Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1916, Page 13

Sameiningin - 01.11.1916, Page 13
269 ing hans á sálminum “Jesus, Lover of my Soul” er alls eng- inn afneitunar-kveðskapur, þótt hins vegar væri synd að segja þaS, að hún kæmist í hálfkvisti við frumsálminn. En maðurinn er hins vegar bersýnilega gagntekinn af þeim hálfleik og ýmugust á ákveðinni kirkjutrú, sem einkennir mikinn hluta kristninnar nú á dögum. par af flýtur bragð- leysi sálmanna hjá honum. Hvernig á að syngja “sköp- unarafli” Pattens jafn-hreimmikið lof og andríkt eins og þríeinum Guði Hebers, almáttugum og miskunnarríkum ? Eða hvernig á bænamálið að geta orðið jafn-hjartnæmt hjá prófessornum eins og hjá þeim Wesley og Newman, á meðan hann auðsjáanlega finnur ekki til eymdadjúps þess, sem syndug mannssál er sokkin í, og kannast við Jesúm Krist sem bróður að eins, og vin og félaga, en ekki sem frelsara sinn? En hvað sem öllu þessu ííður, þá á Patten heiður skil- inn fyrir að leiða trú sína til dyra, eins og hún er klædd, og sýna hana í því ljósi, sem hún á með réttu. Við það gefst öllum heimi kostur á að meta hana að verðugu og bera hana saman við sögulegan kristindóm. Slíka hreinskilni ætti engin andastefna að þurfa að óttast, nema svo sé, að henni standi stuggur af sjálfri sér. Lúter um rœ^ugjörð og rœðu- flutning. Úr “History of Preaching” eftir John Ker. Prédikunina skoðar Lúter mikilvægasta þáttinn í guðs- þjónustunni, og fylgir þar Páli, sem setur boðun orðsins ofar öllum helgisiðum—Kristur sendi hann “ekki til að skíra, heldur til að boða fagnaðarerindi” (1. Kor. 1, 17). Lúter setur kenninguna skör hærra jafnvel en orð Drottins sjálft í ritningunni. Má virðast undarlegt í fljótu bragði, en Lúter er ekki að tala um sannleiksvald ritningarinnar, heldur um venjulega notkun hennar, og meinar í raun og veru ekkert annað en það, sem stendur í fræðum vorum hinum minni, að “Guð noti lestur orðsins, og einkum kenn- ing þess, sem meðal til að sannfæra synduga menn og snúa þeim.”*) Kenningin, sem hér er átt við, er ekkert annað en orð Drottins sjálft, sem berst frá hjarta lifandi vottar inn í hjarta þess, sem á hlustar. Kenningin er það, þegar kirkja Krists hefir orð hans um hönd, með aðstoð *) Hér er átt vife' fræ8i Presbýtera.—G.G.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.