Fréttablaðið - 02.08.2011, Side 34
2. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
69
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Sigríður Valdimarsdóttir
frá Bringu í Eyjafirði,
lést á Kjarnalundi miðvikudaginn 27. júlí.
Jarðarför hennar verður gerð frá Munkaþverárkirkju
kl. 13.30 þriðjudaginn 2. ágúst.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Sverrir Gunnarsson
Vignir Gunnarsson Bergljót Jónsdóttir
Kristbjörg Gunnarsdóttir Jón Matthíasson
Valdimar Gunnarsson Svava Jóhannsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ásta Karlsdóttir
sjúkraliði
Árskógum 6, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
3. ágúst kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþökkuð. Þeir sem vilja minnast Ástu eru beðnir um
að láta líknarfélög njóta þess.
Haukur Bergsson
Ólafur Steinar Hauksson Bergþóra Hafsteinsdóttir
Bergur Hauksson Auður Harðardóttir
Eva Hauksdóttir Viðar Freyr Sveinbjörnsson
Sigurður Hauksson Kristín Axelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Erlingur Kristinn
Stefánsson
járnsmiður,
Tröllaborgum 13, Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut sunnudaginn 24. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn
3. ágúst kl. 13.00.
Andrés Erlingsson Gyða Sigurlaugsdóttir
Guðbrandur Erlingsson Jessika Larsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Óskar Ágústsson
Íþróttakennari á Laugum,
Suður-Þingeyjarsýslu,
andaðist miðvikudaginn 27. júlí sl. Útförin fer fram
þriðjudaginn 9. ágúst í Hallgrímskirkju kl. 13.00.
Elín Friðriksdóttir
Ágúst Óskarsson Helga Sigurðardóttir
Hermann Óskarsson Karín M. Sveinbjörnsdóttir
Knútur Óskarsson Guðný Jónsdóttir
Una María Óskarsdóttir Helgi Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Margrét Sólveig
Guðmundsdóttir
frá Þverdal í Aðalvík, Furugerði 1,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 25. júlí, verður jarðsungin frá Neskirkju
fimmtudaginn 4. ágúst kl. 13. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Minningarsjóð Líknardeildar
Kópavogs LSH s: 543 1159.
Hjálmar B. Gíslason
Snorri Hjálmarsson Sigríður L. Guðjónsdóttir
Gísli Hjálmarsson Soffía Nönnudóttir
Berglind Sigurðardóttir
Ína Dóra Hjálmarsdóttir Benóný Guðjónsson
ömmubörn og langömmubörn.
Þökkum af alhug öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og styrk við
fráfall ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Viggó J.
Nordquist.
Kristjana Valgerður Jónsdóttir
Sigrún Viggósdóttir Páll Gunnar Loftsson
Kristján Viggósson Erna Guðmundsdóttir
Vilberg Viggósson Ágota Joó
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, amma, dóttir,
systir og mágkona,
Ástríður Karlsdóttir
Klapparstíg 14 101 Reykjavík
lést laugardaginn 23. júlí. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju, föstudaginn 5. ágúst kl. 11.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Von, félag til styrkar
skjólstæðingum á gjörgæslu LSH.
f.h. aðstandenda,
Dóra Sif Tynes
Hrefna Tynes
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur og bróðir,
Elmar Halldórsson
Þiljuvöllum 37, Neskaupstað,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 24. júlí.
Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju
miðvikudaginn 3. ágúst kl. 14.00.
Bergþóra Stefánsdóttir
Stefán Einar Elmarsson Aðalbjörg Ósk
Guðmundsdóttir
Katrín Unnur Elmarsdóttir
Melkorka Elmarsdóttir Margeir Örn Óskarsson
Tómas Styrmir Stefánsson
Oliver Snær Stefánsson
Fanney Ósk Sveinbjörnsdóttir
Kristín Elma Margeirsdóttir
Halldór Hinriksson
og systkini hins látna
Nú í haust hefði Eyjapeyinn Oddgeir Kristjánsson (1911-
1966) orðið hundrað ára gamall.
