Fréttablaðið - 09.05.2011, Side 2
9. maí 2011 MÁNUDAGUR2
Hreimur, voruð þið svona
Makedónalegir?
„Nei, við vorum þarna í mestu
makindum, alveg makalausir.“
Hreimur Örn Heimisson og félagar hans
í Vinum Sjonna slógu í gegn í partíi hjá
Makedóníumönnum í Düsseldorf.
EFNAHAGSMÁL Ríkið myndi verða af
um 25 milljarða króna tekjum að
lágmarki yrðu skattleysismörkin
hækkuð úr 118 þúsundum króna á
mánuði í 150 þúsund. Þetta kemur
fram í svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar.
Samdráttur í tekjum ríkisins
yrði enn meiri yrðu skattleysis-
mörkin hækkuð í 200 þúsund krón-
ur, eða á sjöunda tug milljarða,
samkvæmt áætlun fjármálaráðu-
neytisins.
Í fyrirspurn Ólínu er einn-
ig óskað eftir mati á því hversu
miklar tekjur ríkissjóður hefði af
því að bæta við skattþrepum.
Í svari ráðherrans kemur fram
að tekjur ríkisins myndu aukast um
1,2 milljarða króna yrði 55 prósenta
skattur lagður á mánaðartekjur yfir
1,2 milljónum króna og 65 prósent á
tekjur yfir tveimur milljónum.
Þar segir enn fremur að tekjur
ríkisins gætu aukist um 650 millj-
ónir króna yrði 55 prósenta skattur
lagður á tekjur yfir tveimur millj-
ónum króna og 70 prósenta skatt-
ur á tekjur yfir þremur milljónum
króna.
Í svarinu kemur fram að á síð-
asta ári hafi 654 einstaklingar verið
með mánaðartekjur yfir 1,2 millj-
ónum króna á mánuði. Þar af höfðu
126 tekjur yfir tveimur milljónum
króna. - bj
Hækkun skattleysismarka í 150 þúsund myndi draga verulega úr tekjum ríkisins:
Þýddi 25 milljarða tekjulækkun
ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR Ólína vill vita
hvaða tekjur fylgdu fleiri skattþrepum.
KAÍRÓ, AP Tólf létust og rúmlega 200
eru sárir eftir átök milli hópa mús-
lima og kopta, kristinna Egypta, í
miðborg Kaíró í gær.
Mörg hundruð manna tókust á við
bakka Nílar í kjölfar þess að hópur
múslima bar eld að kirkju kopta og
íbúðarhúsi í eigu kristinna.
Koptar eru um það bil tíu pró-
sent egypsku þjóðarinnar, en frétt-
ir herma að ófriðinn að þessu sinni
megi rekja til orðróms um að koptar
hafi rænt kristinni konu sem hafi
gifst múslima og ætlað að snúast
til íslam.
Deilur milli trúarhópa í landinu
hafa magnast undanfarið og virð-
ist sem samstaðan sem einkenndi
upprisuna gegn Hosni Mubarak í
febrúar sé að fjara út. Egypski her-
inn vísaði fólki frá átaka svæðinu en
greip ekki inn í.
Múslimaklerkar fordæmdu
ofbeldið og vöruðu við vaxandi
spennu í landinu. „Þessir atburðir
þjóna hvorki hagsmunum mús-
lima né kristinna,“ sagði Ahmed
Al Tayeeb, bænaklerkur al-Azhar
moskunnar, í samtali við fjölmiðla.
190 manns voru handteknir í
kjölfar aðfararinnar að kirkjunni
og munu verða saksóttir fyrir her-
dómstólum. - þj
Hörð átök brutust út milli múslima og kristinna í Kaíró í Egyptalandi:
Mannskæð átök eftir kirkjubruna
HÖRÐ ÁTÖK Strangtrúuðum múslimum og kristnum Egyptum laust saman í gær eftir
að aðför var gerð að kirkju í Kaíró. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kisa komst hvergi
Slökkviliðsmenn sóttu kött upp á þak
húss í miðborginni á laugardagskvöld.
Þá var kveikt í bekk í Elliðaárdalnum
og var slökkviliðið kvatt á vettvang til
þess að slökkva eldinn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Bílvelta á Þingvallavegi
Einn slasaðist lítilsháttar þegar bíll valt
á Þingvallavegi um kaffileytið á laugar-
dag. Sjúkralið var sent á vettvang til
þess að hlúa að hinum slasaða.
