Fréttablaðið - 09.05.2011, Page 46
9. maí 2011 MÁNUDAGUR30
MORGUNMATURINN
Kristín Kristjánsdóttir sigraði á Opna alþjóðlega fit-
ness-mótinu sem haldið var í Austurríki um síðustu
helgi. Kristín vakti mikla athygli og var meðal ann-
ars fjallað um hana í austurríska dagblaðinu NÖN.
Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur sigrar í
heildarkeppni á alþjóðlegu líkamsræktarmóti og
því er þetta frábær árangur hjá Kristínu. Þá vann
hún Íslandsmeistaramótið í fitness sem fram fór um
páskana og var einnig kjörin líkamsræktarmaður
ársins hjá Alþjóðasambandi líkamsræktarmanna á
Íslandi.
Að sögn Sigurðar Gests sonar,
þjálfara og sambýlismanns Krist-
ínar, er mótið í Austurríki afskap-
lega sterkt mót enda er greinin
gríðarlega vinsæl bæði í Aust-
urríki og nágrannalöndunum.
„Kristín vakti mikla athygli
þarna úti og var stjarna mótsins.
Aldur hennar vakti líka athygli,
en hún er orðin 45 ára gömul og
var að keppa við stúlkur sem
gætu hafa verið dætur hennar,“
segir Sigurður, sem er að
vonum ánægður með árangur
sambýliskonu sinnar.
Sigurður segir Fitness-
íþróttina vera mjög vinsæla í
Austurríki og telur að leikar-
inn og vaxtarræktartröllið
Arnold Schwarzenegger
hafi átt stóran þátt í að svo
sé. „Þetta er óvenju vinsæl grein þarna í
Austurríki, líklega með vinsælli íþrótta-
greinum í landinu. Mér finnst ekki ólíklegt
að Schwarzenegger eigi þar hlut að máli.“
Inntur eftir því hvort Kristín ætli nú að
leggja lóðin á hilluna svarar Sigurður því
neitandi. „Með sigrinum tryggði hún sér
sæti á Evrópumótinu sem fram fer á Spáni í
júní, þannig að hún hættir ekki strax,“ segir
hann að lokum. - sm
Varð stjarnan á fitness-móti
GÓÐUR ÁRANGUR Kristín Kristjánsdóttir vann
Opna alþjóðlega fitness-mótið sem haldið var
í Austurríki um síðustu helgi. Hún hlaut mikla
athygli og fjallaði meðal annars dagblaðið NÖN
um hana. Á myndinni sést Kristín ásamt Sigurði
Gestssyni, sambýlismanni sínum, og dóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Fegurðarsamkeppnin Goð og gyðjur
verður haldin á skemmtistaðnum Spot
hinn 20. maí. Aðstandendur keppninnar
leita nú að sex strákum og sex stelpum til
að taka þátt og eru útgeislun og heilbrigði
eiginleikar sem þátttakendur þurfa að
hafa fremur en annað.
Glamúrfyrirsætan Ósk Norðfjörð er
einn þriggja skipuleggjenda keppninnar
og situr að auki í dómarasæti. Þátttak-
endur keppninnar eiga að vera heilbrigð-
ir á sál og líkama og er bæði dæmt út
frá innri og ytri fegurð þeirra. „Okkur
langaði að sjá ungt fólk blómstra og vera
ánægt í eigin líkama og sál. Við erum að
leita að fólki sem þorir að láta í sér heyra
og getur verið góðar fyrirmyndir fyrir
ungt fólk,“ útskýrir Ósk.
Einn piltur og ein stúlka munu hljóta
titlana Goð og Gyðja ársins og að sögn
Óskar fylgir titlinum nokkur ábyrgð.
„Sigurvegararnir munu koma fram í
skólum og gefa ungu fólki góð ráð, veita
þeim stuðning og gefa ungmennum færi
á að leita ráða hjá sér.“ Goðið og Gyðjan
munu þó einnig hljóta glæsilega vinninga
að launum og ber þar helst að nefna
farsíma, ljósakort, skartgripi og dekur-
pakka.
Innt eftir því hvort fyrirhugað sé að
halda keppnina aftur að ári liðnu svarar
Ósk því játandi. „Já, klárlega gerum við
það.“
Áhugasamir geta sótt um þátttöku með
því að senda tölvupóst á netfangið godog-
gydjur@gmail.com. - sm
Leita að goðum og gyðjum
LEITIN HAFIN Ósk Norðfjörð og Karítas Ósk leita að íslenskum
goðum og gyðjum ásamt Birgi Rafni Birgis. Keppnin fer fram
hinn 20. maí næstkomandi.
„Ég fæ mér fimm til sex egg og
haframjöl út í og bý til eggja-
hræru.“
Annie Mist Þórisdóttir, Íslandsmeistari í
CrossFit.
„Þetta er mög mikil vinna og við
erum að frá morgni til kvölds. Sífellt
að vekja athygli á strákunum, þó að
við séum úti að borða erum við að
dreifa nafnspjöldum og barmmerkj-
um,“ segir Þórunn Erna Clausen.
