Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1916, Síða 3

Sameiningin - 01.12.1916, Síða 3
^itnu'Íninmn. Mánaðarrit til stuðnings kirlcju og Icristindómi ísleadinga. gejið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi RITSTJÓRI: BJÖRN B. JÓNSSON. XXXI. árg. WINNIPEG, DESEMRER 1916 Nr. 10. Góðviljahátíðin mikla. Ulliim mönnum er meðsköpuð jiörfin á helgurn véum. Euginn kemst af án þess að eiga í umlieiminum einhvern griðastað, einhvern friðhelgan blett hugsjónum sínum eða óljósum eftirlöngunum síns betra manns, þar sem óhætt megi bera þær fram í dagsljósið. Þessi þörf hjartans hefir margoft stungið mjög átakanlega í stúf við lifnað þann og hugsunarhátt, sem menn að öðru leyti tömdu sér. Griðarstaðirnir hafa þá orðið eins og gróð- urblettir í öræfum, þeim mun dýrmætari, sem auðnin var ömurlegri alt í kring. Það er ekki óvanalegt, að lítt mannaðir þjóðflokkar haldi helgidómum sínum alveg ó- trúlega hreinum, þótt lýðir þeir hafi þess utan alið aldur sinn kynslóð fram af kynslóð við hinn versta óþrifnað, og sé fyrir löngu orðnir svo grómteknir og samdauna allskonar óheilnæmi, að hreinlætislöngunin mætti virðast með öllu útdauð og upprætt úr eðli þeirra. En muster- in og helgilundirnir hjá slíkum þjóðum bera þess þó ljós- an vott, að inst í hjörtum sínum tigna þær hreinleikann og vilja fara með hann eins og helgan dóm, svo háheilag- an, að þær finna honum hvergi hentugan stað eða nógu veglegan, nema þarna. Sömu öfgunum hefir miskunnsemin oft verið látin sæta hjá heiðnum þjóðum og hálfkristnum; hún hefir átt sér heilagt griðland í goðahofum þeirra eða kirkjum og veitt þar hæli öllum flóttamönnum, sem þangað leituðu, sekum jafnt sem ósekum. Bæði heiftin og réttvísin

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.