Fréttablaðið - 22.08.2011, Síða 2
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR2
FÓLK Söfnun til stuðnings tónlistar-
manninum Kristjáni Eldjárn
Hjartar syni á Tjörn í Svarfaðardal
lýkur á næstu dögum. Hann er nú
á batavegi eftir alvarlegt bílslys.
Kristján hryggbrotnaði í slys-
inu sem varð á Árskógsströnd í
júní síðastliðnum en slapp þó við
mænuskaða. Nú er aðalverkefni
hans að ná heilsu og þreki með
endurhæfingu en það tekur tíma
og hann er frá vinnu á meðan, eins
og gefur að skilja.
Kristján er fjallaleiðsögu-
maður og hugðist fara á fjöll með
hópa göngufólks í sumar. Hann er
samt trúlega þekktari fyrir tón-
listarsköpun. Þau Tjarnarhjón,
Kristjana Arngrímsdóttir og
Kristján, voru helmingur Tjarnar-
kvartettsins á sínum tíma og hafa
síðan komið fram saman við ýmis
tækifæri hérlendis og erlendis og
gefið út diska með tónlist sinni.
„Sjálfgefið er að reyna að
aðstoða Kristján og fjölskylduna
þegar svona
stendur á. Það
er nú þannig
að tekju brestur
bætist þarna
við heilsu tjónið
en útgjöld og
afborganir gufa
hins vegar ekki
upp,“ segir Atli
Rúnar Halldórs-
son í samtali
við Fréttablað-
ið, en hann hóf söfnunina ásamt
syst kinum sínum frá Jarðbrú í
Svarfaðar dal.
„Kristjana og Kristján hafa glatt
okkur og aðra landsmenn um ára-
bil og nú fáum við tækifæri til að
sýna þeim þakklætisvott í verki.
Svarfdælingum hefur alltaf þótt
sjálfsagt að deila bæði gleði og
mótlæti og veita grönnum sínum
hjálp óumbeðnir en nú leituðum við
líka út fyrir héraðið, enda Tjarnar-
hjónin landsþekkt fólk. Við höfum
kynnt söfnunina að mestu leyti á
Face book og í gegnum tölvupóst og
erum afar þakklát fyrir viðbrögð-
in.“
Atli segir að Kristján sé fædd-
ur fjallamaður og fari á hverja þá
tinda sem hann ætli sér.
„Sjálfsagt lítur hann á það sem
hverja aðra áskorun í fjallaklifri
að ná fullri heilsu. Honum mun tak-
ast það þrátt fyrir að hann geti sem
stendur bara legið eða staðið upp-
réttur með gjarðir um sig miðjan.
Ég hitti hann nú síðast á Fiskideg-
inum mikla á Dalvík, standandi úti
í horni í menningarhúsinu Bergi
að hlusta á eiginkonuna Kristjönu
syngja tangó og það var mikill
hugur í karli!“
Söfnunin er undir heitinu
„Kveðja til Kristjáns“. Þeir sem
vilja leggja henni lið geta lagt inn
á söfnunarreikning í Sparisjóði
Svarfdæla, 1177-26-2900, kennitala
270161-3759.
thorgils@frettabladid.is
Vinir styrkja Kristján
á erfiðum tímum
Tónlistarmaðurinn Kristján Eldjárn Hjartarson úr Svarfaðardal er á batavegi
eftir bílslys. Verður þó frá vinnu enn um hríð. Vinir og nágrannar Kristjáns
hafa staðið fyrir söfnun til styrktar honum sem lýkur á næstu dögum.
BARÁTTA FRAM UNDAN Vinir og nágrannar Kristjáns frá Tjörn standa fyrir söfnun til styrktar Kristjáni. Hann sést hér með eigin-
konu sinni, börnum þeirra Ösp og Erni og loks Soffíu Björgu Óðinsdóttur á Fiskideginum mikla á Dalvík fyrir skemmstu.
