Fréttablaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 36
2. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR20
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. atlaga, 6. guð, 8. þrá, 9. ónn, 11.
drykkur, 12. augnveiki, 14. einkennis,
16. í röð, 17. festing, 18. kæla, 20.
hljóta, 21. yndi.
LÓÐRÉTT
1. ílát, 3. kyrrð, 4. ástir, 5. gerast,
7. fyrirgefning, 10. hvíld, 13. frost-
skemmd, 15. skömm, 16. tala, 19.
tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. árás, 6. ra, 8. ósk, 9. ofn,
11. te, 12. gláka, 14. aðals, 16. tu, 17.
lím, 18. ísa, 20. fá, 21. unun.
LÓÐRÉTT: 1. trog, 3. ró, 4. ástalíf, 5.
ske, 7. aflausn, 10. náð, 13. kal, 15.
smán, 16. tíu, 19. au.
Hvernig hljómar þetta?
Frábær api með
frábæran húmor, sem er
frábær kokkur og frábær
íþróttamaður, leitar að
frábærum lífsförunaut.
Enga meðal
umsækjendur, takk.
Tveggja fóta tækl-
ing með takkana
á undan sér! Ég
verð að segja að
hún kveikir í mér!
Já,
þetta er
fallegur
og sexí
fótbolti!
Allt í einu er
ég ánægður
með að vera
gamall.
Ágæti er nýja
meðalið, pabbi.
Það er útskriftarnemi í skólanum
með átta í meðaleinkunn og
hún er ekki einu sinni á meðal
efstu í bekknum sínum!„Smá álagi“??
Mamma þín var að segja
mér að þú værir
undir smá álagi
vegna skólans.
Pabbi, smá
vandamál. Hvað er að?
Bíddu
aðeins.
Krissa vill koma að leika,
en ég er búin að bjóða
Önnu. Þeim kemur saman,
en bara ef við spilum
fótbolta eða
snú snú,
en ef...
Ég veit
hvernig við
leysum þetta.
Krissa vill koma að leika,
en ég er búin að bjóða
Önnu. Þeim kemur saman,
en bara ef við spilum
fótbolta eða
snú snú,
en ef...
Þegar ég spyr fólk hvað það lesi fyrir börnin sín dúkkar nafn sama
höfundar ins sífellt upp, Danans Ole Lund
Kirke gaard. Svo virðist sem úti um allt
land skemmti fólk sér yfir bókum eins
og Fúsa froskagleypi og Fróða og öllum
hinum grislingunum. Þótt við þekkjum
þessa náunga orðið ágætlega vitum við
minna um Kirkegaard sjálfan. Þess vegna
fannst mér gaman að finna nýlega bók
um hann á dögunum í Bókasafni Norræna
hússins. Hún heitir Ole Lund Kirke-
gaard – Et forfatterskap og er eftir
Torben Weinreich.
ÞAR kemur í ljós að Kirkegaard
var barnakennari og hófst
rithöfundar ferillinn þegar smásaga
hans, Drekinn, sigraði í samkeppni.
Falast var eftir meira efni eftir
hann og árið 1967 kom fyrsta bókin
út, Virgill litli. Verðlauna sagan varð
að kafla í bókinni. Bækur Kirke-
gaards fjalla einatt um stráka og
búa þeir gjarnan í litlum smá-
bæjum þar sem sirkus, hrekkju-
svín og jafnvel nas hyrningar
dúkka upp. Bullkenndar sam-
ræður eru aðalsmerki Kirke-
gaards, sem og teikningarnar,
sem hann gerði sjálfur. Bækurn-
ar urðu strax feikivinsælar.
EIN mest lesna bókin er sjálfsagt Gúmmí-
Tarsan frá árinu 1975. Hún fjallar um
Ívar Ólsen sem verður fyrir einelti í skól-
anum, „enda með vöðva sem ekki voru
stærri en fugladritur“. Dag nokkurn hittir
Ívar norn sem færir honum ofurkrafta
og þá snýst dæmið við. Nú er það hann
sem sýnir kvölurum sínum í tvo heimana.
Weinreich rekur niðurstöðu könnunar
sem sýnir að meirihluti lesenda Gúmmí-
Tarsans er þess fullviss að sagan endi vel.
Það er hins vegar reginfirra því illu heilli
rjátlast töfrarnir af Ívari og í sögulok er
hann í sömu stöðu og í upphafi.
ÆVI Ole Lund Kirkegaard endaði líka
illa því hann lést í mars árið 1979 – þá
aðeins 38 ára. Hann var að stytta sér leið
í gegnum kirkjugarðinn í heimabæ sínum,
Urlev, þegar hann hné niður. Þetta var að
kvöldi til og þegar komið var að honum
næsta morgun var hann orðinn mjög
kaldur. Ekki tókst að bjarga lífi hans.
Alls komu sjö bækur út eftir Kirkegaard
meðan hann lifði en eftir andlátið voru
handrit sem fundust í fórum hans líka
gefin út, eins og til dæmis Kalli kúlu-
hattur og Pési grallaraspói og Mangi
vinur hans. Sem betur fer hafa velflest
verka Kirkegaards verið þýdd á íslensku
og gersemarnar bíða okkar á næsta bóka-
safni. Góða skemmtun!
Ole og hinir grislingarnir
Jákvæðar
fréttir fyrir
sumarið
Allt sem þú þarft
*Meðan birgðir endast
Það fá allir afmælisblöðru*
á sölustöðum Fréttablaðsins
um land allt.
Þú færð Fréttablaðið
á 16 stöðum á Austurlandi.
Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er
aðgengilegt um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á
kjarnadreifingarsvæði okkar. Auk þess er það selt í lausasölu á
kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt.
Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna
eða spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is eða
fengið það sent með tölvupósti daglega.
Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing.
Mónakó, Bakkafirði
N1, Vopnafirði
Olís, Fellabær
N1 Þjónustustöð, Egilsstöðum
Bónus, Egilsstöðum
Samkaup Úrval, Egilsstöðum
Samkaup Strax, Seyðisfirði
Olís, Reyðarfirði
Grillskálinn Orka, Reyðarfirði
Fjöldi lausasölustaða á Austurlandi