Fréttablaðið - 02.05.2011, Síða 54
2. maí 2011 MÁNUDAGUR38SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Eins glatað og það hljómar er
ég forfallinn aðdáandi þáttanna
Desper ate Housewives sem hafa
verið í sjónvarpi lengi. Mér til
varnar er þetta það eina sem
ég hef þar sem ég er bara með
RÚV.
Lára Björg Björnsdóttir rithöfundur
„Ég vildi endilega gera eitthvað
sniðugt, fyrst ég var búinn að
ákveða að fara út og styðja lands-
liðið,“ segir Hjörvar Hermanns-
son. Hann hefur skipulagt stóra
tónleika með Retro Stefson og
Danna Deluxe í Álaborg hinn
18. júní, sama dag og íslenska
U-21 árs landsliðið í knattspyrnu
mætir Dönum í úrslitum Evrópu-
mótsins. „Það er rosalega mikil
spenna fyrir mótinu og marg-
ir hópar sem ætla að fara út og
hvetja landsliðið,“ segir Hjörv-
ar, sem sjálfur er mikill Bliki og
þekkir vel til strákanna í liðinu.
„Þetta eru flestallt guttar sem
maður hefur alist upp með og ég
held að þeir eigi eftir að slá í gegn
í keppninni.“
Ísland leikur í A-riðli Evrópumóts-
ins og er fyrsti leikurinn 11. júní
gegn Hvíta-Rússlandi. Síðasti leikur-
inn í riðlinum verður 18. júní í Ála-
borg. Ef Íslendingar vinna riðilinn
þá fara þeir í umspil um verðlauna-
sæti. Spurður að því hvort hann von-
ist til þess að landsliðsstrákarnir
sitji eftir í riðlinum til þess að kom-
ast á tónleikana, segir Hjörvar að
svo sé ekki. „Ég veit að þeir munu
mæta ef þeir tapa, en ég ætla samt
að vona að við séum frekar að fara
að fagna góðu gengi okkar manna
þetta kvöld.“ Miðasala á tónleikana
hefst á midi.is á morgun. - ka
Fótboltaáhugamaður heldur tónleika í Álaborg
ÍSLENDINGAR FJÖLMENNA TIL ÁLABORGAR Hjörvar Hermannsson stendur fyrir tón-
leikum með Retro Stefson og Danna Deluxe í Álaborg í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég ætla ekki að fara leka einu eða
neinu en get þó staðfest að ég á í
viðræðum við Stöð 2,“ segir hár-
greiðslumaðurinn Karl Berndsen
sem er hættur að stjórna þættinum
Nýtt útlit á Skjá einum.
Samkvæmt öruggum heimildum
Fréttablaðsins ætlar Karl þó ekki að
hverfa af skjánum fyrir fullt og allt
heldur hyggist hann byrja með sam-
bærilegan þátt á Stöð 2. Skjár einn
hyggst hins vegar ekki leggja sína
þáttaröð á hilluna þrátt fyrir brott-
hvarf Karls því Kristjana Thors
Brynjólfsdóttir, dagskrárstjóri
Skjás eins, sagði í samtali við Vísi.is
að þau hygðust finna arftaka Karls
og halda uppteknum hætti. „Sjón-
varpsþáttaröðin mun að sjálfsögðu
halda áfram í haust en að þessu
sinni með breyttum áherslum.“
Karl var ákaflega loðinn í sínum
svörum, sagðist ætla að einbeita sér
að vinnu sinni við Beauty Barinn í
Kópavogi. Samstarf hans og Skjás
eins hefði einfaldlega verið komið á
endastöð. „Við vorum búin að gera
45 þætti og mér fannst þetta bara
verið búið. Það veit hins vegar eng-
inn hvað framtíðin ber í skauti sér
en það er mjög ólíklegt að ég geri
ekki neitt. Það mun hins vegar
ekkert gerast í þessu fyrr en eftir
jólin.“ - fgg
Karl Berndsen á tímamótum
TIL STÖÐVAR 2 Karl Berndsen hefur
gengið til liðs við Stöð 2 og hyggst
stjórna nýjum þætti á vegum stöðvar-
innar. Skjár einn ætlar engu að síður að
halda áfram með þættina Nýtt útlit.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tökulið frá hollenska kvikmynda-
fyrirtækinu Eyeworks er statt hér
á landi til að taka upp fyrstu hol-
lensku þrívíddar-kvikmyndina,
Nova Zembla. Um níutíu íslenskir
og hollenskir kvikmyndagerðar-
menn koma að tökunum en það er
framleiðslufyrirtækið Saga Film
sem hefur veg og vanda af íslenska
hlutanum. Verkefni af þessari
stærðargráðu skila yfirleitt tugum
milljóna inn til landsins og getur
þar að auki haft veruleg áhrif á
ferðamannastraum frá viðkom-
andi landi, ekki síst ef myndin
slær í gegn heima fyrir.
