Fréttablaðið - 22.08.2011, Side 49
MÁNUDAGUR 22. ágúst 2011 29
Enska úrvalsdeildin
Sunderland - Newcastle 0-1
0-1 Ryan Taylor (62.)
Arsenal - Liverpool 0-2
0-1 Sjálfsmark (78.), 0-2 Luis Suárez (90.)
Aston Villa - Blackburn 3-1
1-0 Gabriel Agbonlahor (12.), 2-0 Emile Heskey
(25.), 2-1 Morten Gamst Pedersen (51.), 3-1
Darren Bent (67.).
Everton - Queens Park Rangers 0-1
0-1 Tommy Smith (31.)
Swansea - Wigan 0-0
Chelsea - West Bromwich 2-1
0-1 Shane Long (4.), 1-1 Nicolas Anelka (53.), 2-1
Florent Malouda (83.)
Norwich - Stoke 1-1
1-0 Ritchie De Laet (37.), 1-1 Kenwyne Jones
(90.+4)
Wolves - Fulham 2-0
1-0 Kevin Doyle (42.), 2-0 Matthew Jarvis (40.+1)
Bolton - Manchester City 2-3
0-1 David Silva (26.), 0-2 Gareth Barry (38.), 1-2
Ivan Klasnic (39.), 1-3 Edin Dzeko (47.), 2-3 Kevin
Davies (63.)
STAÐAN
Man. City 2 2 0 0 7-2 6
Wolves 2 2 0 0 4-1 6
Aston Villa 2 1 1 0 3-1 4
Liverpool 2 1 1 0 3-1 4
Chelsea 2 1 1 0 2-1 4
Newcastle 2 1 1 0 1-0 4
Bolton 2 1 0 1 6-3 3
Man. United 1 1 0 0 2-1 3
QPR 2 1 0 1 1-4 3
Norwich 2 0 2 0 2-2 2
Stoke 2 0 2 0 1-1 2
Wigan 2 0 2 0 1-1 2
Sunderland 2 0 1 1 1-2 1
Arsenal 2 0 1 1 0-2 1
Fulham 2 0 1 1 0-2 1
Swansea 2 0 1 1 0-4 1
Tottenham 0 0 0 0 0-0 0
Everton 1 0 0 1 0-1 0
West Brom 2 0 0 2 2-4 0
Blackburn 2 0 0 2 2-5 0
1. deild karla í fótbolta
HK - BÍ/Bolungarvík 3-0
1-0 Eyþór Helgi Birgisson, víti (41.), 2-0 Eyþór
(75.), 3-0 Stefán Jóhann Eggertsson (90.)
Grótta - Fjölnir 0-2
0-1 Aron Sigurðarson, 0-2 Illugi Þór Gunnarsson.
STAÐAN
ÍA 18 14 2 2 44-11 44
Selfoss 18 11 2 5 33-16 35
Haukar 18 8 5 5 23-17 29
Víkingur Ó. 18 8 4 6 28-20 28
BÍ/Bolungarvík 18 8 4 6 22-28 28
Fjölnir 17 7 6 4 26-25 27
Þróttur R. 18 8 2 8 22-35 26
KA 17 6 2 9 22-29 20
Grótta 18 4 7 7 14-22 19
ÍR 18 5 4 9 22-32 19
Leiknir R. 18 3 4 11 23-27 13
HK 18 1 6 11 17-34 9
ÚRSLITIN
FÓTBOLTI Manchester City og Wolves
eru með sex stig á toppi ensku úrvals-
deildarinnar eftir sigra í gær en
Manchester United getur bæst í hóp-
inn vinni liðið Tottenham í kvöld.
Manchester City vann 3-2 útisigur
á Bolton, en bæði liðin unnu 4-0 sigra
í fyrstu umferðinni. David Silva átti
frábæran leik og kom City í 1-0 á 26.
mínútu með skoti sem fór hreinlega
í gegnum Jussi Jääskelainen í marki
Bolton. Gareth Barry og Edin Dzeko
skoruðu hin mörkin en Ivan Klasnic og
Kevin Davies minnkuðu muninn fyrir
Bolton.
Roberto Mancini, stjóri Manchester
City, sagðist vera feginn að sleppa
heim með öll þrjú stigin. „Ég gat ekki
trúað því að við ynnum bara 3-2 því
við fengum svo mörg færi. Ef við
ætlum að eiga gott timabil þurfum við
að skora fimmtán mörkum meira en í
fyrra og fá líka á okkur færri mörk,“
sagði Mancini eftir leikinn.
Wolves hefur ekki byrjað betur
síðan 1979 eftir að liðið fylgdi á eftir
sigri á Blackburn um síðustu helgi
með því að vinna 2-0 sigur á Fulham
í gær. Kevin Doyle og Matt Jarvis
skoruðu mörkin á lokamínútum fyrri
hálfleiks. „Við græddum á því að þeir
spiluðu á fimmtudaginn og við hrein-
lega yfirspiluðum þá,“ sagði Mick
McCarthy, þjálfari Wolves.
Liverpool vann fyrsta sigur sinn
frá upphafi á Emirates-leikvanginum
þegar liðið vann 2-0 sigur á Arsenal
í stórleiknum á laugardaginn. Luis
Suarez kom inn á sem varamaður hjá
Liverpool eftir að Arsenal-maðurinn
Emmanuel Frimpong var rekinn út
af og átti Úrúgvæinn mikinn þátt í
báðum mörkum liðsins. „Við erum
sterkari en við vorum í fyrra,“ sagði
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool.
42 ár eru liðin síðan Arsenal var
síðast markalaust í fyrstu tveimur
leikjunum. - óój
Arsenal hefur enn ekki skorað í ensku úrvalsdeildinni eftir 0-2 tap fyrir Liverpool:
Man. City og Wolves bæði með fullt hús
EDIN DZEKO Hefur skorað í þremur fyrstu leikjum Manchester
City á þessu tímabili. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson
var maðurinn á bak við 2-0
útisigur Vålerenga á Sarpsborg
08 í norsku deildinni um helgina.
Veigar Páll skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Vålerenga á 57.mínútu
leiksins en hann hafði
áður lagt upp mark
fyrir André Muri.
Þetta var þriðji leikur
Veigars Páls fyrir
Vålerenga síðan
félagið keypti
hann frá Sta-
bæk en hann
var búinn að
skora níu mörk
fyrir Stabæk
og er því í hópi
markahæstu
manna. - óój
Veigar Páll Gunnarsson:
Fyrsta markið
fyrir Vålerenga