Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 24
280
ingar. Við sjálfa páfahirðina áttu alls konar ósiðir og lestir
þráfaldlega heima, og fyrir Lúters daga voru þeir páfar eigi
fáir, er með sönnu má segja um, að þeir hafi verið gjör-
spiltir menn. Löngu áður en Lúter hóf siðbót sína, höfðu
margir menn séð það og fundið til þess, að kirkjan var að
mörgu leyti horfin frá því, er hún hafði upphaflega verið
og átti að vera, og þeir voru eigi fáir, sem vakið höfðu máls
á þessu og viljað koma umbótum til leiðar. En fram að
Lúters tíma höfðu allar slíkar kirkjulegar umbótatilraunir
mistekizt, bæði af því að nægan undirbúning hafði vantað
og af því að oftast hafði verið bygt á öðrum grundvelli en
hinum rétta. Sá grundvöllur, sem Lúter bygði á, var það
tvennt, að heilög ritning sé hin eina algilda regla kristilegr-
ar trúar og kristilegs lífernis, og að maðurinn réttlætist eigi
fyrir Guði af neinu öðru en trúnni á Jesúm Krist og
hans friðþæging. En þeir, sem höfðu áður viljað koma
endurbótum til leiðar í kirkjunni, höfðu eigi nægilega, og
sumir alls eigi, haft augastað á þessu. par að auki hafði
enginn þeirra haft til að bera svo marga og frábæra hæfi-
legleika sem Lúter til að verða siðbótamaður. Guð hafði
upp alið hann og undir búið til hins mikla endurbótaverks,
án þess að Lúter hefði sjálfur ásett sér fyrir fram að takast
það á hendur. En þá er hann hafði séð og sannfærzt um,
hvað gjöra þurfti, lagði hann öruggur hönd á verkið, hélt
því kappsamlega áfram og hugsaði ekki um annað en að
vera sannleikanum trúr og Guði trúr.
Félag lúterskra presta í Winnipeg.
Miðvikudaginn 22. Nóvember gerðu lúterskir pxæstar í
Winnipeg sér mót á einu hóteli borgarinnar og neyttu þar
máltíðar saman. par á eftir var skotið á fundi og á fund-
inum var stofnað “Félag lúterskra presta í Winnipeg”
(“The Lutheran Ministerial Association of Winnipeg”).
Fimtán prestar verða í félagi þessu og teljast þeir til
fimm þjóðflokka: enskir, norskir, sænskii', þýzkir og ís-
ienzkir. Einn íslenzku prestanna var kjörinn forseti fé-
lagsins, skrifarinn er enskur og féhirðirinr þýzkur. Fundi
sína ætlar félagið að halda mánaðarlega og ræða trúmál og
sameiginleg starfsmál kirkjunnar. Verður aðalverk fé-
lagsins næsta ár að gangast fyrir viðeiganlegu hátíðarhaldi
í Winnipeg til minningar um feraldar-afmæli siðbótarinnar.
Hefir það í hyggju að fá sér til samvinnu ötula leikmenn í
öllum söfnuðunum lútersku í Winnipeg til að koma hátíðar-
haldinu á og gera það sem bezt úr garði. Mælt er, að um
15,000 lúterskra manna sé í Winnipeg og mættu þeir all-
miklum áhrifum valda, ef samtök eru og samvinna.