Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1916, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.12.1916, Qupperneq 12
298 Það var einu simii ung-ur maður, sem lifði illu lífi í svalli og slarki; fáum kom til hugar, að nokkurn tíma gæti orðið úr honum maður, og faðir hans hafði mikla hugraun út af honum. Nágranni einn átti einu sinni tal um þetta við föður lians, og komst þá meðal annars svo að orði: “Ef liann væri sonur minn, þá ræki eg hann burtu af heimilinu og léti hann sigla sinn eiginn sjó.” — “Já,” svaraði faðir piltsins, “eg myndi kann- ske gjöra það, ef hann væri sonur þinn; en nú er hann sonur minn, og eg get ómögulega fengið það af mér, að sleppa hendi af honum.” Skyldi Guð ekki hugsa líkt og þetta um okkur? Skyldi það ekki vera ástæðan til þess, að hann kemur enn á þessum jólum til mín og þín og segir við okkur, syndugir eins og við erum: “Son minn, gef mér hjarta þitt!” Viltu gefa honum þá gjöff Viltu endurnýja við hann kærleikssáttmálann gamla á þessari hátíðf Vilt þú að nýju leggja sjálfan þig í hönd hans, til þess að hann haldi áfram góða verkinu, sem hann hefir byrjað með þérf Vilt þú reyna að láta þér þykja enn vænna um iiann en áður og gefa vilja lians og náð meira vald yfir þérf Vilt þú gjöra nýja tilraun til þess að rýma með hjálp hans burtu úr lífi þínu þeim syndum, sem hafa staðið trúarlífi þínu fyrir þrifumf — Það er kristið jólahald, að gefa Guði hjarta sitt, að láta elskuna miklu, sem birtist í jólaundrinu, verða til þess að vekja hjá okkur enn innilegri elsku til lrans, sem elskaði okkur svo iieitt að fyrra bragði. Ef þú lieldur þannig jólahátiðina, þá ert þú sæll, livað sem ytri lífskjörunum líður. Því þá fær þú að reyna þann unað, sem mestur er á himni og jörðu: að tengjast óslítanlegum böndum við hjarta Guðs og fær- ast æ nær honum, svo að þú þekldr og skilur hann æ betur og finnur til þess með æ sterkari vissu, að líf þitt stefnir að æðsta marki, að fullkominni sameiningu kærleikans við alsælan Drottin dýrðarinnar. “Ó, lát mig hvíld ei fyrri fá, en fengið hef’ eg vissu þá,

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.