Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1916, Side 9

Sameiningin - 01.12.1916, Side 9
295 nýtur sín ekki nema á jólunum, hefir ráðið ríkjum í hverndagslífi margra trúhræðra vorra á öllum öldum, svo að hér er alls ekki um hylling' eða draumsýn að ræða. Það er haft eftir gamalmenni einu á Islandi, og hent gaman að, að mikil yrði hátíðin, þegar hinar stórhátíð- irnar bæri upp á jólin. Þetta á sér í raun og veru stað. Sú hátíð felur í sér allar hinar. Þegar vér höldum hana, þá höldum vér þær allar. Sérstaklega. má segja það með sönnu, að hvítasunnudaginn beri upp á hverja jóla- nótt. Þegar vér höldum jól, þá heldur Drottinn hvíta- sunnu, og hellir anda sínum út yfir allar mannssálir, sem á þeirri tíð hafa brotið odd af syndaoflæti sfnu og beygt kné fyrir jólabarninu guðlega. “Slökkið ekki andann”, segir Páll postuli til kristinna manna. Eyðum ekki þeim blessuðu áhrifum andans með því að falla í sömu ódygðirnar og sinnuleysið eftir á. Leyfum honum að breiða jólagróðurinn—góðvilja kristinnar trúar—út yfir alt vort líf. G. G. -----O— -- Hvernig heldur þú jólahátíðina? Eftir séra Friðrik Ilallgrímsson. “Heims wn ból helg eru jól.” Allstaðar þar sem fagnaðarerindi Jesú Krists hefir verið boðað, halda lærisveinarnir helga fæðingarhátíð hans. Þeir safnast saman í kirkjunum og á heimilun- um og gleðjast hvorir með öðrum út af fagnaðarefninu mikla og dýrlega. Þeir láta gleðina miklu birtast í hjartanlegri lofgjörð og tilbeiðslu, og hafa unun af því, að gleðja sem flesta með vinahótum og kærleiksgjöfum. Heimurinn heldur líka jól,—Krist-laus jól. Jólin koma, eins og sólskinið og regnið, yfir góða og vonda, réttláta og rangláta. Og þeir eru margir, sem halda upp á jólin með íburðarmiklu áti og drykkju, glaðværð og skemtunum, án þess að minnast með einni hugsun hans, sem á jólnnnm fæddist. Afrnælishátíð halda þeir, —en minnast ekki á afmælisbarnið.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.