Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1916, Page 31

Sameiningin - 01.11.1916, Page 31
287 fólkib. Lovísa var mjög- hrædd viö vonda Perkins-drenginn, og hún flýtti sér alt af eins og hún gat, þegar hún sá til hans. Nei, þaö var ekki til neirus fyrir hana ab hugsa til þess aö útvega nýjan nem- anda í skólann, og henni þótti mjög fyrir því. ÞaS átti að gefa þeim börnum, sem komu meö nýjan nemanda, litla silfurstjörnu, og Lovísu hefbi þótt svo vænt um þaö, ef silfurstjarnia heföi veri’ð næld á fátæklega kjÓlinn hennar; en auövitaö gat enginn ætlast til þess, að lítil tekluð stúlka útvegaði nemanda í skólann. Sunnudaginn eftir virtist ekki ætla að blása byrlega fyrir Lov'ísu. Lf>egar hún var rétt á móts viö Perkins húsið, brotnaði önnur hækjan hennar og hún datt. Ekki meiddi hún sig neitt að ráði, en henni var ómögulegt að komast lengra. “Vertu kyr á meðan eg næ í kerruna mína,” sagði Perkins drengurinn, sem kom hlaupandi þegar hann sá hana detta. ‘"Vertu ekki að róta þér á meðan.” Foreldrar Lovísu voru hvorugt heima, og var henni þv'í nauðugur ei-nn kostur að þiggja þessa hjálp. 'Drengurinn kom að vörmu spori með kerruna sína, og hann tók litlu stúlkuna upp og lét hana upp i kerruna, því hann var bæði stór og sterkur. “Eg ætla að fara með þig í sunniudagsskólann,” sagði hann við hana og dró kerruna hægt og gætilega eftir brautinni; “eg ætla að bíða fyrir utan, á meðan þú ert í skólanum, því fötin mín eru svo ræflaleg.” Lovísa var venjulega lengi á leiðinni í skólann, þegar hún þurfti að staulast þangað á hækjunum sínum. En þenna dag gekk ferða- lagið svo greiðlega, að hún var komin þangað góðri stundu áður en taka átti til. Forstöðumaðurinn átti heima þar í næsta húsi, og hann sá til þerra og kom út til þess að bjóða Lovísu að koma inn til sín á rneðan hún þyrfti að bíða. “Og þetta er nýi nemandinn, sem þú kemur með ?” sagði hann, og heilsaði drengnum innilega með handabandi'. “Það var sannarlega vel gjört af þér.” “Eg ætla ekki að fara inm,” sagði Perkins drengurinn; “fötin mín eru svo ljöt.” En forstöðumaðurinn ásetti sér að láta það ekki verða til fyrir- stöðu. Hann fór með þau inn í hús sitt, og lét drenginn fara þar í dálítið brúkuð föt, sem drengurinn hans var vaxinn upp úr, og gaf honum lika góða skó. “Það hlýtur að vera eitthvað varið í þennan dreng,” sagði hann við sjálfan sig, “að hann skyldi leggja það á sig að aka Lovísu hingað í kerrunni sinni. Eg ætla ekki að kalla hann vondan dreng framar.” Og slíkt hugsuðu margir aðrir, þegar fólkið kom í sunnudags- skólann og frétti hvað gjörst hafði. Einn maður bauðst til að út- vega drengnum atvintnu, og annar bauð honum heim til sín. Og silfurstjörnur voru nældar á þau bæði, því Perkins drengurinn hafði komið með Lovísu og Lovísa hafði komið með hann. “Eg tók eftir því, að þú stóðst ekki á fætur á sunnudaginn var, Lovísa mín,” sagði kennarinn hennar; “en þú komst samt með nýjan nemanda.” “Já,” sagði litla stúlkan, og ljómaði öl! af fögnuði. “Og hann

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.