Fréttablaðið - 11.06.2011, Qupperneq 30
11. júní 2011 LAUGARDAGUR30
1. Þingvellir
Allar árstíðir eru ægifagrar í Þingvallaþjóð-
garði. Þar er hægt að tjalda á góðum tjald-
svæðum, fara í lautarferðir og finna sér hæfi-
leg fjöll. Ekki er heldur úr vegi að rifja upp ljóð
og sögur lands og þjóðar.
2. Laugarvatn
Hinn nýi vegur um Lyngdalsheiði hefur gert
heimsókn á Laugarvatn að skottúr frá Reykja-
vík. Þar er Lindin, sjarmerandi veitingahús,
flott sundlaug og stytta af Jónasi frá Hriflu
meðal þess sem gaman er að sjá og upplifa.
3. Hestfjall
Grímsnesið er áfangastaður margra sumarbú-
staðaeigenda. Útsýni fagurt yfir Grímsnesið og
víðar er af Hestfjalli í Grímsnesi. Gengið er frá
bænum Vatnsnesi og gangan er þægileg.
4. Sólheimar
Heimsókn á Sólheima í Grímsnesi er alltaf
ævintýraleg. Í skjólgóðri hvilftinni er gott að
sitja og gæða sér á kaffi og með því eftir að
hafa skoðað fallegan varning heimamanna.
5. Þrastarskógur
Göngutúrar um Þrastarskóg eru skemmtilegir,
ekki síst fyrir börnin. Þar má kaupa veiðileyfi
í Ölfusá og renna fyrir lax.
6. Selfoss
Margir ferðalangar aka greitt í gegnum Sel-
foss, en þar er full ástæða til að staldra við.
Sundlaugin er frábær, bókakaffi Bjarna Harð-
ar hefur sinn sjarma og svo stæra Selfyssingar
sig af því að þar fáist bestu pylsur landsins í
Pylsuvagninum.
7. Hellisskógur
Útivistarsvæðið Hellisskógur er falin perla við
norðanverða Ölfusá. Þar er gaman að ganga og
aka um og hægt er að skoða Hellinn sem skóg-
urinn dregur nafn sitt af. Komið hefur verið
upp grillaðstöðu á svæðinu þar sem margir
göngustígar eru, útsýni er fallegt og þar eru
einnig minjar um búsetu og mannaferðir. Til að
komast á svæðið er beygt til vinstri rétt áður
en ekið er yfir Ölfusárbrú á leið inn í Selfoss og
ekið í gegnum hverfið þar.
8. Ölvisholt
Brugghúsið Ölvisholt sem meðal annars brugg-
ar Skjálfta tekur á móti hópum á laugardögum
og leiðir í gegnum verksmiðjuna, framleiðslu-
ferlið og hugmyndafræðina. Að sjálfsögðu fá
allir að smakka afurðir hússins.
9. Flóinn
Galleríið Tré og list í Forsæti í Flóahreppi er
heimsóknarinnar virði en þar má meðal ann-
ars skoða safn smíðamuna. Ólafur Sigurjóns-
son bóndi er listasmiður og smíðaði meðal ann-
ars eina af fyrstu vindmyllunum sem er við
bæinn hjá honum. Villingaholtskirkju er vel við
haldið og hana er gaman að skoða. Þá má eng-
inn missa af sveitabúðinni Sóleyju sem er við
bæinn Tungu skammt austan Stokkseyrar, þar
er alltaf opið þegar einhver er heima.
10. Knarrarósviti
Hæsta bygging á Suðurlandi er Knarrarósviti
skammt austan Stokkseyrar. Hann var hannað-
ur af Axeli Sveinssyni verkfræðingi eftir hug-
myndum Guðjóns Samúelssonar húsameist-
ara. Vitinn, sem er rúmir 26 metrar á hæð var
byggður á árunum 1938-1939.
11. Stokkseyri
Draugasafn, humar, hvít fjara og falleg náttúra
eru allt góðar ástæður fyrir stoppi á Stokks-
eyri.
