Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1916, Blaðsíða 19

Sameiningin - 01.11.1916, Blaðsíða 19
275 því, að vinna ýms ytri verk samkvæmt því, er skriftafaðir- inn lagði fyrir. Slík yfirbótarverk voru einkum: föstur, langar og tíðar bænagjörðir, ölmusugjafir (sálugjafir), pílagrímsferðir og ýmsar sjálfpyntingar. En frá þessum yfirbótarverkum var þeim, er vildu, leyft að kaupa sig lausa með fjárútlátum, er síðan varð tilefni til aflátssöl- unnar. pannig má með sanni segja, að hér væru ytri at- hafnir (syndajátningin og yfirbótarverkin) settar í stað trúarinnar. 5. Að gjöra meira gott en skyldan býður var talið mögulegt. Frá því á 13. öld hafði heyrzt í kirkjunni sú kenning, sem hefir ekkert í ritningunni við að styðjast, að þá er frelsari vor gjörði fullnægju fyrir syndir heimsins, hefði hann eigi að eins gjört það, er þurfti, til að afplána hina miklu sekt mannanna, heldur og mikið fram yfir það. Reyndar átti þessi kenning að vera Kristi til vegsemdar. En hinir helgu menn voru vegsamaðir á líkan hátt; því að þótt Kristur hafi beinlínis bent á, að enginn maður gjöri nokkurn tíma meira gott en skyldan býður honum, svo að öllum beri að segja: “ónýtir þjónar erum vér” (Lúk. 17, 10), var einnig kent, að hinir helgu menn, sem kallaðir voru, hefðu gjört fleira og meira gott og Guði þóknanlegt en skyldan krafði, og með því áunnið sér meiri verðleika hjá Guði en þeir þurftu eigin sálum sínum til hjálpræðis. pessir verð- leikar Krists og hinna helgu manna fram yfir það, er þurfti, var sagt, að væru sjóður, sem kirkjan hefði umráð yfir, og af þessum verðleikasjóði þóttist hún hafa vald til að miðla þeim, er miður væru staddir, á þann hátt og með þeim skilyrðum, sem hún vildi, til þess að brot þeirra yrðu bætt, eða þeir fengju uppbót þeirra yfirbótaverka, sem þeim bar að vinna, til að geta fengið fyrirgefning synda sinna. pessi heimskulega kenning var höfð til að réttlæta það óhæfu- athæfi, að 6. Fyrirgefning syndanna var seld fyrir peninga. Hinn fyrsti undirbúningur undir þetta var sá, að þeim, sem yfirbót gjörðu, var annaðhvort gefið eftir nokkuð af þeim tíma, er þeir áttu að vera í yfirbótarstöðu, eða að þeir voru látnir sleppa við nokkuð af þeim yfirbótarverkum, sem hafði verið lagt fyrir þá að vinna, til að bæta fyrir syndir sínar. petta var upphaflega það, er kallað var a f 1 á t. í fyrstu var slíkt aflát veitt gefins, af því að sá, er það fékk, þótti hafa bætt ráð sitt að fullu en síðar var tekin borgun, sem höfð var til hjálpar fátæklingum eða til annara góð- verka. En er fram liðu stundir, breyttist þetta svo, að það, sem aflát var kallað, var eigi lengur að eins uppgjöf yfir-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.