Fréttablaðið - 02.05.2011, Side 50
2. maí 2011 MÁNUDAGUR
VILTU VINN
A
PS3
+MOVE HE
ROES
+MOVE KIT
SENDU SMS ESL PS3
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU OG
SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA
SMS SKEYTIÐ ESL A, B EÐA C Á
NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
GEGGJAÐIR
AUKAVINNINGAR!
Enska úrvalsdeildin:
MAN. CITY - WEST HAM 2-1
1-0 Nigel de Jong (9.), 2-0 Lars Jacobsen, sjm
(15.), 2-1 Demba Ba (32.)
ARSENAL - MAN. UTD 1-0
1-0 Aaron Ramsey (55.)
BIRMINGHAM - WOLVES 1-1
0-1 Steven Fletcher (6.), 1-1 Sebastian Larsson
(26.).
LIVERPOOL - NEWCASTLE UNITED 3-0
1-0 Maxi Rodriguez (9.), 2-0 Dirk Kuyt (58.), 3-0
Luis Suarez (64.)
BLACKBURN - BOLTON 1-0
1-0 Martin Olsson (19.).
CHELSEA - TOTTENHAM HOTSPUR 2-1
0-1 Sandro (18.), 1-1 Frank Lampard (44.), 2-1
Salomon Kalou (88.).
SUNDERLAND - FULHAM 0-3
0-1 Gael Kakuta (32.), 0-2 Simon Davies (60.),
0-3 Simon Davies (72.).
WEST BROMWICH ALBION - ASTON VILLA 2-1
1-1 Peter Odemwingie (59.), 2-1 Youssuf
Mulumbu (83.).
WIGAN ATHLETIC - EVERTON 1-1
1-0 Charles N’Zogbia (20.), 1-1 Leighton Baines
(77.)
STAÐAN:
Man. United 35 21 10 4 71-33 73
Chelsea 35 21 7 7 66-28 70
Arsenal 35 19 10 6 68-36 67
Man. City 34 18 8 8 53-31 62
Liverpool 35 16 7 12 54-39 55
Tottenham 34 14 13 7 50-43 55
Everton 35 11 15 9 48-43 48
Bolton 35 12 10 13 48-48 46
Fulham 35 10 15 10 43-36 45
Stoke City 35 12 7 16 43-43 43
WBA 35 11 10 14 51-65 43
Newcastle 35 10 11 14 49-51 41
Aston Villa 35 10 11 14 44-57 41
Sunderland 35 10 11 14 39-52 41
Birmingham 35 8 15 12 35-52 39
Blackburn 35 10 8 17 41-55 38
Blackpool 35 9 8 18 48-70 35
Wigan Athletic 35 7 14 14 35-58 35
Wolves 35 9 7 19 38-61 34
West Ham 35 7 11 17 40-63 32
ÚRSLIT
HANDBOLTI „Þetta var alveg rosa-
legt dæmi. Hreint út sagt svaka-
legur leikur. Þessi leikur á eftir að
fara í sögubækurnar,“ sagði kátur
þjálfari Rhein-Neckar Löwen,
Guðmundur Guðmundsson, við
Fréttablaðið en hans lið komst í
undanúrslit Meistaradeildar Evr-
ópu eftir ótrúlegan sigur, 26-35,
gegn franska liðinu Montpellier.
Montpellier vann fyrri leikinn
í Þýskalandi með tveggja marka
mun og leiddi í hálfleik í seinni
leiknum, 17-15. Síðari hálfleikur
hjá Löwen var síðan hreint út sagt
ótrúlegur því liðið vann hann 20-9.
„Við vorum ekki nógu góðir í
fyrri leiknum og mér fannst við
eiga mikið inni. Ég hafði ekki
miklar áhyggjur í hálfleik því ég
hafði alltaf á tilfinningunni að
þetta myndi koma hjá okkur og
við keyra yfir þá. Vörnin var frá-
bær í síðari hálfleik þar sem Guð-
jón Valur var í lykilhlutverki sem
framliggjandi maður í 5-1 vörn.
Það er svakalegt að fá bara 9 mörk
á sig í síðari hálfleik gegn svona
sterku liði á útivelli,“ sagði Guð-
mundur en það sauð upp úr í hús-
inu þegar reynt var að taka hljóð-
nemann af vallarþulnum sem var
að tala í tíma og ótíma.
