Fréttablaðið - 02.08.2011, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 2. ágúst 2011 11
ÍS
LE
NS
KA
SI
A.
IS
A
RI
55
77
5
07
/1
1
arionbanki.is – 444 7000
Hvað skiptir þig máli? Það skiptir máli að nýta fjármuni sína á sem hagkvæmastan hátt. Þú getur:
Greitt niður yfirdráttinn
Greitt inn á lán
Lagt fyrir í varasjóð
Komdu til okkar í næsta útibú og fáðu góð ráð um hvernig er best að ráðstafa
peningunum frá skattinum. Við tökum vel á móti þér.
Fékkstu endurgreiðslu
frá skattinum?
SLYS Fjórir unglingar hafa slasast í fisk-
vinnslufyrirtækjum á undanförnum vikum,
þar af slasaðist einn alvarlega á hendi. Í
kjölfar þessara slysa og ábendinga vegna
meintra brota á ákvæðum reglugerðar um
vinnu barna og unglinga hefur Vinnueftir-
litið tilkynnt fiskvinnslufyrirtækjum að þau
geti átt von á að störf og starfsskilyrði ung-
menna verði könnuð á næstunni. Jafnframt
að búast megi við kæru komi í ljós að um
brot á reglugerðinni sé að ræða.
„Við höfum lagt áherslu á að vekja athygli
á reglugerðinni og kynnt hana á vinnustöðum
og í skólum auk þess sem við höfum reynt
að ná til foreldra. Samkvæmt reglugerðinni
mega krakkar ekki vinna við vélar sem eru
með hraðgengum hlutum,“ segir Þórunn
Sveinsdóttir, deildarstjóri hjá Vinnueftir-
litinu.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli að
börn og unglingar séu ráðin í störf sem hæfa
þeirra líkamlega og andlega þroska,“ bætir
hún við.
Um þar síðustu helgi lenti 14 ára unglingur
með höndina í tromlu í marningsvél í fisk-
verkun Godthaab í Nöf í Vestmannaeyjum.
Neyðarstoppið virkaði ekki rétt en nærstadd-
ur starfsmaður gat stöðvað vélina, að sögn
Tryggva Kr. Ólafssonar, rannsóknarfulltrúa
hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. „Húðin
af handarbakinu flettist af og líklega eru
tveir fingur skaddaðir,“ segir Tryggvi. - ibs
Vinnueftirlitið skoðar möguleg brot fiskvinnslufyrirtækja eftir nokkur slys:
Unglingar slasast við vélar í fiskvinnslu
VIÐ FISKVINNSLU Fjórir unglingar hafa slasast í vinnu í
fiskvinnslufyrirtækjum upp á síðkastið.
DANSAR Engu er líkara en þessi
pelíkani stígi dansspor í dýragarðinum
í Prag, en líklegra verður að telja að
hann sé að teygja sig.
NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Gunnar Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Baugs,
hefur verið beðinn um að víkja
úr stjórn Iceland Foods. Breska
blaðið Sunday Telegraph segir að
skilanefnd Landsbankans, sem
á um 67 prósenta hlut í Iceland,
muni skipa Lárentsínus Krist-
jánsson í stjórnina í stað Gunn-
ars. Lárentsínus er formaður
skilanefndar Landsbankans.
Eins og kunnugt er stendur til
að selja hlut skilanefndar Lands-
bankans í Iceland fljótlega.
Sunday Telegraph segir að mögu-
legir kaupendur muni fá söluyfir-
lit innan sex vikna.
Skilanefnd Landsbankans eign-
aðist hlutinn í Iceland við gjald-
þrot Baugs. Talið er að hluturinn
sé 1,2 milljarða sterlingspunda
virði. - jhh
Breytingar í stjórn Iceland:
Gunnar víkur
úr stjórninni
Stálu 40 lítrum af bensíni
Brotist var inn í bátaskýli við Ósbraut
í Garðinum á föstudag og þaðan
stolið tveimur tuttugu lítra brúsum
af bensíni. Samkvæmt lögreglunni
á Suðurnesjum er málið í rannsókn.
Víkurfréttir greindu frá.
LÖGREGLUMÁL
VIÐSKIPTI Apple-fyrirtækið á
meira handbært fé en ríkissjóður
Bandaríkjanna. Nýjustu tölur frá
fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna
sýna að fyrirtækið á 73 milljarða
Bandaríkjadala í handbæru fé.
Apple á hins vegar 76,4 milljarða.
Handbært fé Apple samsvarar um
8.700 milljörðum íslenskra króna.
Tekjur Apple hafa verið að
aukast. Uppgjör fyrirtækisins
á öðrum ársfjórðungi sýnir að
tekjur fyrirtækisins jukust um
125 prósent miðað við sama tíma-
bil í fyrra. - jhh
Tekjur Apple-risans aukast:
Meira lausafé en
bandaríska ríkið
FÓLK Kvikmyndin Harry Potter
og dauðadjásnin: hluti tvö, hefur
halað inn einn milljarð Banda-
ríkjadala í miðasölu, samkvæmt
framleiðandanum Warner Bros.
Þetta er í fyrsta sinn sem mynd
um galdrastrákinn vinsæla nær
milljarðsmarkinu. Harry Potter
og viskusteinninn var sú mynd
sem hafði haft mest upp úr miða-
sölu fram til þessa, 947 milljónir
Bandaríkjadala árið 2001.
Ævintýramyndin Avatar, frá
árinu 2009, á ennþá metið yfir
mestar tekjur í miðasölu en hún
halaði inn 2,8 milljarða Banda-
ríkjadala.
Talið er að Harry Potter og
dauðadjásnin muni sigla fram úr
nýjustu myndinni um Sjóræn-
ingjana á Karíbahafi en sú mynd
hefur náð mestum tekjum úr
miðasölu það sem af er þessu ári,
um 1,03 milljörðum dala.
Vinsæll galdrastrákur:
Harry Potter
malar gull