Fréttablaðið - 02.08.2011, Qupperneq 8
2. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR8
HEITAR LAUGAR Á ÍSLANDI
KOMIN AFTUR Í BÚÐIRNAR
Þriðja prentun.
Ein vinsælasta útivistarbókin
á síðustu árum.
SKRUDDA Eyjarslóð 9 – 101 Reykjavík - skrudda@skrudda.is - www.skrudda.is
FJALLASKÁLAR Á ÍSLANDI – Nauðsynlegur
ferðafélagi í óbyggðum Íslands.
SKIPULAGSMÁL Hestamannafélagið
Gustur vill að staðið verði við sam-
komulag um að Kópavogsbær reisi
reiðhöll sem sé 80x36 metrar. Kópa-
vogsbær hefur samþykkt að kanna
kost n að v ið
byggingu slíkr-
ar reið hallar, en
einnig við höll
sem verði 64 x
34 metrar. Guð-
ríður Arnardótt-
ir segir að í raun
hafi yfirvöld
hafnað stærra
húsinu.
L í k t o g
Fréttablaðið greindi frá í hefur
bæjarfélagið keypt hesthús af eig-
endum í Glaðheimum og hafa hest-
húsin verið flutt að Kjóavöllum.
Samningur var gerður við Hesta-
mannafélagið Gust um að bærinn
tæki yfir eignir félagsins, en reisti
í staðinn nýja aðstöðu að Kjóa-
völlum. Það hefur ekki verið gert.
Guðríður segir að það skýrist
af efnahagshruninu, bærinn geti
einfaldlega ekki tekið lán fyrir
framkvæmdum en þurfi að nýta
rekstrar fé til þeirra.
„Dráttur á því að framkvæmdir
hafi hafist á Kjóavöllum er meðal
annars tilkominn vegna þess að
ekki hefur náðst samkomulag um
stærð reiðhallarinnar, en í fjár-
hagsáætlun ársins 2011 var gert
ráð fyrir að bygging hennar mundi
hefjast á árinu.“
Hermann Vilmundarson, for-
maður Gusts, segir hugmyndir um
annað hús stangast á við samning-
inn. „Þetta snýst fyrst og fremst
um að bærinn er að brjóta samn-
inga sem hafa verið gerðir.“ Hann
segir að vel geti málið endað í
minni reiðhöll, en félagið vilji
fyrst og fremst koma að hönnun.
„Ég á nú eftir að sjá þá reisa þessa
reiðhöll.“
Guðríður segir að þegar fjár-
munir séu af skornum skammti
verði bæjaryfirvöld að fara vel
með þá, enda sé það skylda þeirra
að gæta hagsmuna allra bæjarbúa.
„Það er okkar mat að miðað við
aðstæður og efnahag séum við að
koma verulega til móts við Hesta-
mannafélagið Gust, enda ljóst að
þær áætlanir sem menn höfðu árið
2007 geta engan veginn staðist í
dag í breyttu umhverfi.“
Samningaviðræður eru í gangi
á milli bæjarins og hestamanna-
félagsins, en Guðríður segir tölu-
vert bera á milli hugmynda um
stærð hússins.
Samkvæmt samningum átti
einnig að reisa skeiðvöll við húsið,
en Guðríður bendir á að fyrir á
svæðinu séu skeiðvellir í eigu
hestamannafélagsins Andvara,
sem er úr Garðabæ. Frá árinu
2006 hafi staðið til að hestamanna-
félögin á Kjóavöllum sameinist.
kolbeinn@frettabladid.is
Krafa um enn stærri reiðhöll
Gusts seinkar framkvæmdum
Krafa Hestamannafélagsins Gusts um stærri reiðhöll veldur töfum á framkvæmdum. Bæjaryfirvöld segja
að taka verði mið af efnahagsástandinu. Formaður Gusts segir félagið vilja fá að koma að hönnun.
KJÓAVELLIR Styr stendur um stærð fyrirhugaðrar reiðhallar Gustsmanna að Kjóa-
völlum. Sætti þeir sig við minna hús geta framkvæmdir hafist í haust. Framkvæmdir
hafa staðið yfir á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
NÁTTÚRAN Rennsli Skaftár heldur
áfram að sveiflast til. Frá því að
hlaupið hófst í síðustu viku hafa
verið talsverðar dægursveiflur
og því er ekki hægt að segja til
um hvort hlaupið hafi endanlega
náð hámarki sínu eða hvort því
ljúki fljótlega.
Á miðnætti var rennslið tæp-
lega 350 rúmmetrar á sekúndu
en var í gærdag um 330 rúm-
metrar.
Í hlaupinu í Skaftá í fyrra var
rennslið þegar það var mest um
600 rúmmetrar á sekúndu.
Dægursveiflur í rennsli Skaftár:
Rennslið allt að
350 rúmmetrar
ÍTALÍA Ítalska strandgæslan fann
lík 25 manna um borð í bát sem
flutti flóttamenn frá Líbíu til
ítölsku eyjarinnar Lampedusa.
