Sameiningin - 01.12.1916, Qupperneq 10
296
Iiverja þýðingu hafa jólin fyrir þig? Hvernig
heldnr þú jólahátíðina ?
Jólin tákna gjöf. “Því að svo elskaði Guð keim-
inn, að hann gaf son sinn eingetinn” (Jóh. 3, 16). Og
það var bezta gjöfin, sem Guð gat gefið syndugum
heimi. Ilungraður maður þráir brauð; veikur maður
þráir heilsu; syndugur maður, sem hefir meðvitund um
syndugt ástand sitt, þráir frelsara. Og þetta er einmitt
gleðiboðskapur jólanna: “Yður er f relsari fæddur.”
Frelsarinn Jesús Kristur er jólagjöf föðursins á
himnum til syndugra manna, — hann er jólagjöfin, sem
Guð gefur þér. Hann er þér gefinn til þess að vera
frelsari þinn; til þess að fyrir trú á hann hafir þú fvrir-
gefningu synda þinna og eilíft líf; til þess að fyrir sam-
félagið við hann missi hið illa æ meir og meir vald yfir
þér, en alt það góða, sem í þéí er, glæðist, styrkist og
vaxi; til þess að fyrir það að vera lærisveinn lians, verð-
ir þú æ betri, sterkari og sælli manneskja. Jesús Krist-
ur, jólabarnið heilaga, jólagjöf Gnðs, felur í sér alt, sem
gjörir mannlífið auðugt, fagurt og sælt, — fult af friði
og' von. djörfung og sigri.
Það er kristið jólahald, að þiggja þá gjöf af Guði
með þakklæti og fögnuði. En þó að sú dýrmæta gjöf
standi öllum til boða, eru þeir þó fjöldamargir í kristn-
inni, sem segja má um með sálmaskáldinu:
“Menn elta heimsins glaum og glys,
og gleðja sig til ónýtis
af gulli, gózi og seimi,”—
fjöldamargir, sem ekki lifa neinu trúarlífi, hugsa og lifa
eins og aldrei hefðu verið jól, ganga fram hjá beztu gjöf
Guðs eins og hún væri einskis virði. Það er ekki okkar að
dæma þá. En' sárt getum við kent í brjósti nm börn hé-
gómans, sem snúa baki við gæfubrautum lífsins og leita
lífsþrá sinni fullnægju í fánýtum glaumi og glysi, og
lenda svo út á eyðimerkur-götur, þar sem tómleikinn og
vonbrigðin leggjast einhvern tíma með nístings kulda
yfir sálir þeirra.
Hvernig ætlar þú að halda þessa jólahátíð? Vilt