Í tilefni af afmælinu og nýyfirstaðinni þjóðhátíð í Eyjum
blæs Tríó Blik til tónleika í listasafni Sigurjóns Ólafs sonar
þar sem lög Oddgeirs við texta Ástgeirs Ólafssonar frá
Litlabæ, Ása í Bæ, verða flutt í nýlegum útsetningum Atla
Heimis Sveinssonar.
Oddgeir samdi fyrsta opinbera Þjóðhátíðarlagið árið 1933,
það hét Setjumst að sumbli og er textinn eftir Árna Guð-
mundsson úr Eyjum. Úr varð sú hefð að láta semja árlegt
Þjóðhátíðarlag upp frá þessu en þeir félagarnir sáu um laga-
smíðarnar um nær tveggja áratuga skeið. Á þessum tíma
voru Oddgeir og Ási líka byrjaðir að vinna saman.
Í ritgerð sem Freyja Gunnlaugsdóttir, klarínettu leikari í
Tríó Blik, skrifar í tengslum við tónleikana í dag út skýrir
hún tilurð Eyjalaganna svokölluðu. Í ritgerðinni segir
meðal annars að lög Oddgeirs og Ása hafi verið frábrugðin
þeirri sönghefð alþýðu sem ríkti á Íslandi í lok 19. aldar og
á framan verðri 20. öld: „Hún einkennist af rómantískum
ættjarðar- og sveitasöngvum undir þýsk-dönskum áhrifum.
Á hinn bóginn sækja lög Vestmannaeyinganna fyrirmyndir
í danstónlist samtímans.“ Freyja segir líka að textarnir séu
ástarljóð en oft með vinalegum húmor sem bjargi þeim frá
óhóflegri væmni en myndmál textanna er oft tengt hafinu
og sjávarsíðunni.
Oddgeir var að mestu leyti sjálfmenntaður í tónlist. Hann
fór þó í fiðlunám til Reykjavíkur í eitt ár en þurfti frá að
hverfa þegar heimskreppan skall á. Veturinn 1944-45 var
hann við tónfræðinám hjá Róberti A. Ottóssyni. Hann vann
lengst af hjá Vörubílastöð Vestmannaeyja og var orðinn for-
stjóri fyrirtækisins þegar hann hætti og gerðist tónlistar-
kennari við Barnaskólann og einbeitti sér meir að Lúðra-
sveit Vestmannaeyja sem hann stjórnaði.
„Þegar aðrir sváfu las hann góðar bækur til að auðga anda
sinn, þegar aðrir hvíldust samdi hann lögin sín,“ sagði Ási
í Bæ eftir andlát Oddgeirs, sem lést aðeins 54 ára að aldri.
Tónlistin gaf lítið í aðra hönd og hugsjónastarfið í lúðra-
sveitinni bauð upp á hark. Í Eyjablaðinu 14. mars árið 1966
skrifaði Ási í Bæ eftirfarandi í minningargrein:
„Þær raddir heyrðust, sem ekki lögðu mikið upp úr þessu
„hornagauli“. Í fyrstu reyndist erfitt að halda saman, eftir
að vertíð var gengin í garð, ekki laust við, að sumum fyndist
hálfhégómlegt að lalla upp í Barnaskóla og púa lofti í látúns-
hólka, þegar þorskurinn beið óaðgerður í kösum á bryggjum
og pöllum. Menn sögðu við hann: Af hverju ertu að standa
í þessu veseni? Já, af hverju ekki að fara í flökun eins og
hinir?“ En Svava Guðjónsdóttir, eiginkona Oddgeirs, hélt
honum gangandi og sagði: „Ef þú ferð í flökun, þá tek ég
við lúðrasveitinni!“
Tónleikarnir með Tríó Blik eru í kvöld klukkan hálfníu.
TRÍÓ BLIK: ALDARAFMÆLISTÓNLEIKAR TIL HEIÐURS ODDGEIRI KRISTJÁNSSYNI
Samdi lög þegar aðrir hvíldust
TRÍÓ BLIK Þær Freyja Gunnlaugsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir og
Daniela Hlinková halda tónleika í tilefni af aldarafmæli Oddgeirs
Kristjánsonar.
ISABEL ALLENDE rithöfundur er 69 ára.
„Skrifið það sem ekki ætti að gleymast.“