Fréttablaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 6
2. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
Ókeypis
heyrnarmæling
Pantaðu tíma í ókeypis heyrnarmælingu
og leyfðu okkur að leiðbeina þér við
val á heyrnartækjum með allt að
fjögurra ára ábyrgð.
Læknastö›in • Kringlunni
Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
VERSLUNARMANNAHELGIN
Fjöldi fólks skemmti sér víðs
vegar um landið um mestu ferða-
helgi sumarsins. Veðrið lék misvel
við landsmenn en verst var veð-
urspáin á Suðurlandi. Það setti
hins vegar ekki strik í reikn-
inginn fyrir Þjóð hátíðina í Vest-
mannaeyjum, sem var sú þriðja
stærsta frá upphafi. 40 fíkniefna-
mál, sjö líkamsárásir og tvær
nauðganir höfðu verið kærðar til
lögreglunnar í Eyjum í gær en 14
þúsund manns voru þegar mest
var í Vestmannaeyjum.
„Hér eru allir mjög sáttir og vil
ég koma á framfæri þakklæti til
þjóðhátíðargesta sem létu hvass-
viðri og rigningu ekki á sig fá og
skemmtu sér hið besta í dalnum,“
segir Tryggvi Már Sæmundsson
hjá Þjóðhátíðarnefnd. Að venju
var brekkusöngur Árna Johnsen
hápunkturinn á sunnudagskvöld-
inu og svo tók Páll Óskar við og
hélt uppi stuðinu í Herjólfsdal til
klukkan fimm um morguninn.
Lögreglan á Ísafirði var
almennt ánægð eftir helgina en
þar fór fram hið árlega Mýrar-
boltamót. Talsverð ölvun var þó í
bænum á sunnudagskvöldið en um
átta hundruð manns voru skráð
til leiks og annar eins fjöldi að
horfa á. Ein líkamsárás, tvö tilvik
fíkniefnaaksturs og einn ölvunar-
akstur var skráður hjá lögregl-
unni á Ísafirði yfir helgina.
Jóhann Bæring, einn skipu-
leggjenda Mýrarboltans, segir
met hafa verið í slegið í þátt-
töku í mótinu í ár. „Við erum
mjög ánægðir með gesti og þetta
fór allt saman vel fram enda
mikil veður blíða hjá okkur alla
helgina.“ Aðskilnaðarsamtök
Vestfjarða fór með sigur af hólmi
í karlaflokki Mýrarboltans en
þetta er þriðja árið röð sem liðið
sigrar. Í kvennaflokki unnu FC
Drulluflottar.
Um tólf þúsund manns sóttu
Akureyri heim um helgina og var
viðstatt fjölskylduhátíðina Ein
með öllu. Talsverður erill var hjá
lögreglunni á Akureyri en tvær
líkamsárásir höfðu verið kærðar
og eitt kynferðisbrotamál komið
inn á neyðarmóttöku Sjúkrahúss
Akureyrar.
Skúli Gautason, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, var heilt yfir
sáttur við hátíðina og segir flug-
eldasýninguna á sunnudagskvöld-
inu magnaða. „Þetta var eins og
best verður á kosið. Á sunnu-
dagskvöldið var botninn sleginn
í hátíðina með flugeldasýningu
þar sem í fyrsta sinn var skotið
af palli í sjónum. Það var alger-
lega magnað.“ alfrun@frettabladid.is
Þúsundir á faraldsfæti um helgina
Tugþúsundir Íslendinga lögðu land undir fót um verslunarmannahelgina. Flestir voru á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og á Einni með öllu
á Akureyri. Tugir fíkniefnamála komu upp, fimm nauðgunarmál komu upp í Eyjum og eitt á Akureyri. Nokkrar líkamsárásir kærðar.
STEMNING Í TJÖLDUNUM Veðrið gerði það að verkum að gestir
Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum leituðu sér skjóls inn í tjöldin en þar
var mikil gleði eins og sjá má á þessari mynd.
GLEÐI Á AKUREYRI Botninn var sleginn í fjölskylduskemmtunina Eina með öllu á Akur-
eyri með flugeldasýningu sem 10-12 þúsund manns fylgdust með.
DRULLUSVAÐ Það er enginn hægðarleikur að koma
boltanum milli manna í drullusvaði en þessar stúlkur
reyndu sitt besta á Mýrarboltamótinu á Ísafirði.
Á SÍNUM STAÐ Hápunktur Þjóðhátíðar í Eyjum var brekkusöngur
Árna Johnsen sem glamraði á gítarinn fyrir fjórtán þúsund
áhorfendur í Herjólfsdal.
Í RAUÐUM BLÆ Þjóðhátíðargestir fögnuðu gríðarlega þegar blysin voru tendruð í Herjólfsdal enda tilkomumikil sjón.
Í POLLAGÖLLUM Þjóðhátíðargestir voru klæddir
eftir veðri í Herjólfsdal enda setti rigning svip sinn á
hátíðina.