Þegar Fréttablaðið náði af henni tali
var hún með smá stund milli stríða
en dagskráin hjá Eurovision-hópi
Íslands er þéttskipuð í Þýskalandi
enda styttist óðum í að Vinir Sjonna
stígi á svið í Dusseldorf.
„Ég var að koma af rosalega fjör-
ugum blaðamannafundi þar sem
strákarnir heilluðu alla upp úr
skónum, við sungum þar níu laga
Eurovision-syrpu sem við vorum
búin að sjóða saman,“ segir Þórunn
og bætir við að margir hafa haft orð
á því að það hafi sjaldan verið klapp-
að jafn mikið á blaðamannafundi og
fyrir strákunum í dag.
Vitaskuld er það tilfinningalegur
rússíbani sem Þórunn Erna upplifir
úti í Þýskalandi en hún segist hepp-
in að vera um vafin vinum Sjonna og
mikil gleði sé hjá öllum „Við hlæj-
um mikið og njótum þess til hins
ýtrasta að vera hérna en auðvitað
koma svona móment þar sem
við förum að gráta og hugs-
um til þess að Sjonni fær ekki
að upplifa þetta með okkur
og hvað við vildum óska þess
að hann væri hér hjá okkur,“
segir Þórunn en undirstrik-
ar að stemningin sé góð
enda allir sem koma að
framlagi Íslands vinir
Sjonna og deili bæði
gleði og sorg.
Þórunn segir að
hópurinn hafi ekki sett
sér nein önnur mark-
mið en að bera út boð-
skap lagsins og koma
tónlist Sjonna og strák-
unum á framfæri.
„Auðvitað væri frábært að vinna
en við erum alveg niðri á jörðinni
og viljum fyrst og fremst bera
út boðskap lagsins, að maður
eigi að njóta dagsins því
maður veit aldrei hvað ger-
ist á morgun,“ segir Þórunn
en hún finnur að erlendir
fjölmiðlar sýna sögu hópsins
mikinn áhuga enda mik-
ilvægt að það komist
til skila fyrir hvern
hópurinn er að
syngja, Sjonna. En
við vitum að við
erum með mjög
gott lag í hönd-
unum og höfum
fulla trú á lag-
inu. Við erum í frek-
ar erfiðum riðli en
vonum innilega að við
komumst í lokakeppnina svo að enn
fleiri fái að hlusta á lagið okkar og
boðskapinn.
„Blaðamaður frá Katar sagði
mér að lagið væri mikið spilað þar.
Komið í fimmta sæti á vinsældalista
og svo vitum við að lagið er byrjað
að spilast í Ástralíu,“ segir Þórunn
og bætir við að það hafi alltaf verið
eitt af markmiðunum að koma tón-
list Sjonna á framfæri út í heimi.
Margir fjölskyldumeðlimir
Sjonna ætla að koma út og vera við-
staddir forkeppnina á morgun. „Við
verðum stór hópur saman, margir
úr tengdafjölskyldu minni og fullt
af vinkonum mínum eru á leiðinni,“
segir Þórunn en hún ætlar að vera
að koma heim næsta sunnudag og
verður því á aðalkeppninni sama
hvernig fer á morgun.
alfrun@frettabladid.is
ÞÓRUNN CLAUSEN: TENGDAFJÖLSKYLDAN FLÝGUR ÚT FYRIR KEPPNINA
Hlæ og græt til skiptis
TILFINNINGARÚSSÍBANI Þórunn Erna Clausen og sönghópurinn Vinir Sjonna eru að leggja
lokahönd á atriðið í Eurovision en áhersla verður lögð á nálægð og notalega stemningu.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
„Mikið er nú gaman í leikhúsi
þegar það er gaman!“ – EB, Fbl
„Skemmtileg og hressandi leikhúsupplifun,
öðruvísi og ögrandi“ – IÞ, Mbl
HRYLLILEGA KRASSANDI RUSLÓPERA
MEÐ TÓNLIST TIGER LILLIES
Allt lítur út fyrir að tónlistaráhuga-
menn eigi von á góðu á árinu. Nú
þegar sólin er byrjuð að skína huga
tónlistarmenn að nýju efni, enda
ekki seinna vænna ef jólaplötu-
flóðið á að vera gott. Hljómsveitin
Dikta ku ætla að vinna að nýju efni
í sumar og ef allt
gengur að óskum
er stefnt að
útgáfu á þessu
ári. Þá hyggst
söngkonan
Ragnheiður
Gröndal einnig
stefna á útgáfu,
rétt eins og
drengirnir í
hljómsveitinni
Ourlives ...
Barði Jóhannsson og hljómsveit
hans Bang Gang hyggjast einnig
gefa út plötu á árinu, en ekki eins
snemma og áformað var í upphafi.
Þá er ein magnaðasta tónleikasveit
landsins, Bloodgroup, byrjuð að
huga að nýrri plötu. Sú síðasta, Dry
Land, kom út fyrir tveimur árum
og vakti mikla lukku.
Loks var að koma
nýtt lag frá Katrínu
Mogensen
og félögum í
hljómsveitinni
Mammút
og plata er
áformuð í
haust. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI