Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1916, Side 27

Sameiningin - 01.12.1916, Side 27
313 RADDIR FRÁ ALMENNINGI Deild þessa annast séra G. Gnttormsson. Umræður um ritninguna. í síöasta blaði stakk unmsjónarmaöur deildar þessarar upp á því, aö taka skyldi eina og eina bók úr heilagri ritning til alþýðlegs lUmtals hér í “Röddunum”; að þeir, sem þessu vildi sinna, læsi þá bók gaumgæfilega og sendi svo blaðinu annað hvort athugasemdir eða spurningar út af þeim lestri. Ritið, sem stungið var upp á til að byrja með, v'ar fyrra bréf Páls til Þessaloníkumanna. Þessi orð eru rituð áður en Nóvemberblaðið er komið út á meðal almennings— af því jólablaðið verður að vera fullprentað snemma í mánuðin- um—og hefir því enginn lesandi haft tækifæri til að verða við til- mælunum. En undirtektir einhverjar verða sjálfsagt komnar í tæka tíð fyrir næsta blað. Þá byrja umræðurnar fyrir alvöru, ef Guð lofar. Efni ritningarinnar er eins fjölbreytt eins og auðæfi náttúrunn- ar. Það er sagt, að náttúran geymi í fórum sínum lækning við hverju likamlegu meini. Hvort sem svo er eða ekki, þá er hitt víst, að í heilagri ritning má finna sérhvað það, sem trúarlíf vort þarf helzt með í það eða það skiftið. “Sérhver ritning, sem innblásin er af Guði, er og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréitingar, til mentunar i réttlæti”—og þá ekki síður huggunar og trúarstyrk- ingar. Nokkur ráð um notkun Guðs orðs látum vér hér fylgja. Þau eru tekin úr blaðinu “Lutheran”. Af þeim sýnishornum, sem þar eru nefnd, geta menn gert sér dálitla hugmynd um þann afar- fjölbreytilega auð andans, sem ritningini á yfir að ráða. Það er mjög gott , að skrifa leiðbeiningarnar upp, og geyma i biblíunni sinni. Þær eru á þessa leið: Þegar þú ert sorgmæddur, þá lestu Jóh. 14. Þegar mennimir bregðast þér, þá lestu Sálm. 27. Hafir þú syndgað, þá lestu Sálm. 51. Sértu hgsjúkur, þá lestu Matt. 6, 19—34. Ætlir þú til kirkju, þá lestu Sálm. 84. Sértu í hsáka staddur, þá lestu Sálm. 91. Þegar illa liggur á þér, þá lestu Sálm. 34. Þegar þér finst Guð vera langt í burtu, þá lestu Sálm. 139. Hafir þú mist rnóðinn, þá lestu Jes. 40. Sé líf þitt ófrjótt, ávaxtarlaust, þá lestu Jóh. 15.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.