Fréttablaðið - 02.08.2011, Page 2
2. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
BJÖRGUN Skipverjar á varðskipinu
Ægi unnu sannkallað þrekverki á
laugardag þegar þeir björguðu hópi
flóttamanna sem höfðu verið í sjálf-
heldu í þröngu gili í tvo daga við
ströndina á Rodoposskaga á vestur-
hluta Krítar.
Ægir hefur verið við landamæra-
eftirlit í Miðjarðarhafi fyrir Fron-
tex, landamærastofnun Evrópu-
sambandsins, síðan í maí og verður
við störf fram í október.
Skipverjar á Ægi björguðu 58
flóttamönnum, þar af tólf börnum,
allt niður í eins árs gömlum, þrjá-
tíu karlmönnum og sextán konum,
en tvær þeirra voru barnshafandi.
Í fréttum af björguninni á grísk-
um miðlum segir að fólkið sé frá
Sýrlandi og Afganistan.
Ægi barst tilkynning um nauð-
stadda frá björgunarstjórn í Grikk-
landi, og komu skipverjar auga á
fólkið eftir um fjórtán tíma leit.
Einar Valsson, skipherra á Ægi,
segir í samtali við Fréttablaðið að
aðstæður hefðu verið erfiðar og
fólkið hefði ekki átt kost á því að
komast burt landleiðina.
„Þau voru þarna í þröngu gili og
það hefði verið mjög erfitt fyrir þau
að komast upp með börn og það var
langt í næstu vegi. Það var erfitt að
komast að þeim þar sem fjaran er
stórgrýtt og sjólag fór versnandi
eftir því sem á leið.“
Skipverjar komust þó að landi á
gúmbát og var fólkið selflutt þaðan í
harðbotnabát sem fór með fólkið um
borð í Ægi. Einar segir að fólkið hafi
greinilega verið fegið björgun inni.
„Það voru kannski ekki mikil
samskipti, en þakklæti og ánægja
skein úr augum fólksins þegar það
kom um borð.“
Einar bætir því við að fólkið hafi
verið ágætlega á sig komið og hafi
átt eftir smáræði af matvælum.
Hópurinn var fluttur til hafnar-
borgarinnar Souda á vesturhluta
Krítar og þar tóku Frontex og grísk
yfirvöld við fólkinu.
Einar segir Ægismenn ekki hafa
lent í viðlíka uppákomu síðan þeir
hófu störf í Miðjarðarhafi, þeir hafi
þó áður bjargað flóttamönnum.
„Manni hlýnar verulega um
hjartarætur að geta hjálpað
fólki svona, og þetta gefur starf-
inu mikið gildi,“ sagði Einar að
lokum.
thorgils@frettabladid.is
Það var erfitt að
komast að þeim þar
sem fjaran er stórgrýtt og
sjólag fór versnandi eftir því
sem á leið.
EINAR VALSSON
SKIPHERRA Á ÆGI
Stutt vörulýsing:
Bón og þvottur að utan.
Fólksbíll: 2.450, jepplingur: 2.940
og jeppi: 3.430 kr.
Bónstöð Hafnarfjarðar
Láttu okkur um bílinn.
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
11
155
31 2.450 kr.
5.000 kr.
Verð
51%
Afsláttur
2.550 kr.
Afsláttur í kr.
50 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
GILDIR 24 TÍMA
Bílageyms ðini Flun ir
Hafnarfjarðar
Bónstöð
UTANRÍKISMÁL Samkvæmt rök-
studdu áliti ESA þurfa Íslending-
ar að greiða 670 milljarða króna
fyrir 10. september vegna Ice-
save-skuldbindinga, fallist þeir á
álitið. Nú er unnið að rökstuðningi
gegn því í efnahags- og viðskipta-
ráðuneytinu.
Greiðsla er ekki hafin úr þrota-
búi Landsbankans vegna Icesave.
Stafar það af því að Hæstiréttur
á eftir að taka fyrir dómsmál sem
dæmd voru í héraði í vor og tengj-
ast búinu. Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra vonast til
þess að málin verði tekin fyrir
strax að loknu
dómshléi nú í
ágúst.
