Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2011, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 09.05.2011, Qupperneq 8
9. maí 2011 MÁNUDAGUR8 F í t o n / S Í A Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS meðal félagsmanna um nýgerðan kjarasamning VR og SA hefst miðvikudaginn 11. maí kl. 9:00. Nánari upplýsingar um samninginn og atkvæðagreiðsluna á heimasíðu VR, www.vr.is Kjörstjórn VR Rafræn allsherjar- atkvæðagreiðsla SAMFÉLAGSMÁL Framkvæmdir við endurbætur á húsakynnum Kvennadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss hefjast á næstu vikum. Landssöfnun Lífs, styrktarfélags kvenna- deildarinnar, þar sem söfnuðust rúmar 62 milljónir, gera fram- kvæmdir þessar mögulegar. Í fyrsta áfanga verður ráðist í gagngerar endurbætur á með- göngu- og sængurkvennadeild. Rannveig Rúnarsdóttir yfir- ljósmóðir segir í tilkynningu að með þessu sé tekið mjög mikil- vægt skref. „Það er framar björtustu vonum að þetta verði að veruleika í haust“. - þj Kvennadeildin endurbætt: Framkvæmdir hefjast brátt DANMÖRK, AP Búast má við að kvikasilfursmengun aukist um 25 prósent til ársins 2020, ef ekkert verður að gert. Hvítabirnir, hvalir og selir á norðurslóðum eru í hvað mestri hættu vegna þessa. Meðal annars er vitað að of mikið kvika- silfur getur raskað efnajafnvægi í heila hvítabjarna, sem hefur áhrif á alla hegðun dýranna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu starfshóps Norðurskautsráðsins um vöktun og greiningu á norðurslóðum. Starfshópurinn hélt á dögunum ráðstefnu í Danmörku þar sem saman komu um 400 vísindamenn til þess að spá í þróun mála, meðal annars með hliðsjón af hlýnun jarðar og mengun í náttúrunni. „Sérstakar áhyggjur vekur að kvikasilfursmagn heldur áfram að aukast í sumum dýrategundum á stórum svæðum á norðurslóðum,“ segir jafnframt í skýrslu starfs- hópsins. Þá kemur fram að hlýnun jarð- ar geti gert kvikasilfursmengun í hafi á norðurslóðum alvarlegri en ella. Þegar sífreri fer úr jörðu leysist úr læðingi kvikasilfur sem hefur verið fast í freranum í þús- undir ára. Einnig getur hlýnun jarðar ýtt undir efnaferli sem gera efnin hættulegri en annars væri. Áhrifin eru þó misjöfn eftir svæðum. Til dæmis eru hvíta- birnir á austurströnd Grænlands í meiri hættu því bráðnun íss auð- veldar þeim að komast í sel, sem er með mikið magn af kvikasilfri í líkamanum. Á Svalbarða getur bráðnun íss hins vegar orðið til þess að birnirnir komist ekki frá landi og verði því að láta sér nægja kvikasilfurssnauðari jurtir og dýr þar á eyjunum. Kvikasilfur finnst í nærri öllum tegundum fisks og skelfisks og getur valdið skaða á taugakerfi fóstra og ungra barna. Sam- kvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnun- inni, WHO, eru andlegir erfiðleik- ar algengari meðal barna á þeim svæðum heimsins, þar sem fiskur er meginuppistaða fæðunnar. Samkvæmt annarri skýrslu, sem kynnt var á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn fyrr í vikunni, má búast við því að bráðnun íss á norðurslóðum geti orðið til þess að yfirborð sjávar hækki um 0,9 til 1,6 metra til næstu aldamóta, en það er mun meiri hækkun en hingað til hefur verið spáð. Báðar þessar skýrslur verða afhentar utanríkisráðherrum Íslands, Bandaríkjanna, Rúss- lands, Kanada, Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og Finnlands á fundi Norðurskautsráðsins í vikunni. gudsteinn@frettabladid.is Aukin hætta af kvikasilfri Búast má við fjórðungsaukningu á kvikasilfursmengun næsta áratuginn verði ekkert að gert. Hvítabirnir, selir og hvalir á norðurslóðum eru í mestri hættu, ásamt frumbyggjum sem veiða þessi dýr til sér til matar. Á NORÐURSLÓÐUM Hlýnun jarðar veldur því að kvikasilfursmengun verður hættulegri en ella. NORDICPHOTOS/AFP 1 Hvaða tískuhús lætur mynda vetrartískuna hér á landi þessa dagana? 2 Hvað heitir ný blúsplata Andreu Gylfadóttur og Blúsmanna? 