MYND/ATLI RÚNAR HALLDÓRSSON
ATLI RÚNAR
HALLDÓRSSON
UMFERÐ „Nú þegar skólarnir eru
að byrja þurfa foreldrar að hafa
í huga að mikil umferð í kringum
skólana skapar ekki bara hættu
fyrir þau börn sem koma gang-
andi í skólann, heldur einnig
fyrir börnin sem fara út úr bíl-
unum. Þau þurfa kannski að
ganga yfir bílastæði,“ segir Þóra
Magnea Magnúsdóttir, fræðslu-
fulltrúi hjá Umferðarstofu.
Við suma skóla hefur verið
útbúin sérstök aðkeyrsla, nánast
hringtorg, og segir Þóra mikil-
vægt að sleppa börnunum út þar.
„Þar stöðva bílarnir hver á eftir
öðrum og börnin fara út á sama
stað.“
Hún segir Umferðarstofu
leggja ríka áherslu á að fundin
sé örugg gönguleið fyrir börn-
in sem séu að hefja skólagöngu
í fyrsta sinn. „Öruggasta leiðin
er ekki endilega sú stysta. Það
er nauðsynlegt að æfa sig í þessu
nokkrum sinnum ef börnin eiga
að ganga í skólann. Aðalatriðið er
að kenna börnunum einfaldar og
fáar reglur.“
Þóra segir ekki nóg að vera
bara með endurskinsmerki á
skólatösku eða fatnaði þega
skyggja tekur. „Endurskins-
merkin þurfa að hanga til beggja
hliða, á handleggjum eða stígvél-
um. Þau þurfa að vera á hreyf-
ingu.“
Þóra Magnea bendir einnig á
að börn yngri en sjö ára megi
ekki hjóla í umferðinni. - ibs
Mikil bílaumferð í kringum skóla skapar hættu fyrir nemendur:
Foreldrar hugi að öruggri leið
Á LEIÐ Í SKÓLANN „Brýna þarf fyrir
börnum að nota gangbrautir og hand-
stýrð umferðarljós,“ segir fræðslufulltrúi
Umferðarstofu. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Gunnar, er þetta nokkuð
kattarþvottur af þinni hálfu?
„Nei, það þýðir ekkert að fara í
kringum svona vandamál eins og
köttur í kringum heitan graut.“
Gunnar Theodór Eggertsson rithöfundur
lenti í rifrildi á Facebook um hvort ketti
skuli hafa í bandi utandyra. Í kjölfarið gaf
hann út bókina „Köttum til varnar“ og
ánafnaði Kattavinafélaginu ágóðann af
sölunni.
FÓLK Vestmannaeyingar minntust
fyrsta flugsins til Vestmanna-
eyja, sem átti sér stað hinn 14.
ágúst árið 1946. Halldór Bech og
Hjalti Tómasson fóru það flug á
vél af gerðinni Piper Cub.
Upphaflega stóð til að fljúga
sömu vél til Vestmannaeyja 14.
ágúst en hætta varð við þau
áform vegna veðurs. Þess í stað
var flogið síðastliðinn á laugar-
dag, og flugu 20 vélar með Piper
Cub vélinni frá Bakkaflugvelli.
Flugmenn fengu sér kaffi og
vöfflur í tilefni dagsins og héldu
svo aftur til síns heima. - sm
Piper Cub-flugvél sneri aftur til Vestmannaeyja 65 árum eftir fyrsta flugið til Eyja:
Flugmennirnir fengu kaffi og vöfflur
FLUGFÉLAGAR Ottó Tynes (til hægri) og Ingvar Valdimarsson flugu til Vestmannaeyja
á Piper Cub-vélinni TF-KAK á laugardag í tilefni þess að sextíu og fimm ár voru liðin
frá fyrsta fluginu til Eyja, sem farið var á sömu vél. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
GAZA Hamas-samtökin og ísraelsk
stjórnvöld hafa samþykkt vopna-
hlé eftir þriggja daga stöðuga
bardaga. Upphaf átakanna má
rekja til þess er þrjár bifreiðar
ísraelska hersins urðu skotmörk
Hamas-samtakanna. Ísraelar
svöruðu með loftárásum og á
móti skutu Hamas-samtökin eld-
flaugum.
