Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 22.08.2011, Qupperneq 4
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR4 Þó að leikskólagjöld séu há standa þau ekki undir nema um 16 til 24 prósentum af heildar rekstrar- kostnaði leikskólanna í dag. HALLDÓR HALLDÓRSSON FORMAÐUR SÍS KJARAMÁL Samningar Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga verða kynntir félagsmönnum í dag og næstu daga. Leikskólakennarar munu fá um sjö prósenta hækkun strax, verði samningurinn sam- þykktur. Samninganefnd leikskóla kennara og sveitarfélaganna skrifuðu undir kjarasamninginn á laugardag, með fyrirvara um samþykki félags- manna. Ekki hefur fengist upp gefið um hvað var samið í smáatriðum, en leikskólakennarar kröfðust þess að laun þeirra hækkuðu nægilega mikið til að þau yrðu sambæri- leg við laun grunnskólakennara. Samningurinn mun fela í sér launa- hækkun til samræmis við laun við- miðunarstétta, en launin munu hækka í þrepum. Ekki er hægt að segja nákvæm- lega til um hversu mikið launin munu hækka umfram grunn- hækkunina fyrr en unnin hefur verið ákveðin greining á launum viðmiðunarstétta, segir Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninga- nefndar sveitarfélaganna. Haraldur F. Gíslason, for maður Félags leikskólakennara, segist ánægður með að samningar hafi náðst og að hægt hafi verið að afstýra verkfalli sem boðað hafði verið í dag. „Við náðum markmiðum okkar og erum því mjög sátt við samninginn. Við munum síðan nota vikuna til að kynna samningana vel fyrir félags- mönnum. Ég er líka afskaplega þakklátur fyrir það að ekki komi til verkfalls og finnst ofsalega gott að geta þakkað þeim sem sýndu okkur stuðning með því að afstýra þessu verkfalli,“ segir Haraldur. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS), segir það sama gilda um þess- ar launahækkanir og aðrar sem samið hafi verið um. Sveitarfélögin verði að hækka skatta eða þjónustu- gjöld til að mæta hækkuninni eða segja upp starfsfólki. „Í upphafi var lagt upp með það að tekjuaukning myndi standa undir þessum hækkunum en það hefur ekki gengið eftir. Þá verð- um við annað hvort að auka tekjur sveitarfélaganna með skattahækk- unum eða hærri þjónustugjöldum og svo áframhaldandi niðurskurði og hagræðingu,“ segir Halldór. „Þó að leikskólagjöld séu há standa þau ekki undir nema um 16 til 24 prósentum af heildar rekstrar kostnaði leikskólanna í dag.“ sara@frettabladid.is GENGIÐ 19.08.2011 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,9034 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,10 114,64 188,21 189,13 163,12 164,04 21,898 22,026 20,757 20,879 17,656 17,760 1,4917 1,5005 183,17 184,27 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ÁRSKORT Í VEGGSPORT – SKVASS OG HEILSURÆKT Með árskorti í Veggsport hefurðu aðgang að fjórum skvassvöllum, tækjasal og almennum æfingasal. www.veggsport.is 25 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið HÓPKAUP.IS Í DAG í krafti fjöldans hópkaup.is 35.940 kr. GILDIR 24 TÍMA 59.000 kr. Verð 40% Afsláttur 23.060 kr. Afsláttur í kr. Leikskólakennarar hækka strax um 7% Nýgerðir kjarasamningar leikskólakennara við sveitarfélögin verða kynntir félagsmönnum í vikunni. Leynd hvílir yfir ákvæðum í samningnum í bili. Sveitarfélögin verða að hækka skatta eða þjónustugjöld segir formaður SÍS. VERKFALLI AFSTÝRT Samningar milli leikskólakennara og sveitarfélaganna hafa náðst og verkfalli hefur því verið afstýrt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HEILBRIGÐISMÁL Björn Zoëga, for- stjóri Landspítalans, treystir sér ekki til að tiltaka hvaða þjónustu gæti reynst nauðsynlegt að fella niður komi til frekari niður skurðar á spítalanum. „Við erum að skoða þessi mál og það er ekki tímabært að segja hvað það verður sem víkur. Um sumt þarf að hafa samráð við ráðuneytið sem skipuleggur heildarþjónustuna og hvort það séu einhver sérstök atriði sem það leggur áherslu á að við leggjum niður frekar en eitt- hvað annað. Þessi umræða er ekki komin svo langt.