LÖGREGLAN Kona höfuðkúpubrotn-
aði þegar hún féll niður tröppur
húss í Biskupstungum aðfaranótt
sunnudags. Konan var flutt til
Reykjavíkur og liggur á gjör-
gæsludeild Landspítalans. Engin
vitni voru að slysinu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti slasaðan mann að Skjald-
breið á laugardagskvöld. Maður-
inn hafði ekið vélsleða fram
af hengju. Hann slasaðist ekki
alvarlega. - sm
Liggur á gjörgæsludeild:
Kona höfuð-
kúpubrotnaði
LÖGREGLUMÁL Kona sem kært
hefur tvo menn fyrir nauðgun
hefur flúið heimili sitt í kjölfar
hótana í garð hennar og annarra
fjölskyldumeðlima. Hótanirnar
koma í kjölfar þess að maður
var handtekinn og úrskurðaður
í gæsluvarðhald á á grundvelli
almannahagsmuna.
Í fréttatíma RÚV í gær kom
fram að maðurinn sem nú situr í
varðhaldi væri meðlimur í glæpa-
genginu Semper Fi. Konan telur
sig hafa ríka ástæðu til að óttast
að félagar mannsins vinni henni
eða fólki nákomnu henni mein þó
að maðurinn sitji í varðhaldi.
Kærði tvo fyrir nauðgun:
Flúði heimilið
vegna hótana
VEÐUR Sumarið hóf innreið sína
af alvöru um helgina þar sem sól
og hiti lék við fólk víðast hvar um
landið.
Hitinn náði mest rúmum átján
gráðum, á Þingvöllum og í Skafta-
felli, en því miður gera veðurfræð-
ingar ráð fyrir kólnandi veðri í lok
vikunnar.
Í nótt var gert ráð fyrir skúr-
um og rigningu um allt land í dag,
að sögn Einars Magnúss Einars-
sonar, veðurfræðings á Veðurstofu
Íslands.
Einar væntir umskipta á mið-
vikudag þegar snýst í norðurátt.
„Það verður býsna svalt, og hit-
inn fer allt niður að frostmarki á
föstudag og laugardag. Þá gæti
jafnvel orðið slydda fyrir norðan.“
- þj
Sólin lék við landann
Landsmenn fögnuðu fyrstu sumarhelginni í sól og hita um allt land. Útlit er þó
fyrir kólnandi veður eftir því sem líður á vikuna, jafnvel slyddu norðanlands.
SIGLT Í SÓLINNI Þessir frísku ræðarar nutu sín á Elliðavatni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MEÐ ÞRJÁ TIL REIÐAR Hestamenn og -konur tóku veðrinu fagnandi eins og aðrir
landsmenn.
FÓLK Fólk hefur að undanförnu
komið saman víða um Bandaríkin
og Kanada í svonefndum „gálu-
göngum“ til þess að mótmæla
orðum sem kanadískur lögreglu-
maður lét falla um fórnarlömb
nauðgana. Lögreglumaðurinn
ráðlagði konum að klæða sig ekki
eins og gálur ef þær vilju forðast
að lenda í klóm kynferðisbrota-
manna.
Að sögn skipuleggjenda göng-
unnar er henni ætlað að vekja
athygli á því vandamáli að fórnar-
lömb kynferðisbrot eru oft gerð
ábyrgð í stað árásarmannins. - sm
Gálugöngur haldnar víða:
Vekja athygli á
nauðgunum
MÓTMÆLI Svonefndar gálugöngur eru
farnar víða til að vekja athygli á því
vandamáli sem nauðganir eru.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI SP fjármögnun og þrota-
bú Avant munu sameinast Lands-
bankanum. Kristján Kristjánsson,
upplýsingafulltrúi Landsbankans,
segir að gert sé ráð fyrir að sam-
eininginni ljúki á haustmánuðum.
Starfsfólki var tilkynnt um sam-
eininguna á föstudag. Enginn mun
missa vinnuna að sögn Kristjáns.
Landsbankinn á fyrirtækin,
svo ekki er um yfirtöku að ræða
heldur verið að færa reksturinn
undir Landsbankann. Fyrirtækin
veittu aðallega lán til bílakaupa.
- bj
Lánafyrirtæki sameinast:
SP og Avant til
Landsbankans
HEILBRIGÐISMÁL Lifðu Lífinu heitir
nýtt félag sem hefur að markmiði
að vinna með fólki sem hefur
greinst ofvirkni og athyglisbrest,
ADHD.
Félagið gerði á föstudag sam-
komulag við Norðlingaskóla sem
felur í sér að haldin verða nám-
skeið um hvernig laga megi vinnu-
umhverfið í bekkjum þar sem er
að finna börn og unglinga með
ADHD. Lifðu lífinu verður með
opið hús að Suðurlandsbraut 6 á
morgun. Þar mun félagið kynna
starfsemi sína frekar. - sm
Nýr félagsskapur stofnaður:
Vinna með
ADHD í skóla
SPURNING DAGSINS
fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is
Við lífrænt