Önnur lið sem komust í undan-
úrslit eru Ciudad Real, Hamburg
og Barcelona.
Kiel, lið Alfreðs Gíslasonar og
Arons Pálmarssonar, steinlá gegn
Barcelona, 33-36, á heimavelli
þar sem Barcelona var betri aðil-
inn allan tímann. Vonbrigðatíma-
bil Kiel heldur því áfram en liðið
tapaði einnig fyrri leiknum gegn
Barcelona á Spáni.
Úrslitahelgin fer fram í Köln í
lok mánaðarins.
- hbg
Löwen í undanúrslit eftir ótrúlegan síðari hálfleik:
Þessi leikur á eftir að
fara í sögubækurnar
SIGURREIFUR Guðmundur fagnaði ákaft
í leiknum um helgina.
NORDIC PHOTOS/BONGARTS
FÓTBOLTI Arsenal hleypti miklu lífi
í toppbaráttu ensku úrvalsdeildar-
innar í gær er það lagði Man. Utd
að velli, 1-0, á Emirates-vellinum.
Því miður kemur þessi sigur vænt-
anlega of seint fyrir Arsenal en
leikmenn Chelsea fögnuðu úrslit-
unum enda er Chelsea aðeins þrem
stigum á eftir Man. Utd núna.
Chelsea sækir síðan Man. Utd
heim næsta sunnudag. Vinni
Chels ea-leikinn kemst það í topp-
sæti deildarinnar en vinni United
er það komið langleiðina með að
vinna sinn nítjánda meistaratitil.
Það var Aaron Ramsey sem
skoraði eina mark leiksins á Emir-
ates í gær. Nokkuð sanngjörn
úrslit enda Arsenal ívið sterk-
ari aðilinn. Arsen al
hefði líka átt að fá
víti í fyrri hálfleik
er Nemanja Vidic
handlék bolt-
ann innan teigs
e n h a n n
slapp með
skrekkinn.
Það gerði
Arsenal líka
u nd i r lok
leiksins
þegar virtist
vera brotið
á Michael
Owen innan
teigs.
„Þetta er
of stór leikur
til þess að klikka
á svona atriðum,“
sagði Sir Alex Fergu-
son, stjóri Man.
Utd, fúll en hann
vildi fá víti.
„Vissulega
jafnaðist
þetta út
þar sem
þeir áttu
að fá víti.
Nú á Chelsea
góðan möguleika og
það gerist þegar svona
mistök eiga sér
stað. Við verðum samt tilbúnir
í slaginn gegn þeim um næstu
helgi.“
Chelsea skoraði tvö umdeild
mörk gegn Spurs. Fyrra mark-
ið, sem Frank Lampard skoraði,
átti aldrei að standa þar sem bolt-
inn fór ekki inn fyrir línuna. Það
viður kenndu allir eftir leik en
Lampard sagðist hafa átt það inni
að skora slíkt mark eftir að það
var tekið af honum mark á HM
þar sem boltinn fór langt inn
fyrir línuna. Síðara markið var
rangstöðumark. Það fellur því allt
með Chelsea þessa dagana.
„Við vorum heppnir. Við verðum
að vera heiðarlegir og viðurkenna
að mörkin voru ólögleg. Stundum
falla hlutirnir með manni og stund-
um ekki. Þannig er boltinn,“ sagði
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, en
hann tók undir þá skoðun Harry
Redknapp, stjóra Tottenham, að
tími væri kominn á að nýta tæknina
í boltanum. Þó svo þá hefði fyrra
mark Chelsea aldrei verið látið
standa. henry@frettabladid.is
Úrslitaleikur á Old Trafford
Man. Utd og Chelsea spila nánast hreinan úrslitaleik um enska meistaratitilinn
í Manchester um næstu helgi. Það féll allt með Chelsea um helgina. Man. Utd
tapaði á meðan Chelsea lagði Tottenham með tveimur umdeildum mörkum.
MARKIÐ SEM GLADDI CHELSEA Aaron Ramsey skoraði eina markið gegn Man.
Utd í gær. Stuðningsmenn Chelsea fögnuðu markinu ekki síður en stuðnings-
menn Arsenal. Á minni myndinni má sjá óðan stuðningsmann Chelsea fagna
með Frank Lampard en hann hljóp inn í völlinn til þess að fagna sigri.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES