Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1916, Blaðsíða 26

Sameiningin - 01.11.1916, Blaðsíða 26
282 hann hafði snúiS til kristni, og fólkinu um hann. Hann fann sárt til þess, hve stuttan tíma hann hafði haft til að innræta fólki þessu hreinan kristindóm og styrkja þaS gegn árásum á trúna, því hann vissi vel, aö hún yröi ekki látin í friöi þar fremur en annarsstaöar. þegar hann væri farinn. iPáll hélt áfram trúboðsför sinni suður urm Grikkland, og komst alla leið til Korintu. Hann boðaöi Krist hvar sem hann gat, og lagði hart á sig, en aldrei gat hann gleymt söfnuðinuro litla í Þessa- loníku. Hann, mintist þess safnaðar óaflátanlega í bænum sínum og sendi félaga sinn Tímóteus þangað, til þess að komast eftir ástandi safnaðarins. Þegar Tímóteus var kominn til postulans aftur úr þessari sendiför, og hafði fært honum fregnir af ástandinu nyrðra, v'ildi Páll hughreysta söfnuðinn og leysa úr ýmsurn vandamálum, sem þar höfðu komið á daginn eftir burtför hans. En í þetta skifti gat hann ekki mist félaga sína frá verkinu í Korintu. Tók hann þá það ráð, að hann skrifaði Þessaloníkumönnum til—eða lét annan mann skrifa bréfið og las honum efnið fyrir. Þetta sendibréf, fyrra bréf Páls til Þessaloníkumanna, er enn til. Það mun vera elzta bréf post- ulans, þeirra er geymst hafa í nýja testamentinu. Söguna um tildrög þess bréfs hefi eg hermt hér í stuttu máli fyr- ir þá sök, að mig langar til að fá einhverja af lesendum blaðsins til að fara yfir bréfið með dálítilli eftirtekt, og taka þátt í umræðum um efni þess hér í blaðinu. Eg hefi hugsað mér að birta þær umræður hér í “Röddunum”, og bið því alla, sem vilja sinna þessu, að senda mér annað hvort spurningar um eitthvert atriði í bréfinu, eða þá hugleiðingar og athugasemdir eða eitthvað annað, sem heima getur átt í sliku samtali og orðið öðrurn mönnum til uppbyggingar. Svo má taka önnur rit biblíunnar síðar og ræða þau hér á sama hátt Mér finst, að það megi auka stórum á nytsemd deildarinnar með þessu móti, því fátt vanahagar oss fremur um, íslendinga, en kostgæfinn lestur Guðs orðs, og þekking á efni þess. Eg vonast eftir góðum undirtektum meðal lesendanna —og um árangurinn efast eg ekki, ef þetta kemst í kring. Enginn taki þessi tilmæli mín svo, að mér sé farið að þykja nóg um erindi þau, sem hingað til hafa borist deildinni. Þeim sendingum verður tekið með þökkum framvegis eins og að undanförnu. Mig langaði að eins til að færa út kvíarnar ofurlítið—bæta einu umtals- efni við hitt alt, sem hingað til hefir borið hér á góma. “Rödd” frá manni í Saskatochewan. Ef rúm og aðrar ástæður leyfa, vildi eg mega koma með ofur- lítinn kafla úr bók, sem til er eftir Jón sál. Espólín. Þar segir svo: “Hvernig stendur á því, að veröldin aldrei vill trúa Guðs opin- beraða orði ? Bæði í lærdóminum og verkinu er ætíð haft á móti því, af hverju þankafari allar mannanna óhamingjur fljóta. Menn kífa sífelt um trú og líferni til dæmis, og margir vilja ekki fallast á það, að trúin sé neins v'erð; lífernrð á að vera alt.—Já, hver veit það eigi,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.