Fréttablaðið - 09.05.2011, Page 16

Fréttablaðið - 09.05.2011, Page 16
9. maí 2011 MÁNUDAGUR16 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Ásta Bragadóttir og Trausti Óskars- son voru meðal þeirra fyrstu sem gerð- ust heimsforeldrar á vegum Unicef á Íslandi. Þau fluttu til Stokkhólms fyrir einu og hálfu ári til að stunda sérnám í læknisfræði og halda áfram að láta gott af sér leiða. „Okkur er það hjartans mál að gefa til góðgerðamála. Þegar við komum heim til Íslands til að láta skíra Elí fengum við þá hugmynd að benda á sannar gjafir Unicef í boðskorti til vina og ættingja,“ segir Ásta. Þau Trausti eignuðust drenginn Elí í októ- ber síðastliðnum en fyrir áttu þau dóttur ina Unu, 6 ára. „Drengurinn á nóg af fötum og leikföngum, auk þess sem við búum ekki í stóru húsnæði og vorum með mikinn farangur,“ útskýrir Ásta, sem segir beiðnina hafa mælst vel fyrir hjá skírnargestum. „Það er úr ýmsu að velja hjá Uni- cef. Þar eru námsgögn, moskítónet og bóluefni en svo er einnig að finna dýrari gjafir s.s. reiðhjól og vatnsdæl- ur, allt til að bjarga lífi nauðstaddra barna,“ segir Ásta, en gjafirnar má kaupa á vef unicef.is. „Þar má setja inn persónu lega kveðju sem starfs- fólk Unicef prentar út með lýsingu eða mynd af gjöfinni og þannig er hægt að koma með fallegt gjafakort í veisluna,“ útskýrir Ásta. Elí litli fékk margar góðar gjafir. „Hann fékk meðal annars ungbarna- vigt, fjögur moskítónet, námsgögn, bóluefni og vatnshreinsitöflur,“ telur Ásta upp. Hann er sá Íslendingur sem hefur fengið flestar sannar gjafir. Hún segir þó suma hafa stolist til að stinga peningum í umslagið til Elí og nokkrir hafi gefið hefðbundnari skírnargjafir. Ásta segir að fjölskyldan hafi fengið góð viðbrögð á skírnardaginn. „Marg- ir hrósuðu okkur fyrir þetta og ein frænka mín gerðist heimsforeldri í kjölfarið.“ Allar líkur eru á að Elí litli reyni að láta gott af sér leiða í framtíðinni en á dögunum gaf hann sína fyrstu sönnu gjöf. „Við fórum í fermingarveislu um daginn og þá gaf hann fermingar- barninu ungbarnavigt,“ segir Ásta og hlær. solveig@frettabladid.is ELÍ TRAUSTASON SEX MÁNAÐA: FÉKK SANNAR GJAFIR Í SKÍRNARGJÖF Lætur strax gott af sér leiða VIÐ SKÍRNINA Elí ásamt foreldrum sínum og Unu stóru systur við skírnina sem fram fór í apríl. 44 Merkisatburðir Á þessum degi árið 1986 var stærsta matvæla- sýning sem haldin hafði verið hérlendis opnuð í Laugardalshöllinni. Sýningin kallaðist Matarlist ‘86, en heimilissýningar sem settar voru upp í höllinni á þessum árum voru vel sóttar. Sverrir Hermannsson, þáverandi mennta- málaráðherra, opnaði sýninguna, en að henni stóð Nemendafélag Hótel- og veitingaskóla Íslands og tóku fjörutíu fyrirtæki og stofnanir þátt í sýningunni. Við opnunina afhentu nem- endur Hótel- og veitingaskólans Davíð Oddssyni, þáverandi borgarstjóra, fyrsta eintak af „Handbók sælkerans“, sem samin var af nemendum skólans. Meðal þess sem þótti nýbreytni á sýningunni var hugmyndabanki sem komið var upp í Laugardals- höllinni, þar sem menn gátu sent inn tillögur um matreiðslu lambakjöts, sem var í stóru hlutverki á sýningunni. Bæði var útigrilli komið upp þar sem lambakjöt var steikt í heilum skrokkum og svo var efnt til samkeppni um matreiðslu lambakjötsrétta. Þeir réttir sem fengu viðurkenningu voru settir í sölu á nokkrum veitingahúsum. ÞETTA GERÐIST: 9. MAÍ 1986 Stærsta matvælasýning hérlendis Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma, Pensri Stefánsson Tunguheiði 14, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu- daginn 18. apríl 2011. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 9. maí kl 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Einstakar þakkir færum við starfs- fólki Landspítalans fyrir frábæra umönnun og gott viðmót. Guðmundur Skúli Stefánsson Chakkaphan Thakham Kiattisak Thakham Yuna Ír Thakham Wattanee Boodudom Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Gísli Benóný Kristjánsson fyrrverandi skrifstofustjóri Gullsmára 9, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 1. maí. Hann verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, mánudaginn 9. maí kl. 15.00. Sigurbjörg Jóhanna Þórðardóttir Unnsteinn Þórður Gíslason Magnús Gíslason Kristján Gíslason Guðrún Benedikta Elíasdóttir Gísli Örn Gíslason Birna Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Margrét Benediktsdóttir áður til heimilis að Árvegi 2, Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum laugardaginn 30. apríl. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju þriðju- daginn 10. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands eða Ljósheima Selfossi. Guðrún Halldórsdóttir Valdimar Valdimarsson Guðmundur Eiríksson Benedikt Eiríksson Helga Haraldsdóttir Ingvar Daníel Eiríksson Eygló Gunnarsdóttir Óli Jörundsson Þorbjörg Henný Eiríksdóttir Bjarni Einarsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. MOSAIK Benedikt Benediktsson kennari, Þórðarsveig 6, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 10. maí kl. 13.00. Systkini hins látna. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, sambýliskona og amma, Guðrún Ása Brandsdóttir Reynimel 74, verður jarðsungin á morgun, þriðjudaginn 10. maí, frá Fríkirkjunni kl. 15.00. Ásrún Laila Awad Sylvía Kristín Ólafsdóttir Kjartan B. Björgvinsson Ágúst Þór Guðsteinsson og barnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingella Þórðardóttir Sóleyjargötu 10, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 14.00. Margrét Ármannsdóttir Þorvaldur Jónasson Ármann Ármannsson Sigurbjörg Ragnarsdóttir Þóra Emilía Ármannsdóttir Ásmundur Ármannsson barnabörn og barnabarnabörn HELGI HJÖRVAR alþingismaður er 44 ára í dag. „Hið nýja vinstri er frjálslynt stjórnmálaafl, víðsýnt og umburðarlynt.“ 1593 Í bréfi til hirðstjóra frá konungi er ákvæði þess efnis að innsigli Íslands skuli vera hausaður óflattur þorskur með konungskórónu. 1768 Rannveig Egilsdóttir lýkur ljósmóðurprófi á Staðarfelli í Dölum. Hún var fyrsta menntaða ljósmóðirin á Íslandi. 1855 Prentfrelsi er leitt í lög á Íslandi með tilskipun konungs. 1886 Barnastúkan Æskan er stofnuð í Reykjavík. 1945 Síðari heimsstyrjöldinni lýkur. 1964 Verkamannasamband Íslands er stofnað. 1965 Keflavíkurganga á vegum hernámsand- stæðinga er gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur. 1974 Rithöfundasamband Íslands er stofnað.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.