12. Eyrarbakki
Einn fallegasti bær landsins er ávallt heim-
sóknarinnar virði. Þar eru krambúðin og kaffi-
húsið Gónhóll og byggðasafnið Húsið meðal
spennandi áfangastaða.
Falin djásn og ferðalög
Heimsókn í Ölvisholt, gönguferðir, sveitabúðin Sóley og stærsta grillveisla Suðurlands eru meðal
skemmtilegra áfangastaða í ferðalagi Fréttablaðsins um Selfoss og nágrenni.
Viðburðaríkt verður á Selfossi og
nágrenni sem sjá má.
18. júní Ganga Ferðafélagsins á
Kluftir á Hrunamannaafrétti.
18. júní Gullspretturinn, hlaupið í
kringum Laugavatn.
21. júní Müllers-æfingar á gönguför
frá Laugavatni.
24.-26. júní Landsmót
fornbílamanna og Dellu-
dagar á Selfossi.
25. júní Jóns-
messuhátíð
verður nú sem
endranær á
Eyrarbakka.
25.-26. júní Brú til borgar, hátíð
hollvina Grímsness.
7. júlí Fimmtudagsganga á
Þingvöllum.
14.-16. júlí Íslandsmótið í hesta-
íþróttum verður á Brávöllum á
Selfossi.
15.-17. júlí Bryggjuhátíð á Stokkseyri.
23. júlí Meistaramót Íslands í frjálsum
íþróttum á nýja frjálsíþróttavellinum á
Selfossi.
28. júlí-1. ágúst Fjölskyldudagar á
Stokkseyri.
5.-7. ágúst Meistaradeild Olís.
6. ágúst Sumar á Selfossi, bæjarhátíð.
13.-14. ágúst Aldamótahátíð á
Eyrarbakka.
Margt fleira er á döfinni sem
lesa má um meðal annars á
síðunum www.arborg.is, www.
southiceland.is, www.upplit.is,
Á Selfossi er stefnt að því að halda
stærstu grillveislu Suðurlands
um helgina. Þá fer fram bæjar-
fjölskyldu- og tónlistarhátíðin
Kóteletta. Á hátíðinni ætla mat-
vælaframleiðendur á Suðurlandi
að kynna afurður sínar, barna-
stjörnur verða á ferðinni og margir
helstu tónlistarmanna landsins
ætla að troða upp. Þar má nefna
Mannakorn, Pál Óskar og Ingó og
veðurguðina.
Nánar má lesa um dagskrána á
síðunni www.kotelettan.is
■ KÓTELETTAN
■ GÖNGUR OG GLEÐI
1
2
7
3
8
4
9
5
10
6
11
12 Stokkseyri
Þj
ór
sá
Hveragerði
Eyrarbakki
ÞINGVALLAVATN APAVATN
Selfoss
Bylgjulestin sem fagnar 25 ára
afmæli Bylgjunnar með ferð um
Ísland í sumar, verður á Kótelettuhá-
tíðinni og er þátturinn Ævintýraeyjan
með Hemma Gunn og Svansý
sendur þaðan beint út í dag.
Ódýrasti kaffibollinn!
Auglýsing
Þegar kostnaður vegna kaffi-
neyslu til lengri tíma er reiknaður
saman, kemur í ljós að verðið á
kaffivélunum hefur lítil áhrif á
þann heildarkostnað sem neytand-
inn ber þegar allt kemur til alls.
Marga dreymir um að eignast al-
vöru kaffivél eins og Jura kaffivélina,
sem malar kaffibaunirnar og hellir
upp á bragðgott kaffi undir þrýst-
ingi. Einnig flóar hún mjólk og útbýr
kaffidrykki eins og gert er á helstu
kaffihúsum bæjarins. Innkaupsverðið
á Jura vélinni er ef til vill fyrirstaða
fyrir suma, en vélin kostar frá 124.950
krónum. Algengt verð á kaffivél til
uppáhellingar. af gömlu gerðinni er Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Hvað kostar kaffibollinn í raun og veru?
um það bil 16.000 krónur. Þarna er
augljóslega nokkuð mikill munur á
innkaupsverði. Hér spara margir aur-
inn og kasta líka krónunni.