“ Í síðustu viku sagði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra að erfitt væri að sneiða framhjá LSH við niðurskurð í ríkisfjármálum, enda tæki spítalinn það stóra sneið af framlögum til heilbrigðismála. Björn sagði fréttirnar vera áfall og að ekki yrði hagrætt lengur held- ur yrði einhver þjónusta að leggj- ast af. Í viðtali við Fréttablaðið í nóvem- ber í fyrra sagði Björn að kæmi til frekar niðurskurðar, sem nú er boðaður, yrði reynt að viðhalda bráðastarfsemi en minnka annað. „Birtingarmynd þess yrði óendan- legir biðlistar og fólk fengi ekki þjónustu svo mánuðum skiptir,“ sagði Björn í nóvember. Nú er krafa á velferðar- ráðuneytið um 1,5 prósenta niður- skurð. Frá hruni hefur þegar verið skorið niður um 23 prósent á LSH. Starfsmenn spítalans voru 5.218 í janúarlok 2009. Í lok maí í ár voru þeir 4.627. - shá Forstjóri Landspítalans segir óábyrgt að nefna á þessari stundu þjónustu sem gæti vikið vegna niðurskurðar: Segir það stjórnvalda að leggja línuna NIÐURSKURÐUR Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir það vinnu næstu mánuða að skilgreina hvaða þjónusta verði að víkja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 32° 33° 24° 21° 29° 32° 20° 20° 25° 23° 33° 28° 33° 21° 27° 22° 20°Á MORGUN Strekkingur með SA- strönd, annars hægari. MIÐVIKUDAGUR Strekkingur með SA- strönd, annars hægari. 13 12 8 8 8 13 12 10 10 11 10 10 10 10 10 10 10 11 9 8 7 6 5 5 3 3 5 3 3 5 4 3 VÆTA Það verður væta um landið sunnan- og vestanvert í dag og áfram sunnan til á morgun en eftir það léttir þar til. Norðanlands verð- ur minni úrkoma næstu daga en að mestu leyti skýjað. Um miðja viku fer heldur kólnandi og þá fyrst um landið norðanvert. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður ÍRAN Tveir Bandaríkjamenn voru á laugardag dæmdir í átta ára fangelsi fyrir njósnir í Íran. Mennirnir voru handteknir fyrir tveimur árum ásamt kvenkyns samlanda sínum nærri landa- mærum Íran og Írak. Dómurinn kom mönnunum og fjölskyldum þeirra mjög í opna skjöldu enda segjast þeir saklaus- ir. Talsmaður mannanna sagði þá aðeins hafa verið á göngu í Írak nærri landamærum Írans. Konan sem handtekin var með þeim var látin laus gegn trygg- ingu í september á síðasta ári. - sm Bandaríkjamenn dæmdir: Átta ára fang- elsi fyrir njósnir DÆMDIR Dómurinn kom Bandaríkja- mönnunum Shane Bauer (til vinstri) og Josh Fattal í opna skjöldu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÍRAK Sjö létu lífið í loftárásum Tyrkja í Norður-Írak í gær, þar á meðal fimm börn. Tyrkir hafa staðið fyrir loftárásum gegn upp- reisnarmönnum í landinu síðan á miðvikudag. Árásirnar beinast gegn Verka- mannaflokki Kúrda, sem er skil- greindur sem hryðjuverkasamtök af evrópskum og bandarískum yfirvöldum. Flokkurinn hefur í fullveldisbaráttu sinni fellt um 40 hermenn frá því í júlí, auk þess sem tugir þúsunda hafa látist í deilunum, sem staðið hafa allt frá árinu 1984. - sm Tyrkir gera loftárásir í Írak: Sjö létu lífið TÆKNI Þýski persónuverndar- fulltrúinn í Slésvík-Holstein hefur lagt fyrir að allar opin- berar stofnanir loki aðdáendasíð- um sínum á Facebook og fjarlægi „líkar við“-hnappa af heima- síðum sínum. Frá þessu segir á heimasíðu Persónuverndar. Þessi niðurstaða kemur í kjöl- far rannsóknar sem gerð var á Facebook af hálfu embættisins í Slésvík-Holstein. Komst fulltrú- inn að þeirri niðurstöðu að slík framkvæmd gengi gegn ákvæð- um þýskra fjarskiptalaga og persónuverndarlaga. Nokkrar opinberar stofnanir á Íslandi, meðal annars utanríkis- ráðuneytið, halda úti síðum á Facebook. - kg Rannsókn á Facebook: Stofnanir loki aðdáendasíðum BANDARÍKIN Vísindamenn við Yale- háskólann óttast að ör uppbygging muni hafa skæð áhrif á náttúruna í nánustu framtíð. Nýleg rannsókn sem gerð var við háskólann spáir því að árið 2030 muni ört stækkandi borgir hafa lagt undir sig um 1,5 milljón ferkílómetra landsvæði, eða sem samsvarar stærð Mongólíu, til að mæta húsnæðisþörf jarðarbúa. Borgirnar munu leggja undir sig fjölbreytt landslag og hafa sérstak- lega slæm áhrif á umhverfið, segja vísindamenn við Yale-háskóla. - sm Stórt landsvæði undir borgir: Slæm áhrif á umhverfið 84 samningar í síðustu viku Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 84. Þar af voru 69 samningar um eignir í fjölbýli, 13 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 2.048 milljónir króna og meðalupphæð 24,4 milljónir. FASTEIGNAMARKAÐUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.