eru slíkir menn í fylsta skilningi velgjörða-
menn þínir. En gleyma má þá ekki lieldur því, að þegar
byrði syndarinnar livíldi á herðum þínum, þegar þú
varst í stórri skuld við Giuð, sem þú gast ekki borgað,
þegar þú vissir enga lrjálpar von, hvert sem hugurinn
leitaði, þá kom Jesús sjálfur og rétti þér óbeðið hjálpar-
hönd og bjargaði þér. Eins og þá stóð á, var lífsfar
þitt að sökkva, en Jesús gaf sig í dauðann til að bjarga
lífi þínu, og frelsaði þig frá dauðanum, með því að bera
syndir þínar upp á krossinn og friðþægja fyrir mis-
gjörðir þínar. Hann liefir gert óendanlega mildu meira
fyrir þig, en nokkur annar. Sannarlega ]>arft þú að
hegða þér eins og honum er samboðið, og láta þakklæti
hjartans koma fram, ekki einungis með orði og tungu,
heldur í verki og sannleika.
Og vér þurfum líka að hegða oss á þann hátt, að
bera djúpa lotningu fyrir Guði og vegsama hann á allar
lundir.
Allir ærlegir menn bera virðingu fyrir góðum for-
eldrum, og líka berum vér lotningu fyrir þeim, sem eru
sérstaklega gáfaðir og sérstaklega góðir, og það er rétt.
En hví skyldum vér þá ekki bera enn dýpri lotning fyrir
Guði, og heiðra hann enn þá meira? Hann er faðir vor
og hjartans vinur, alvizka hans ljómar alt í kringum oss,
og kærleiki hans er öllum kærleik meiri. Ekki sæmir oss
þá á neinni tíð, að hæðast að boðum hans, eða brjóta móti
þeirn vísvitandi. Og ekki sæmir oss að vanrækja helgar
tíðir í húsi lians, þó vér sjáum einhverjar afsakanir fyrir
því. Fremur ber oss að heiðra hann með guðsþjónust-
um, lofsöngvum, þakkargjörð og bænum. En það er þó
ekki nóg, að heiðra hann með helgisiðum og guðsþjón-
ustum, vér þurfum líka að heiðra hann og auðsvna nafni
hans lotningu í daglegu lífi voru, starfi voru og umsýsiu
vorri. “Ekki mun hver sá, er við mig segir: ’Herra,
Iierra,” ganga inn í himnaríki, lieldur sá, er gjörir vilja
föður míns, sem er á himnum” (Matt. 7, 21). Það er
ónýtt að krjúpa frannni fyrir Guði, í ímyndaðri bæn til