Átökin komu samskiptum
Egyptalands og Ísraels í uppnám
eftir að þrír egypskir lögreglu-
menn létu lífið í einni loftárás-
inni. Að sögn Hamas-liða munu
þeir sjá til þess að vopnahlénu,
sem tók gildi í gær, verði fram-
fylgt. - sm
Vopnahlé á Gaza-svæðinu:
Hætta árásum
eftir hörð átök
RÚSTIR Hamas-liði skoðar húsarústir í
Palestínu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Hátt í hundrað þús-
und manns voru í miðborginni á
laugardag, Menningarnótt, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Nokkrar líkamsárásir voru til-
kynntar til lögreglu en engin
þeirra var talin alvarleg. Þá gistu
nokkrir fangageymslur.
Karl um þrítugt var handtekinn
við danska sendiráðið á Hverfis-
götu. Hann hafði flaggað flík á
fánastöng sendiráðsins en var
sleppt eftir stutta dvöl á lögreglu-
stöð.
Umferð gekk að mestu áfalla-
laust. Nokkur umferðaróhöpp voru
tilkynnt til lögreglu og má rekja
tvö þeirra til ölvunaraksturs. - kg
Fjölmenni á Menningarnótt:
Flaggaði flík
við sendiráð
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur
karlmaður hefur verið ákærður
fyrir að hafa í október 2010 haft
í vörslum sínum rúmlega sjö
grömm af amfetamíni, kannabis-
lauf og 59 kannabisplöntur.
Manninum er einnig gefið að sök
að hafa ræktað plönturnar.
Þá hefur karlmaður á þrítugs-
aldri verið ákærður fyrir að
hafa haft í vörslu sinni tæp 180
grömm af maríjúana, fjörutíu
grömm af kannabislaufum og
smáræði af tóbaksblönduðu
kannabisefni. - jss
Tveir karlmenn ákærðir:
Með amfetamín
og kannabsiefni
DANMÖRK Héraðsstjórnirnar
fimm í Danmörku, sem hafa
meðal annars haft umsjón
með sjúkrahúsum hvert í sínu
umdæmi, verða lagðar niður frá
ársbyrjun 2013. Löggjöf þess efn-
is var samþykkt á danska Þjóðar-
þinginu nýverið, með minnsta
mögulega mun.
Helsti tilgangurinn á bak við
þessar breytingar er að koma
sjúkrastofnunum undir lands-
stjórnina til að tryggja vandaða
og samhæfða stjórnsýslu og
spara þar með fé sem væri betur
borgið í þjónustu við sjúklinga. - þj
Umdeildar breytingar:
Héraðsstjórnir
verða lagðar af
IÐNAÐUR Eftirspurn eftir þorska-
lýsi um allan heim hefur aukist
svo mikið að Lýsi hf. vantar nú
meiri lifur til að anna eftirspurn.
Þetta þakka Lýsismenn mark-
vissu markaðsstarfi síðustu ára
sem hefur skilað sterkri stöðu
fyrirtækisins á erlendum mörk-
uðum.
Aukin eftirspurn veldur því
að nýleg verksmiðja fyrirtækis-
ins sem byggð var árið 2005 er
nú að mestu fullnýtt. Því verður
mætt með byggingu nýrrar verk-
smiðju á Fiskislóð sem verður
tæpir 4.000 fermetrar að stærð
og í henni búnaður sem tvöfaldar
núverandi afkastagetu. - shá
Byggja nýja verksmiðju:
Anna ekki eftir-
spurn eftir lýsi
Varar við afskiptum
Bashar Assad Sýrlandsforseti kom
fram opinberlega í gær. Hann varaði
önnur ríki við afskiptum af ástandinu
í landinu og sagði að stjórn hans væri
ekki í neinni hættu. Mannréttinda-
hópar segja að herlið Assads skjóti
reglulega á óvopnaða mótmælendur
og að nú séu um tvö þúsund manns
látnir.
SÝRLAND
SPURNING DAGSINS
ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Skólaostur i sneiðum
og 1 kg stykkjum á tilboði