Sameiningin - 01.12.1916, Page 29
315
lega löngnm, sem lærdómsríkastir hafa þótt í bréfinu. Annnar
þeirra er “hiröisspegillinn” svo nefndi i öðrum kapítulanum—fyrstu
tólf versins, þar sem er lýsing Páls á trúboSi og sálgæzlustarfi
þeirra félaga i Þessaloníku. Hvar er sá kennimaður, sem getur
lesiS þann kafla kinnroSalaust? Hitt er upprisu-kaflinn í fjórSa
kapítula bréfsins, huggunarorS postulans til syrgjandi bræSra í þess-
um söfnuSi hans. En meira um þecta í næsta blaSi.
KIRKJULEGAR FRÉTTIR.
Deild þessa annast séra Kristinn K. ólafsson.
Concordia College í Moorehead, Minn., hélt 25 ára júbíleum þann
31. Okt. Skólinn tilheyrir SameinuSu kirkjunni norsku, og á eignir
er virtar eru á 200,000 dollars'. Skólann sækja um 350 nemendur.
------o-------
Passavant-spítalann í Pittsburg, Pa., á aS stækka aS miklum
mun. Hefir nýlega veriS til þess safnaS um 100,000 dollars. Þessi
spítali er ein af þeim fjölmörgu líknarstofnunum, er dr. Passavant
kom á fót, og eru þær flestar í svipaSri framför. Líka var hann,
eins og kunnugt er, hinn eiginlegi stofnandi prestaskólans lúterska í
Chicago. Auk þess var hann bæSi prestur og ritstjóri, sístarfandi
aS eflingu GuSs ríkis á öllum svæSum. Mörgum af samtíSarmönn-
um hans fanst hann takast of mikiS í fang, en tíminn hefir leitt í ljós,
aS hann sá betur en þeir hvaS henti, og aS starf hans í Drotni ber
aukinn avöxt meS ári hverju. Á slíkum trúarhetjum er kirkjunni
einlægt þörf, því einungis í þeirra anda verSur starf þeirra rekiS
réttilega.
Fimm ríki samþyktu vínbann viS kosningarnar nýafstöSnu í
Bandaríkjunum. Einlægt þokast í áttina.
------O-------
Meþodistakirkjan í Bandaríkjunum hefir safnaS sem næst þrem-
ur milíónum dollars til heiSingjatrúboSs á liSnu ári.
------O-------
Þann 31. Okt. síSastl. andaSist hin alkunni Pastor Rwssell, sem
Russelism er nefndur eftir. Hann útbreiddi kenningu sína meS frá-
bærum dugnaSi, og náSi saman ógrynni af fé, sem einkum var variS
til aS útbreiSa rit hans. Sérkreddur hans voru margar, svo sem sál-
arsvefninn, alger dauSi þeirra, er forherSa sig gegn áhrifum fagn-
aSarerindisins, o.s.frv. Má líkja Pastor Russell viS Dowie, Jósef
Smith, Mrs. Eddy og fl., hv’aS leiStoga hæfileika snertir. En hætt
er við, aS heldur fari flokk hans hnignandi nú, er hans missir viS,
því enginn efi er á því, aS hann sjálfur var aSal drif-fjöSrin.