Sameiningin - 01.12.1916, Side 8
294
oss þykir að horfa. á aðfarirnar nú, þá eru þær þó í raun
og veru hátíð hjá þeirri vígöld, þegar blóðhefndir voru
daglegt brauð, og enginn maður var nokkurn tíma svo
óhultur um líf sitt, að liann færi vopnlaus út úr húsi.
Þar var ávöxtur heiðindómsins. Um hann ætti þeir
menn að hugsa, sem liáværastir eru í hrakspám sínum
um smánardauða kristindómsins, af því kristnar þjóðir
hafa nú um stundar sakir og að parti til sokkið í þann
heiðindóm aftur. En, sem sagt, á þeim vígöldum voru
þó til heilög vé, þar sem allir gátu lagt niður vopnin,
griðarstaðir, þar sem flóttamaðurinn gat fengið stund-
arfrið og tækifæri til að njóta miskunnar eða réttra laga.
Nú hafa vé þessi fyrir löngu breiðst út yfir liverndagslíf
kristinna manna, svo að þeir geta nú umgengist hvei-jir
aðra vopnlausir í friði—það er að segja vanalega—og
notið taganna, ef þeir eiga í sökum saman. Fullkom-
leik höfum vér auðvitað ekki náð í þessu efni, en fram-
förin er mikil, dýrmæt, samt sem áður.
Jólin eiga eftir að færast út í sama skilningi. Alt
það, sem þá verður ofan á í lífi kristinna manna, er eins
langt á undan daglegri hegðun þeirra, eins og véhelgin til
forna var á undan menningunni þá. Þökkum Guði fyrir
þennan gróðurreit góðviljans. Hann er að búa um sig
þar, festa dýpri og dýpri rætur, breiða sig út. Þegar
hermennirnir, marg-saddir á heift og ógnum, rétta óvin-
um sínum bróðurhönd í heilögum stundarfrið jólanna,
þá eru þeir óafvitandi að beita sömu herkænsku í andans
heimi, sem foringjar þeirra beita margoft á vígvellinum.
Þeir hafa víggirt jólin, gjört þau að mannavirki kristi-
legrar bróðurelsku, mitt í ásóknum heiftar þeirrar og
grimdar og tilfinningarleysis, sem geysar yfir alt líf
þeirra. Þetta virki, hinn betri mann þeirra, verja þeir
af öllum kröftum, til þess að geta aftur náð undir góð-
viljann öllu því svæði, sem hann hefir mist, og meiru til,
þegar fram líða stundir.
Slíkt varnarvirki eiga jólin að vera oss öllum, slíkur
gróðurreitur sannrar trúar og bróÖurelsku. Munum
eftir því, að sá kristindómur, sem hjá flestum af oss