„Við eigum
náttúrulega
tvo kosti í stöð-
unni; að fall-
ast á álit ESA,
en í því stend-
ur að við eigum
að greiða 670
milljarða fyrir
1. september, sem ég veit nú ekki
alveg hvaðan við eigum að taka.
Hinn kosturinn er að gera ágrein-
ing áfram við ESA.“
Steingrímur vonast til að skuld-
in greiðist niður á næstu mánuð-
um þegar sala hefst úr þrotabúinu.
Þá sjái allir, Bretar, Hollendingar
og heildsöluinnlánshafar, að þeir
fái peningana sína til baka og það
bæti andrúmsloftið.
„Það er athyglisvert að þegar
úrskurður ESA kom deplaði
enginn auga yfir því hvað hann
þýddi á mannamáli. Hann þýddi
náttúru lega það að ef við ætluð-
um ekki að gera ágreining við
ESA þyrftum við að standa skil á
þessari fjárhæð, 670 milljörðum.“
- kóp
Stjórnvöld hafa fram í september til að bregðast við áliti ESA um Icesave:
Tæpir 700 milljarðar segjum við já
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VENESÚELA Fangelsi í Venesúela
eru flest öll yfirfull og hafa
fangelsisstjórar og fangaverðir
lengi varað við ástandinu. Fyrir
skömmu létust 25 í uppþotum
í einu fangelsanna sem stóðu í
rúmar þrjár vikur.
Iris Varela, nýr ráðherra fang-
elsismála Venesúela, vill leysa
þennan mikla vanda með því að
fækka föngum um allt að 40 pró-
sent. Ráðherrann telur almenn-
ing ekki standa ógn af um 20 þús-
und og því sé vel hægt að veita
þeim frelsi.
Fangelsismál í Venesúela:
20 þúsund fang-
ar verði frelsaðir
Björguðu börnum úr
hættu á Miðjarðarhafi
Íslenskir varðskipsmenn á Ægi björguðu 58 flóttamönnum á Krít. Fólkið hafði
verið í sjálfheldu í tvo daga. Aðstæður voru erfiðar en vel gekk að ferja fólkið
um borð. Skipherra segist hlýna um hjartarætur að geta hjálpað fólki í neyð.
Í SJÁLFHELDU Flóttafólkið hafði setið fast neðan við bratt gil í tvo daga áður en skip-
verjar á Ægi komu þeim til bjargar. í hópnum voru tólf börn og tvær ófrískar konur.
MYND/LANDHELGISGÆSLAN
Grikkland
KýpurKrít
Líbía
Búlgaría
Tyrkland
Björgun á Krít
DANMÖRK Eiturlyfjaframleiðendur
hafa undanfarin ár þróað nýjar
tegundir vímugjafa. Nýju efnin
koma fram með slíkum hraða að
yfirvöld hafa vart við að banna
þau, að því er segir í frétt Jót-
landspóstsins.
41 nýtt efni kom inn á borð evr-
ópskra lögreglumanna á síðasta
ári. Búist er við að minnsta kosti
jafn mörgum tegundum í ár, en
árið 2005 fundust 14 ný efni.
Meðal annars er um eftirlíking-
ar af kannabisefnum að ræða. - þj
Lögregla í Evrópu:
Finna nýjar teg-
undir fíkniefna
FRÁ KÖBEN Margir urðu illa úti í úrhell-
inu í Kaupmannahöfn í júlí. Talið er að
tjón gæti numið 3 milljörðum danskra
króna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DANMÖRK Tjónið sem skýfallið
í Kaupmannahöfn olli í upphafi
júlí gætu numið allt að þremur
milljörðum danskra króna, sem
samsvarar rúmum 66 milljörðum
íslenskra króna.
Þetta er mat fjölda tryggingar-
fyrirtækja þar í landi að því er
fram kom í frétt Börsen.
Áður hafði verið talið að tjón
gæti numið um 1,8 milljörðum
danskra króna, en það mat var
byggt á afleiðingum úrhellis í
Norður-Sjálandi í fyrra. Trygg-
ingarfélögin segja að mun fleiri
fyrirtæki hafi orðið fyrir vatns-
skemmdum í Kaupmannahöfn og
því sé tjónamatið hærra. - þj
Skýfall í Kaupmannahöfn:
Tjón gæti num-
ið 3 milljörðum
Berndsen, ert þú þá ekki refur
að hafa fengið Bubba með
þér?
