Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 25

Sameiningin - 01.11.1916, Qupperneq 25
281 RADDIR FRÁ ALMENNINGI Dcild þcssa annast séra G. Guttormsson. Ritstjóraspjall. Allir kannast nú á dögum viö borgina Saloniki í norðurhluta Grikklands. Hún er oft nefnd í stríösfréttunum; stórtíðindi hafa borist af og til þaSan út um allan heim, síöan bandaþjóðirnar gjöröu borg þessa aö aöal- herstöövum austur þar í ófriðnum mikla, sem nú stendur yfir. En stærri v’iöburöur gjöröist þó i fornöld í þeirri borg—stærri í raun og veru, þót varla hafi hanrt þá í svipinn þótt mjög miklum tíöindum sæta. Það mun hafa verið í Desember-mán- uöi, hálfri öld eftir fæöing Krists, að þrír ferðamenn, vegmóðir og heldur fátæklega til fara, komu til borgarinnar. Tveir þeirra voru naumast búnir að ná sér eftir misþyrmingar, sem þeir urðu fyrir í annari borg þar í Makedóníu skömmu áður. Menn þessir voru þeir Páll postuli og félagar hans tveir, Sílas og Tímóteus. Borgin hét i þá daga Þessaloníka. Þeir Páll tóku þegar að leita sér atvinnu þar i borginni, því ekki voru efnin rnikil fyrir hendi. Vinnulekin mun hafa verið taf- söm þá eins og nú, en þó komust þeir félagar brátt að verki v'ið að vefa tjalddúka úr svörtu geitahári, og gátu háft ofan af fyrir sér með því. En stundleg atvinna fullnægði ekki mönnum þessum; þeir voru trúboðar en ekki tjaldgjörðarmenn. Borgarbúar voru heiðnir menm lang-flestir, en þó áttu Gyðingar samkunduhús þar. Þangað komu þeir Páll þrjá hvíldardaga í röð, og boðuðu samlönd- um sínum erindið einkennilega um krossfestan og upprisinn Messí- as, Jesúm nokkurn frá Nazaret, og um andlegt guðsríki, sem Kristur sá hefði komiö til aö stofna. Fáir Gyöingar urðu til að taka öðrum eins kenningum fegins- hends. Þeir höfðu gjört sér vonir u-m eitthvað glæsilegra, þegar rætast tæki fyrirheit þau, sem Drottinn hafði gefið feörum þeirra, heldur en krossfestan Messías og andlegt guðsríki. Kom því brátt upp illur kurr meðal þeirra gegn trúboðunum, svo að þeir Páll létu samkunduhúsið eiga sig, og tóku að boða heiðingjum trúna. Þá gekk trúboðið miklu betur, því að hjá heiðingjum var færri hleypi- dómum aö mæta. Ekki leið á löngu, áður en allstór söfnuður var myndaður þar í Þessaloníku, og tóku þá Gyðinigar að sjá ofsjónum yfir árangrinum. Þeir vöktu uppþot gegn trúboðunum, gáfu þeim það að sök, að ^eir umturnuðu öllum heimi með kenningum þess- um, og fengu þá hrakta burtu úr borginni. Páli þótti mjög mikið fyrir því, að þurfa að fara svona fljótt úr Þessaloníku. Jarðvegurinn andlegi hafði verið frábærlega góð- ur meðal heiðingjanna þar; honum þótti mjög vænt um fólkið, sem

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.