Fréttablaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 10
2. maí 2011 MÁNUDAGUR10
HVALVEIÐAR Hrefnuveiðimenn hafa
veitt fyrstu hrefnur sumarsins og
var þeim landað í Hafnarfjarðar-
höfn á laugardagskvöld. Vinnsla
kjötsins er komin á fullt og stefnt
er að því að kjötið verði komið í
verslanir í dag. Dýrin voru frekar
mögur, en kjötið fallegt að sjá.
Gunnar Bergmann Jónsson,
framkvæmdastjóri hrefnuveiði-
manna, segir að Hrafnreyður KÓ
100 hafi haldið til veiða fyrir viku
í Faxaflóa í leiðindaveðri. Þá sáust
nokkrar hrefnur sem hurfu fljótt
í ölduna. Veðrið var öllu betra á
laugardaginn sem skilaði tveimur
dýrum.
Hrefnuveiðimenn mega veiða
216 dýr á vertíðinni, auk fimmt-
ungs af óveiddum dýrum síðustu
vertíðar. „Við munum ekki taka
allan þennan kvóta, í fyrra veidd-
ust sextíu dýr og við vorum með
fimmtíu af þeim,“ segir Gunnar
sem segir að kjötið frá síðustu ver-
tíð hafi klárast nýlega.
Sagt var frá því í fréttum um
helgina að hrefnuveiðimenn hafi
veitt dýr innan svæðis þar sem
hvalaskoðun er aðeins leyfð. Þetta
er byggt á misskilningi segir
Gunnar en hins vegar hafi verk-
un hrefnu staðið yfir. Við vorum á
línunni við að verka dýrið, sem var
athugunarleysi sem ekki verður
endurtekið. Hins vegar var dýrið
veitt fyrir utan línu. Það kom líka
tilkynning um að við höfum verið
staðnir að meintum ólöglegum
veiðum, sem er rangt. Hins vegar
hafði Gæslan ekki fengið upplýs-
ingar um veiðileyfið okkar frá
Fiskistofu, sem var hins vegar um
borð í skipinu,“ segir Gunnar. - shá
572 3400
Bolur fylgir með
öllum gallabuxum.
Firði, Hafnarfirði • Sími 572 3400
VIÐSKIPTI Marel mun á næstu fimm
árum leggja áherslu á innri vöxt
fyrirtækisins, þeim tækifærum
sem eru á markaðnum, stöðugri
nýsköpun og markaðssetningu
á nýjum matvælavinnsluvélum.
Ekki er útilokað að annað fyrir-
tæki verði keypt ef það styður við
áætlanir Marels, að sögn Theos
Hoen, forstjóra. Ekki yrði um stór-
ar yfirtökur að ræða.
Stjórnendur Marels sömdu um
kaup á matvælavinnsluvélahluta
hollensku iðnsamsteypunnar Stork
í nóvember 2007 og gengu kaupin
í gegn árið eftir. Kaupverð nam
415 milljónum evra, um 38 millj-
örðum króna á þávirði. Þetta voru
síðustu fyrirtækjakaup Marels.
Theo Hoen fór yfir stöðu fyrir-
tækisins á uppgjörsfundi Marels
fyrir helgi. Þar kom fram að stað-
an hefði batnað síðustu misserin.
Mest er pantað af vélum til
vinnslu á kjúklingakjöti í Kína,
Suður- og Mið-Ameríku, Evrópu
og Rússlandi en kjötvinnsluvélum
í Bandaríkjunum. Þá er evrópski
markaðurinn að taka við sér.
Hoen sagði ljóst að vöruverð
væri að hækka um heim allan. Það
gæti komið Marel til góða enda
ættu matvælaframleiðendur erf-
itt með að keyra verðhækkanir í
gegnum alla virðiskeðjuna niður
til neytenda. Í stað þessa fjár-
festi þeir í vélbúnaði sem dragi úr
rekstrarkostnaði. - jab
Forstjóri Marels segir markaðina vera að taka við sér:
Útilokar ekki yfirtöku
á erlendu iðnfyrirtæki
SVEITARSTJÓRNARMÁL Ný stefnumótun Orku-
veitu Húsavíkur (OH) gerir ráð fyrir að
Orkuveitan verði opinbert hlutafélag, auk
þess sem veitu rekstur verði skilgreindur
sem kjarnastarfsemi veitunnar. Stefnumót-
unin var samþykkt á aðalfundi OH í gær.
„Hlutverk Orkuveitu Húsavíkur er þannig
að veita íbúum og fyrirtækjum í Þingeyjar-
sýslum aðgang að heitu og köldu vatni, auk
fráveitu. Önnur starfsemi en sú sem að
framan er getið skal komið fyrir í dóttur-
eða hlutdeildarfélögum,“ segir á vef OH.
Eftir skatta var 870 milljóna króna hagn-
aður á rekstri OH, en þar koma til áhrif af
sölu eignarhluta félagsins í Orkustöðinni á
Þeistareykjum. Eignir OH voru um síðustu
áramót bókfærðar á 1.682 milljónir króna,
en skuldir 1.003 milljónir. Eiginfjárhlutfall
OH er 40,4 prósent, en var neikvætt um 13
prósent í byrjun árs 2010.
Fram kemur að rekstrartekjur OH hafi
í fyrra numið 191,5 milljónum króna, en
rekstrargjöld 100,9 milljónum. „Hreint
veltufé frá rekstri jókst um 31,5 prósent á
milli áranna 2009 og 2010, fór úr 79 milljón-
um króna í 104 milljónir.“ - óká
Viðsnúningur á eiginfjárstöðu Orkuveitu Húsavíkur eftir sölu Þeistareykja:
Orkuveita Húsavíkur verði opinbert hlutafélag
VIÐ HÖFUÐSTÖÐVARNAR Guðrún Erla Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri OH.
ALMANNAVARNIR Æfð var móttaka
tuttugu slasaðra einstaklinga og
fyrstu viðbrögð heilbrigðisþjón-
ustu á umfangsmikilli æfingu á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fyrir helgi.
Allir starfsmenn stofnunarinn-
ar fengu boð um slys og um 150
starfsmenn tóku þátt í æfingunni,
auk starfsfólks Neyðarlínu og
almannavarnadeildar Ríkislög-
reglustjóra.
Auk æfingarinnar funduðu
samráðshópar áfallahjálpar í
umdæmum lögreglunnar á Sel-
fossi, Hvolsvelli og í Vestmanna-
eyjum og fulltrúar samráðshóps
áfallahjálpar í Samhæfingarstöð-
inni. Endað var á „skrifborðsæf-
ingu“ þar sem æfð var samhæf-
ing áfallahjálpar vegna hópslyss í
umdæmi Selfosslögreglunnar. - óká
Fundað var um áfallahjálp:
150 tóku þátt í
hópslysaæfingu
Á LÍNUNNI Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna, segir
ekki rétt að þeir hafi veitt hrefnu á ólöglegu svæði á laugardaginn. Dýrið hafi hins
vegar verið verkað á línunni eins og hann orðar það. Það hafi verið gert fyrir mistök
og verði ekki endurtekið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HRAFNREYÐUR Hvalveiðibáturinn er
gerður út frá Hafnarfirði.
Hrefnuveiðimenn hófu veiðar í síðustu viku:
Fyrstu dýrin á land
1. MAÍ Í ST. PÉTURSBORG Stuðnings-
maður rússneska Kommúnistaflokks-
ins heldur á kröfuspjaldi með mynd af
Jósep Stalín. AFP/NORDICPHOTOS