Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1916, Side 4

Sameiningin - 01.12.1916, Side 4
290 stöðvuðust þar, eins og alda við klett, enginn mannlegur kraftur reisti rönd við þeim. Miskunnsemin fe.kk hvergi að njóta sfn til fulls nema þar, en þar var hún líka hafin í það öndvegi, að jafnvel réttlætið sjálft varð að þoka. Slíkir griðastaðir voru goðahofin hjá Grikkjum og Eóm- verjum til forna, og eins kirkjurnar á miðöldunum; og mörg dæmi samskonar mætti tína til úr vorum eigin fornsögum. Þegar Baldur var veginn á goðaþingi, seg- ir Edda, þá voru æsirnir allir með einum hug til þess, er unnið hafði fólskuverkið, en enginn mátti hefna — “þar var svo mikill griðastaður. ” 1 Landnámu segir svo um Þórólf Mostrarskegg, að hann liafi lagt svo mikinn á- trúnað á Helgafell, “að þangað skyldi enginn maður ó- þveginn líta”—og þar var svo mikil friðhelgi, að engu skyldi granda þar í fjallinu, hvorki fé né mönnum, nema sjál'ft—gengi braut.” Þá kannast víst flestir við Gretti, þegar hann kom til Hegranesþings, sekur skógarmaður og í ósætti við marga, sem þar voru, og gekk þó að leik- um sem frjáls maður og fór óáreittur af þinginu, af því Hafur á Hrappsstöðum, hafði mælt þar fyrir griðum. Friður og miskunn skipuðu alls ekki öndvegi hverndags- lega hjá forfeðrum vorum, heldur þvert á móti. En mitt í þjóðlífi því, þar sem hefndin var skoðuð heilög skylda, en friðarást og vægðarsemi allajafna höfð í lág- um metum eða jafnvel fyrirlitin, lifðu þó dygðir þessar í heilagri, óljósri þrá í hjörtum manna, og höfðu uunið undir sig vígi, fá að vfsu, en sterk, í lífi þeirra og siðum. Sömu söguna mætti segja um flest annað gott, sem rutt hefir sér til rúms í mannlegu lífi, að það hefir oft heilum öldum saman, eða áraþúsundum jafnvel, orðið að sætta sig við lotning þá, sem því var auðsýnd innan við slíkar helgiskorður. Heilög vé eiga kristnir menn ekki síður en aðrir, og þar leiða þeir til hásætis hinar fegurstu hugsjónir krist- índómsins; hugsjónir, sem einhvern veginn fá ekki not- ið sín annarsstaðar, nema hjá tiltölulega fáum mönnum. Þessa gætir einna mest á hinni miklu allsherjar-hátíð kristninnar—jólunum. Þá er háflóð í trú, von og kær- leik allra þeirra manna, sem játa frelsarann. Margur,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.