Fréttablaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 18
2. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
Möndlumjólk er næringarrík og bragðgóð og tilvalin í staðinn fyrir
kúamjólk. Leggið 1 dl af möndlum í bleyti yfir nótt. Setjið í blandara
með 3 döðlum 1 tsk. af vanilludropum og 3-4 dl af vatni og blandið
vel. Út í þetta má svo blanda banönum og berjum eftir smekk.
Veitingahúsakeðjan Saffran fagn-
ar tveggja ára afmæli sínu um
þessar mundir og hyggur á útrás.
Saffran, sem hefur notið mikilla
vinsælda á Íslandi með sínum
holla mat, mun opna veitingastað
í Orlando í Flórída fimmtudaginn
4. ágúst.
„Þetta er fyrsti veitinga-
staðurinn sem við opnum erlendis
en við ætlum að opna á fimm stöð-
um í Bandaríkjunum og Kanada á
næsta eina og hálfa ári, líklegast
í Kaliforníu, New York, Boston og
Toronto,“ segir Jay Jamchi, annar
eigenda Saffran. Hann sér alfarið
um opnunina í Flórída, sem mun
standa yfir í þrjá daga, til að kynna
veitingastaðinn fyrir fjölmiðlum
og mikilvægum tengiliðum. Mark-
miðið er að opna veitingastaði um
allan heim og er Orlando tilvalinn
staður vegna fjölda ferðamanna,
en þangað koma fimmtíu milljón
gestir árlega.
„Saffran-veitingastaðurinn í
Flórída er nákvæm eftirmynd
af stöðunum okkar á Íslandi. Við
höfum enga ástæðu til þess að
breyta einhverju eftir alla vel-
gengnina okkar á Íslandi,“ segir
Jay, en ásamt honum eru tveir
Íslendingar í Flórída að undir-
búa opnun veitingastaðarins. Þeir
sjá um þjálfun starfsfólks svo að
maturinn og þjónustan verði líkt
og á Saffran-stöðunum þremur á
Íslandi, en sömu rétti verður að
finna á matseðli nýja staðarins.
Jay segir öllum Íslendingum
velkomið að sækja um starf. Þeim
sem vilja leggja leið sína á þennan
nýja stað er bent á að hann er stað-
settur á móti verslunarmiðstöðinni
Florida Mall.
hallfridur@frettabladid.is
Saffran í útrás til Flórída
Veitingahúsakeðjan Saffran opnar nýjan veitingastað í Flórída á fimmtudag. Þetta er fyrsti Saffran-
staðurinn á erlendri grund, en eigendur keðjunnar hyggja á frekari útrás í Bandaríkjunum og Kanada.
Sömu réttir verða á boðstólum í Flórída
og hér heima.
Jay fyrir utan veitingastað Saffran í Flórída
sem verður opnaður næsta fimmtudag.
AUSTURSTRÆTI 8 - 10 • SÍMI 534 0005
Útsalan hefst í dag kl 13!!!
50% afsláttur af öllum fötum og skóm
teg 20007 - virkilega góður í DE skálum á kr. 4.600,-
vænar buxur í stíl á kr. 1.990,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
O F S A M J Ú K U R O G Þ Æ G I L E G U R !
www.madurlifandi.is
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðarsmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710
Hafnarborg
220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720
Jasmine | Red Fruits & Aronia
Nettle | Lemon & Ginger | White tea
Clipper te 20%
afsláttur
Sérvaldar tegundir með 20% afslætti.
Clipper te eru lífrænt vottuð og
einstaklega ljúffeng.