Sameiningin - 01.12.1916, Qupperneq 13
299
og fyr en svara sér þú mig:
þú sér eg elska þig.”
En jólin tákna líka höllun til starfs. Þegar engill-
inn flutti hirðunum fagnaðarboðkapinn mikla, þá sagði
hann: ‘ ‘ Eg boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun
öllum lýðnum.”
Öllum mönnum, öllum þjóðum jarðarinnar er sá
dýrlegi boðskapur ætlaður. Guð hefir gefið öllum
mönnum frelsara, og það er vilji hans, að öllum gefist
kostur á að þekkja og þiggja þá kærleiksgjöf.
En það er síður en svo, að það sé orðið enn. Enn
eru ókristnaðar heiðingja-millíónir. Og enn eru til heið-
ingjar innan kristninnar. Guði er ant um, að allir fái
að vita um jólagjöfina hans og að þeim verði sýnt fram
á það með öllu móti, hvers virði hún er. Og hann biður
vini sína fyrir þau skilaboð.
Jólin minna okkur á það, live yfirgripsmikill kær-
leikur Guðs er; að hann vill faðma að sér öll mannanna
börn um allar álfur heims. Og þess vegna er þetta einn
þátturinn í boðskap jólanna til þín, — þessi spurning:
Vilt þú flytja skilaboð kærleikans guðlega til mann-
anna?
Það má flytja þau skilaboð víðar en í prédikunar-
stólum kirknanna; væru þau við þann stað bundin, þá
væru þau skemra á veg komin. Páll flutti þau í fanga-
klefanum í Filippí. Pétur í húsi Kornelíusar hundraðs-
höfðingjans rómverska í Sesareu. David Livingstone í
skógum Afríku. William Carey í þorpum Indlands.
Wilfrid Grenfell í sjómannaskýlunum á freðnum Labra-
dorströndum. Florence Nightingale í sjúkrahúsunum.
William Booth í spillingarbælum og á gatnamótum
Lundúnaborgar. Faðir þinn flutti þér þau á æsku-
stöðvunum, þar sem þú sást fyrst kveikt á jólaljósum;
og móðir þrn andaði þeim í eyra þér þegar þú hvíldist
upp við brjóstið hennar hlýja.
Vilt þú taka þátt í því veglega starfi ? Vilt þú beita
áhrifum þínum til þess að sannfæra þá sem með þér lifa
um þörf þeirra fyrir trúarsamlíf við frelsarann Jesiím