Tökur fara meðal annars fram á
Langjökli en um er að ræða mjög
stórt verkefni. Kristinn Þórðar-
son, framleiðandi hjá Saga Film,
segir í samtali við Fréttablaðið
að Icesave-deilan víðfræga hafi
ekki einu sinni verið rædd, einn
eða tveir hafi spurt um atkvæða-
greiðsluna en síðan hafi menn ein-
beitt sér að kvikmyndagerðinni.
„Það er enginn að velta sér upp úr
þessu, það eru allir svo uppteknir.“
Nova Zembla byggir á sannri
sögu og segir frá skipi sem hol-
lenska konungsfjölskyldan sendi
norður fyrir Rússland fyrir fjór-
um öldum til að finna skipaleiðina
til Indlands. Skipsverjarnir lentu
í miklum hremmingum í baráttu
sinni við óblíð náttúruöflin og
myndin fjallar um sögu þeirra.
Alls eru tólf hollenskir leikarar
staddir hér á landi, þar á meðal
aðalleikarinn Robert de Hoog,
sem er einn sá vinsælasti í föður-
landi sínu. Því miður fyrir íslensk-
an karlpening mun hin aðalstjarna
myndarinnar ekki koma til lands-
ins, hollenska fyrirsætan Doutzen
Kroes, en hún er ein af hinum svo-
kölluðu englum Victoria‘s Secret-
undirfataframleiðandans.
Gerð kvikmyndarinnar hefur
vakið mikla athygli í Hollandi
enda í fyrsta skipti sem Hollend-
ingar reyna fyrir sér með þrí-
víddartækninni. Kristinn er bjart-
sýnn á að allt eigi eftir að ganga
snurðulaust fyrir sig. „Þetta verð-
ur örugglega alveg heljarinnar
ævintýri.“ freyrgigja@frettabladid.is
KRISTINN ÞÓRÐARSON: ICESAVE-DEILAN LÖGÐ TIL HLIÐAR
Hollendingar taka upp
þrívíddarmynd á Íslandi
HOLLENSKAR STÓRSTJÖRNUR Robert de Hoog og Doutzen Kroes, fyrirsæta hjá Victoria‘s Secret, ásamt leikstjóranum Reinout
Oerlemans á blaðamannafundi þegar tilkynnt var um gerð myndarinnar Nova Zembla. Þetta er fyrsta þrívíddarkvikmynd Hollend-
inga sem virðast ekki erfa Icesave-málið við íslenska kvikmyndagerð eða náttúru. NORDICPHOTOS/AFP
Valdimar Guðmundsson, söngv-
ari hljómsveitarinnar Valdimar,
og Björgvin Ívar Baldursson, upp-
tökustjóri hjá Geimsteini og liðs-
maður Lifunar, gefa saman út
plötu í sumar.
„Þetta er svona kærustuparatón-
list. Ég tók upp Valdimars-plötuna
og síðan á einhverju fylleríi ákváð-
um við að semja saman lög. Dag-
inn eftir var það enn þá góð hug-
mynd,“ segir Björgvin Ívar. „Við
hittumst þrisvar og náðum að
koma með hugmyndir að yfir tutt-
ugu lögum. Það gekk svo fáránlega
vel að við ákváðum að gera plötu.“
Valdimar er einnig mjög spennt-
ur fyrir plötunni. „Það er alltaf
gaman að gera eitthvað nýtt. Þetta
dæmi verður svolítið rólegra en ég
hef gert. Ég hef alltaf verið hrifinn
af þessum kósý tónum,“ segir hann
og líkir samstarfi þeirra Björgvins
við hljómsveitina Bon Iver.
Fyrsta plata hljómsveitarinn-
ar Valdimars, Undraland, kom út
fyrir síðustu jól og hefur selst í
hátt í tvö þúsund eintökum. Hún
er um þessar mundir í efsta sæt-
inu á sölusíðunum Tonlist.is og
Gogoyoko.com, auk þess sem lagið
Yfirgefinn er vinsælast á Tonlist.
is. „Ég bjóst ekki alveg við svona
miklum vinsældum,“ segir Valdi-
mar, ánægður með lífið og til-
veruna.
Fram undan hjá hljómsveitinni
er spilamennska á alþjóðlegri
tónlistarhátíð stúdenta í bænum
Greifswald í Þýskalandi um miðj-
an maí. Það verða fyrstu alvöru
tónleikar sveitarinnar erlendis.
„Ég hlakka mikið til. Þetta verður
svakalega gaman,“ segir hann og
útilokar ekki nýja Valdimars-plötu
á næsta ári. - fb
Kærustparatónlist
sem varð til á fylleríi
NÝTT EFNI Valdimar Guðmundsson og Björgvin Ívar Baldursson eru að undirbúa sína
fyrstu plötu saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
www.listahatid.is
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA!