Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1916, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.06.1916, Blaðsíða 30
126 hann Jakob, smiðurinn góöi, hefir veriö aS reisa handa þér. Öll skrauthýsi jarðarinnar hrynja einhvern tíma, en þetta hús stendur um eilífS.” I’egar konungurinn vaknaði, skildi hann, aS Guð hafði með þessum draumi verið að sýna honum, að hallarsmiðurinn hans hefði farið vel að ráði sínu, og að peningunum, sem hann hafði notað til þess að hjúkra sjúkum, fæða hungraða og líkna fátækum, hafði ver- ið betur varið, en þó að fyrir þá hefði verið reist fegursta höll úr marmara, gulli og silfri. — Hann sendi tafarlaust eftir Jakob, sæmdi hann rausnarlegum gjöfum og þakkaði honum fyrir, hve vel og viturlega hann hefði farið að ráði sínu. “safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu------------en safnið yður fjársjóðum á himnum.” ('Matt. 6, 19. 20J. • -------o------ Hver er sinnar gæfu smiður. “En hvað þeir leika sér fallega saman, drengirnir litlu,” sagði Martin King einn góðan veðurdag Við konuna sína; þau voru að horfa á Berta, son sinn, leika sér við leikbræður sína tvo, Channing Turner og annan dreng. “Já,” sagði Mrs. King hugsandi; “nú eru þeir allir jafningjar; en hvernig skyldi það verða eftir ein tiu eða fimtán ár? Channcey Turner verður þá rikur maður, en drengurinn okkar ef til vill ó- breyttur skósmiður,” “Ef hann verður það,” svaraði maður hennar, “þá vona eg, að hann búi til beztu skóna, sem fáanlegir eru.” “En hugsaðu þér, að þessi drenghnokki skuli eiga fyrir höndum að erfa fjörða part úr miljón,” sagði móðir hans Berta. “Eg skal segja þér það i einlægni, María,” svaraði M'r. King, “að mér þykir vænt um það vegna hans Roberts, að eg er efnalaus maður. Það Væri honum ekki holt, að eiga von á að eignast mikil efni fyrirhafnarlaust.” “Hvaða vitleysu ert þú nú að fara með, góði minn.!” “Ef við verðum langlíf, María, skalt þú minnast orða minna; og illa er eg svikinn, ef þú verður ekki á mínu máli. Eg hygg, að sonur fátæks manns sé oftast liklegri til þess að verða að manni, en sonur efnamanns.” “Líklegri til hvers, segir þú?” “Líklegri til þess að mannast, fyrir starfsemi, sparnað og stjórn á sjálfum sér; líklegri til þess að varðveita likama sinn heilbrigðan, skynsemina óbrjálaða og hjartað gott; líklegri til þess, i stuttu máli, að verða að manni.”-------- Nokkru síðar bað Berti föður sinn að gefa sér bolta, og gat þess um leið, að Channey Turner fengi að kaupa alt, sem hann langaði til að eiga. “Þér er bezt að vinna fyrir boltanum sjálfur, drengur minn,” svaraði faðir hans; “þá eignast þú um leið afl til þess að henda honum hærra, en ef hann hefði komið fyrirhafnarlaust í hendur

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.