Alls komst 271 flóttamaður lífs
af með bátnum, sem er ekki nema
fimmtán metrar á lengd. Lík
mannanna 25 fundust í vélarrými
bátsins, en talið er að þeir hafi
kafnað.
Þúsundir flóttamanna frá
Norður-Afríku hafa komið á eyj-
una á síðustu vikum.
Ítalskir fjölmiðlar segja að
fólkið hafi reynt að komast út úr
vélarrúminu en án árangurs. - kh
Stöðvaði flóttamenn frá Afríku:
25 flóttamenn
létust um borð
SAMGÖNGUR Evrópusambandið
hefur gefið út hvítbók í samgöngu-
málum og vinna EFTA-ríkin nú
sameiginlega að umsögn um hana.
Í hvítbókinni er að finna tíu leið-
ir sem unnið verður að til að ná
markmiðinu um samkeppnishæft
samgöngukerfi, sem nýtir endur-
nýjanlega orkugjafa. Markmiðið
er að ná takmarkinu um sextíu
prósenta samdrátt útblásturs.
Meðal þeirra leiða má nefna
þróun og nýtingu nýs og sjálfbærs
eldsneytis og knúningskerfa. Í því
skyni á að fækka ökutækjum sem
nýta sér hefðbundna orkugjafa um
helming til ársins 2030 og útrýma
þeim úr borgarsamfélögum fyrir
árið 2050. Farmflutningabílum
sem gefa frá sér koltvísýring á
hins vegar að útrýma úr borgar-
samfélögum fyrir árið 2030.
Endurnýjanlegt flugvélaelds-
neyti á að nema fjörutíu prósent-
um fyrir árið 2050 og minnka á
útblástur koltvísýrings frá skip-
um um allt að fjörutíu prósent á
sama tíma.
Samkvæmt hvítbókinni á einn-
ig að auka nýtingu samtengdra og
orkusparandi flutningakerfa, svo
sem járnbrauta og skipa.
Ætlunin er að koma á nýju flug-
leiðsögukerfi (SESAR) innan Evr-
ópu fyrir árið 2020 og einnig á
sameiginlegu evrópsku flugsvæði.
Þeir sem það vilja geta sent inn
athugasemdir við umsögn EFTA-
ríkjanna til innanríkisráðuneytis-
ins. - kóp
ESB gefur út hvítbók í samgöngumálum:
Bensínbílar fari úr
borgum árið 2050
OLÍUFLUTNINGAR Farmflutningabílum sem gefa frá sér koltvísýring skal útrýmt úr
evrópskum borgarsamfélögum fyrir árið 2030. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÁTURINN Sjálfboðaliðar og læknar
hlúðu að flóttamönnunum eftir að
báturinn lagðist að bryggju við eyjuna
Lampedusa. NORDICPHOTOS/AFP
MEXÍKÓ Leiðtogi glæpasamtaka
í Mexíkó hefur viðurkennt að
hafa átt aðild að 1.500 morðum.
Stjórnvöld í Mexíkó höfðu heitið
140 milljónum til höfuðs honum.
Jose Antonio Acosta Hernan-
dez, sem yfirleitt er kallaður El
Diego, var handtekinn á föstudag
og við yfirheyrslur viðurkenndi
hann að hafa myrt eða fyrir-
skipað morð á um 1.500 einstak-
lingum á undanförnum árum.
Hernandez fer fyrir glæpasam-
tökunum La Linea í norðurhluta
Mexíkó. Hann er fyrrverandi lög-
reglumaður.
Hernandez er meðal annars
sagður hafa fyrirskipað morð á
bandarískum ræðismanni, Les-
ley Enriquez, og eiginmanni
hennar sökum þess að hún hafi
veitt andstæðingum hans vega-
bréf í landamæraborginni Ciu-
dad Juarez.
Enriquez var gengin fjóra mán-
uði með barn þeirra hjóna, en þau
voru bæði skotin til bana í bif-
reið sinni á leið heim úr afmælis-
veislu. Sjö mánaða gömul dóttir
þeirra fannst grátandi í aftur-
sætinu í kjölfarið.
- kh
El Diego, leiðtogi mexíkóskra glæpasamtaka, handtekinn á föstudag:
Játar aðild að 1.500 morðum
EL DIEGO Leiðtogi glæpasamtakanna La
Linea hefur viðurkennt að hafa átt þátt í
1.500 morðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1. Hvar fór ungmennalandsmót
UMFÍ fram um helgina?
2. Hvar fannst taflmaður fyrir
skömmu sem talinn er að hafi verið
skorinn út á 12. eða 13. öld?
3. Hvaða söngkona ýtti Bubba
Morthens út í sálartónlistina?
SVÖR:
1. Egilsstöðum. 2. Siglunesi við Siglufjörð.
3. Amy Winehouse
VEISTU SVARIÐ?