3 Hvað tekur Eldborg, stærsti salur Hörpu, marga í sæti? SVÖR Þóttist vera breskur Nígerískur maður hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir að framvísa röngu vegabréfi við komuna til lands- ins. Maðurinn kom frá Osló í síðustu viku og framvísaði bresku vegabréfi. Maðurinn játaði brot sitt greiðlega. DÓMSMÁL FÉLAGSMÁL Tæplega sextíu pró- sent landsmanna bera frekar mikið eða mjög mikið traust til barnaverndar nefnda. Þetta er niðurstaða rannsóknar á trausti almennings til barnaverndar- nefnda, sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Anni G. Haugen, lektor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, skrifar grein um rann- sóknina í nýjasta tölublaði Tímarits félagsráðgjafa. Þar kemur fram að 59 prósent beri mikið eða frek- ar mikið traust til barnaverndar- nefnda, 23 prósent frekar lítið eða mjög lítið en 19 prósent segja hvorki bera lítið né mikið traust til þeirra. 977 svöruðu spurningunni. Barnaverndarnefndir geta vel við unað, en Anni segir það verk- efni sem aldrei ljúki að auka traustið. Mikilvægt sé að almenn- ingur geti borið traust til barna- verndar. Yngra fólk treystir nefndunum betur en eldra fólk. 73 prósent fólks á aldrinum 18 til 29 ára báru mikið traust til þeirra en 45 pró- sent 60 ára og eldri. Fleiri karlar en konur treystu nefndunum vel, og fólk á lands- byggðinni meira en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Þessi munur var þó ekki marktækur. Þá virð- ist traust vera meira hjá þeim sem eru með mikla bóklega menntun en þeim sem eru lítið menntaðir. - þeb Yngra fólk ber almennt meira traust til barnaverndar: 60% bera traust til barnaverndarnefnda BÖRN AÐ LEIK Barnaverndarnefndir geta vel við unað samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á trausti almennings til þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ATVINNULÍF Samtök skapandi greina (SSG) hafa verið stofnuð. Að sam- tökunum standa allar kynning- armiðstöðvar lista og skapandi greina á Íslandi og samtök í hverri grein. Þau samtök mynda breið- ustu fylkingu fagfólks í skapandi greinum í landinu. SSG munu vinna að sameigin- legri stefnumótun greinanna, í samstarfi við opinbera aðila og íslenskt atvinnulíf. Heildar- markmið SSG er að þáttur skap- andi greina í hagkerfi landsins sé tryggður. SSG taka við hlutverki Samráðs- vettvangs skapandi greina. Átti sá vettvangur frumkvæði að því að rannsókn um hagræn áhrif skap- andi greina var hrundið af stað. „SSG munu stuðla að áframhald- andi rannsóknum á greinunum, tryggja að þær njóti hagstæðra vaxtarskilyrða og að þau sóknar- færi sem liggja í skapandi grein- um séu nýtt í þágu hagvaxtar og lífsgæða,“ segir í tilkynningunni. Tölulegar niðurstöður rannsókn- ar, sem kynnt var fyrst í desemb- er síðastliðnum, sýndi fram á að heildarútflutningur afurða skap- andi greina er helmingi meiri heldur en íslenskra landbúnaðar- afurða, eða um þrjú prósent. - sv Nýstofnuð Samtök skapandi greina mynda breiðfylkingu fagfólks hér á landi: Tryggja þátt greinanna í hagkerfinu Nýr formaður Ljósmæðra Esther Ósk Ármannsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, var kjörin for- maður Ljósmæðrafélags Íslands á 92. aðalfundi félagsins hinn 7. maí. FÉLAGSMÁL ÍTALÍA Um 400 flóttamönnum frá Líbíu var bjargað við ítölsku eyjuna Lampedusa í fyrrinótt. Bátur fólksins strandaði á skeri og reyndu margir flóttamann- anna að komast til lands með því að stökkva úr bátnum. Sterkir vindar voru og mikill öldugangur, sem varð til þess að sumt fólkið féll um borð. Nokkrum tókst þó að halda sér í kaðla sem bundnir voru í bátinn þar til björgunarsveitir komu á vettvang. Björgunarstarf gekk vel og komust allir lífs af. - sm Bátur strandaði við Ítalíu: 400 flóttamenn í mikilli hættu 1. Hermés 2. Rain on me rain 3. 1.800 manns Stofnfélagar SSG ■ Samtónn (ÚTÓN og Íslensk tón- verkamiðstöð) ■ Kvikmyndamiðstöð Íslands ■ Leiklistarsamband Íslands ■ Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (KÍM) ■ Bókmenntasjóður ■ Hönnunarmiðstöð Íslands ■ Icelandic Gaming Industry VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.