Fréttablaðið - 22.08.2011, Side 12

Fréttablaðið - 22.08.2011, Side 12
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR12 Girðingarkostnaður yrði klárlega gífurlegur fyrir sauðfjárbændur. SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR UMHVERFISRÁÐHERRA Allar gerðir gólfþvottavéla skoðaðar og verðmetnar Verðmat fæst sem greiðsla upp í nýja vél A T A R N A Skiptu út gólfþvottavélinni fyrir gömlu nýja Sími 510 1200 / www.tandur.is • Úrval hágæða gólfþvottavéla • Öflug viðgerða- og varahlutaþjónusta Umhverfisráðherra reikn- ar með að nefndir á henn- ar vegum skili tillögum um að beit sauðfjár verði stýrt betur. Sú stefnumót- un stendur yfir. Hún talar um samningaviðræður við bændur en vill ekki segja að stefnt sé að því að halda öllum skepnum innan girð- ingar. Sauðfjárbændur efast um að það sé gerlegt. Svandís Svavarsdóttir umhverfis- ráðherra býst við því að út úr margvíslegu nefndarstarfi á vegum ráðuneytis síns komi fyrir áramót tillögur um „leiðir til að koma á beitarstýringu og væntan- lega einhverjar samninga viðræður við sauðfjárbændur“. Nefndir þessar vinna að endurskoðun laga um skógrækt og landgræðslu. Þá er unnið að áætlun um útbreiðslu birkiskóga. Ráðherrann segir sambúð skóg- ræktar á Íslandi og sauðfjárbænda flókið mál; lausagangan hafi haft veruleg áhrif á skógræktina. „Lausaganga búfjár á Íslandi felur í sér ýmiss konar álag, ekki bara fyrir skógræktarbændur heldur þurfa fleiri að huga að því að girða, svo sem Vegagerðin,“ segir Svandís. Hún vill leysa málið í sátt við bændur. Spurð hvort stefnan sé sú að halda öllu sauðfé innan girðing- ar svarar Svandís því fyrst til að hefð sé fyrir lausagöngu sauðfjár á Íslandi. „Stefnan er sú að það þarf að leysa þann núning sem hefur myndast milli skógræktar og saufjárræktar og ég heyri það almennt á bændum að þeir eru til í að ræða ýmsar hliðar á því. En það þarf að ræða þetta í tengslum við lagasetninguna og betri beitar- stýringu. Stefnumótunarvinnan stendur yfir,“ segir hún. Spurð enn um girðinguna segist ráðherra ekki vilja taka fram fyrir hendur nefndanna sem að störfum eru. „En það er alveg ljóst að þetta er eitt af því sem þarf að tala um.“ Um hvor t þetta þýði að r í k ið b org i bændum fyrir að setja upp girðingar segir Svandís að hún myndi ekki orða það þannig. „Hins vegar yrði girðingar- kostnaður klár- lega gífurlegur fyrir sauðfjár- bændur og þetta er spurning um vörsluskyldu búfjár, reglu- setningu sem er á valdi sveitar- félaganna. Mörg sveitarfélög hafa sett reglur um að stórgrip- ir þurfi að vera innan girðingar en ekki sauðfé. Sveitarfélögin gætu í sjálfu sér gert það en það yrði ekki einfalt mál. Það þyrfti að ná lendingu í þessu máli með samtali milli sauðfjárbænda, sveitarfélaga og þeirra sem eru að endurskoða meðal annars skógræktarlögin,“ segir hún. Deiluefni til áratuga Lausaganga sauðfjár er sígilt deiluefni á Íslandi. Sauðkindinni er kennt um að á Íslandi er lítill trjágróður en mikill uppblástur. Sauðfjárbændur hafa verið sak- aðir um rányrkju í það minnsta síðan 1923. Á þessum tíma hefur þó margur bóndinn girt sauðfé sitt af og sveitarfélög mörg bannað lausagöngu sauðfjár. Önnur ekki, með tilheyrandi raski á landi ann- arra og slysahættu á vegum úti. Margrét Guðmundsdóttir skógar bóndi skrifaði nýlega grein í Fréttablaðið sem hún kallaði „Þöggun í sauðfjárrækt“ og sagði löggjöf um sauðfjárrækt úrelta. „Eignarrétturinn er fótum troð- inn með lausagöngu búfjár,“ sagði Margrét þar og vísaði til þess sem kallað er rányrkja: „margir sauðfjárbændur nota jarðir [land- græðslu- og skógarbænda] undir eigin atvinnustarfsemi.“ Hún hnýtir því við að þessi kostnaður annarra sé aldrei tekinn inn í útreikning um framleiðslukostn- að lambakjöts. „Það er siðlaust og brot á jafn- ræðisreglu að ein atvinnustarf- semi geti með þessum hætti þving- að rekstrarkostnað sinn á aðrar atvinnugreinar,“ segir Margrét. Hún nefnir mikilvægi skóg- ræktar í baráttu gegn loftslags- breytingum og að þessir hlutir geti haft vægi í alþjóðlegum viðskiptum með losunarkvóta. Mál sé til komið að Íslendingar hætti að flytja út „yfir 100.000 tonn af gróðri, m.a. af gróðursnauðum heiðum, í formi lambakjöts“. Forsaga og dáðir Svandísar Þorvaldur Gylfason prófessor reifaði fyrir ári í Fréttablaðinu að umhverfisflokkurinn VG hefði stýrt bæði landbúnaðar- og umhverfisráðuneytum um nokkurt skeið, án þess að stugga við sauð- kindinni. Hreyfingin „lyftir ekki litlafingri gegn gróður eyðingunni“. Það