„Jú, er ekki bara eitt svar við því?“
Tónlistamaðurinn Berndsen trónir á toppi
vinsældalista með laginu Úlfur, úlfur þar
sem hann hefur sjálfan Bubba Morthens
sér til fulltingis.
SORG Norskir þingmenn, Haraldur
konungur og Hákon krónprins minntust
þeirra sem létust í ódæðinu á dög-
unum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Norskir þingmenn
minntust í gær þeirra 77 sem
létust í hryðjuverkum Anders
Behring Breivik með einnar mín-
útu þögn.
Stórþingið kom þá saman í
fyrsta skipti eftir ódæðið og las
forseti þingsins upp nöfn allra
hinna látnu.
Mikil sorg var meðal þing-
manna en einnig samhugur. Í
ræðu sinni hvatti Jens Stolten berg
forsætisráðherra stjórnmála-
leiðtoga til þess að sýna í fram-
haldinu stillingu í pólitískri
umræðu. Stoltenberg tilkynnti að
22. júlí yrði héðan í frá tileinkað-
ur minningu fórnarlambanna. - þj
Þingmenn minntust látinna:
Mínútu þögn á
Stórþinginu
SJÁVARÚTVEGSMÁL Togari Sam-
herja, Baldvin NC 100, var vænt-
anlegur til Akureyrar í gærkvöldi
með fyrsta aflann til vinnslu í
fiskiðjuveri Útgerðafélags Akur-
eyringa (ÚA). Vinnsla á að hefj-
ast þar í dag og er starfsemi ÚA
þar með formlega hafin á vegum
nýrra eigenda. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá Samherja.
Í byrjun maí var gengið frá
samningi milli Brims og Sam-
herja um kaup á eignum Brims á
Akureyri. - sv
Baldvin væntanlegur í dag:
Samherji tekur
við rekstri ÚA
MENNTAMÁL Framtíð Kvikmyndaskóla Íslands
er í uppnámi vegna fjárskorts. Starfsfólk hefur
ekki fengið laun sín greidd og samningsleysi við
mennta- og menningarmálaráðuneyti gerir það að
verkum að skólinn fær ekki bankafyrirgreiðslu og
getur ekki greitt laun.
Stjórn skólans gagnrýnir Katrínu Jakobsdóttur
menntamálaráðherra fyrir að ganga ekki frá
samningum við skólann áður en hún fór í barns-
eignarleyfi. Slíkt hafi verið gert við Keili í byrjun
maí. Stjórnin segir að neyðarkalli frá skólanum
í maí hafi ekki verið svarað. Erindinu hafi verið
vísað til mennta- og menningarmálaráðuneytis-
ins, að ósk Katrínar, sem ekki hafi fylgt málinu
eftir.
Elías Jón Guðjónsson, aðstoðarmaður ráðherra,
segir að unnið sé að því innan ráðuneytisins að
leysa vanda skólans og tryggja hagsmuni nem-
enda og framtíð kvikmyndamenntunar á Íslandi.
„Ráðuneytið gerði skólanum tilboð um miðjan
júní sem fól í sér 44% hækkun á framlagi sem
skólinn taldi sig ekki geta gengið að.“
Í erindi sem Hilmar Oddsson skólastjóri og
Böðvar Bjarki Pétursson stjórnarformaður sendu
menntamálanefnd um miðjan mars kemur fram
að beint framlag til skólans frá ríkinu þurfi að
vera 140 milljónir króna á ári. Það var á síðasta
ári 38 milljónir en hafði áður verið 40 milljónir.
Að auki muni skólinn innheimta skólagjöld, sem
nema um 1,2 milljónum króna árlega.
- kóp
Kvikmyndaskólinn gagnrýnir menntamálaráðherra fyrir seinagang í samningum:
Þarf 102 milljónir aukalega á ári
ELÍAS JÓN GUÐJÓNSSONHILMAR ODDSSON
SPURNING DAGSINS