hefði raunar enginn umhverfis- ráðherra Íslands gert. „Stjórnmálaflokkarnir fást ekki enn til að ráðast að rótum vand- ans með því að skylda bændur að lögum til að loka sauðfé og hross inni í beitarhólfum,“ sagði Þor- valdur. S v a n d í s S v a v a r s d ó t t i r umhverfis ráðherra sagði þá á þessum síðum að Þorvaldur væri að „egna sig til dáða“. Í maí á þessu ári skipaði umhverfisráðherra síðan nefnd til að endurskoða lög um skógrækt, með það í huga að „skýra betur ákvæði um verndun skóga, leið- ir til nýræktunar skóga og með- ferð og sjálfbæra nýtingu skógar- auðlinda landsins“. Nefndin á að skila niðurstöðum í desember og markmiðið er að efla og styrkja stöðu skógræktar í landinu. Í sama mánuði skipaði Svandís nefnd um endurskoðun laga um landgræðslu. Sú hefur það „meginmarkmið að byggja upp og endurheimta gróður- og jarðvegs- auðlindir landsins og stuðla að því að nýting þeirra verði sjálfbær“. Þá má þess geta að í yfirstand- andi verkefni ráðuneytisins um útbreiðslu birkiskóga „verður lögð áhersla á samstarf við land- eigendur um friðun lands frá beit í nágrenni birkiskóga/skógarleifa“. Öll ráð í höndum Vinstri grænna Nema stefnan sé sú að takmarka skógrækt og landgræðslu við afmörkuð vernduð svæði á Íslandi þarf að girða sauðfé inni. VG fer með þau ráðuneyti sem gætu komið að því. Svandís fer með umhverfismálin. Sauðfjárrækt á heima í landbúnaðarráðuneyti Jóns Bjarnasonar. Sveitarstjórnar- mál (og umferðaröryggismál reyndar líka) falla undir Ögmund Jónasson. Umhverfisflokkurinn VG hefur því öll ráð í hendi sér til að leysa þennan aldargamla vanda. Áhuginn er fyrir hendi, í það minnsta í umhverfisráðuneytinu. En VG er bændaflokkur líka og áhugi bænda á því að girða af landið sitt, umfram það sem þegar hefur verið gert, er öllu minni. Ráðherra vill stýringu í sátt við bændur SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR ÞORVALDUR GYLFASON SAUÐFÉ Á BEIT Lausaganga sauðfjár hefur verið deiluefni til áratuga á Íslandi. Flestir virðast sammála um að vel færi á því að skepnurnar væru innan girðinga eigenda sinna en sauðfjárbændur segja að það kunni að vera ógerlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR Til að bæta stöðu skógræktarinnar hefur ríkissjóður styrkt skógræktarbændur til að girða af hjá sér. For- maður sauðfjárbænda, Sindri Sigurgeirsson, segist hlynntur því að svo verði áfram. „Það er alveg klárt að það er mjög til hagsbóta fyrir umferðaröryggi að girða sauðfé af frá þjóðvegum. En varðandi afrétt og annað er það í sumum tilfellum nánast ógerlegt að girða vegna þess hve land getur verið erfitt yfirferðar. Miðað við hvað það kostar að girða verður skoða það mjög vel hvort það sé á bændur bætandi,“ segir hann. En getur Sindri haldið því fram að sauðfjárrækt sé sjálfbær ef hún fer ekki fram á landssvæði sauðfjárbóndans? „Víðast hvar er þetta í góðu lagi. Hefðbundna formið er að bændur eru með sitt fé innan girðingar þangað til þeir fara með það á afrétt, sem er í flestum tilfellum afgirt. Það eru einstaka dæmi um að fé fari á land annarra og það er spurning um girðingar milli einstakra jarða,“ segir Sindri. Hann telur ekki að neinn bóndi beiti fé sínu af ásetningi á land annarra. „Og Náttúrufræðistofnun tilkynnti síðasta vor að samkvæmt gervi- hnattamyndum væri gróður í framför. Við lítum svo á að á meðan svo sé, og meðan sýnt sé fram á að eftirlit sé með beit og öðru, sé þetta sjálfbært,“ segir Sindri. Gæti verið ógerlegt segir formaður SINDRI SIGURGEIRSSON Í stefnu VG, sem birt er á netinu, er minnst á skógrækt því þar segir að stefna hreyf- ingarinnar sé að „stuðla að aukinni þátttöku bænda í landgræðslu, skjólbeltarækt og skógrækt“. Þar segir og að náttúruauðlindir eigi að nýta „í þágu almannahagsmuna án þess að gengið sé á umhverfið“. Að lífríki landsins skuli vernda með löggjöf og skipulagi: „Móta þarf heildstæða stefnu um gróður- vernd, samþætta lagaákvæði um verndun jarðvegs og gróðurs og gera vistfræðileg og siðræn gildi að undirstöðu í verndun og nýtingu.“ Síðast en ekki síst talar VG um sjálfbærni og fjölbreytni í framleiðslu- háttum: „Brýnt er að Ísland og önnur ríki leitist við að innleiða hugmynda- fræði sjálfbærrar þróunar og tryggja þannig efnahagslega, félagslega og vistfræðilega velferð.“ Hver er samþykkt stefna VG? FRÉTTASKÝRING: Stefna umhverfisráðherra í skógræktarmálum og lausagöngu sauðfjár Klemens Ólafur Þrastarson klemens@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.