Fréttablaðið - 22.08.2011, Page 54
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR34
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Ég er ekki sú besta í að fylgjast
með sjónvarpsþáttum en þegar
ég gef mér tíma verða oftast
Gossip Girl eða Entourage fyrir
valinu.“
Andrea Röfn Jónasardóttir, fyrirsæta
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. Önn 2. Önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101
Erna, stílisti
Ég hef unnið við förðun á
Stöð 2 í 6 ár, þar á meðal
við förðun keppenda í Idol
og annarra sjónvarpsþátta
hjá 365. Einnig vinn ég við
auglýsingar, mynbönd og myndatökur. Það er
óhætt að segja að námið hefur hjálpað mér
mikið í starfi mínu í förðun og stíliseringu.
Skjöldur Mio,
tískuráðgjafi
Ég taldi mig vita flest
allt um tísku og útlit
áður en ég fór í skólann.
En annað kom á daginn.
Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu,
textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um
útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég
er að gera.
Ú T L I S T - O G F Ö R Ð U N A R S K Ó L I
w w w . u t l i t . i s
VILTU VERÐA STÍLISTI?
The Academy of Colour and Style er skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og
textill. Eftir nám fá nemendur diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og
atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu.
Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning
„Þetta var bara mjög gaman og
ekkert svo erfitt,“ segir hinn
sjö ára gamli Skagapiltur Helgi
Rúnar Bjarnason.
Helgi Rúnar þykir hafa stolið
senunni í Bon Iver-myndbandi
sem frumsýnt var á vefsíðu
National Geographic á fimmtu-
dag. Þar sést Helgi á röltinu um
helstu náttúruperlur Íslands
undir laginu Holocene sem
finna má á nýjustu plötu indí-
rokksveitarinnar. Myndband-
ið hefur vakið mikla athygli á
netinu og um það hefur verið
fjallað á helstu tónlistarsíðum
heims, meðal annars heimasíðu
Billboard-listans, Entertainment
Weekly og Spin Magazine. Í gær
höfðu 117 þúsund horft á mynd-
bandið, en því er leikstýrt af leik-
stjóranum Nabil sem hefur meðal
annars unnið með rappstjörnunni
Kanye West.
Helgi Rúnar leikur ekkert
síður stórt hlutverk en íslenskar
náttúru perlur á borð við Jökulsár-
lón, Svartafoss og Breiðamerkur-
sand í mynd bandinu. Og honum
finnst bara nokkuð skemmtilegt
hversu mikla athygli myndband-
ið hefur fengið. Hann hefur þegar
sýnt vinum sínum það og þeim
þótti töluvert til þess koma og
að hans sögn voru þeir bara sátt-
ir með frammistöðu hans fyrir
framan tökuvélarnar. Sjálfur seg-
ist Helgi alveg geta hugsað sér að
verða leikari en hann hafði ekki
mikinn tíma fyrir spjall, hann var
úti að leika sér.
Móðir Helga, Ingibjörg Krist-
ín Barðadóttir, segir tökurnar
hafa verið mikið ævintýri því
þau hafi verið stödd fyrir aust-
an þegar brúin yfir Múlakvísl
fór. Þau hafi því þurft að leggja á
sig sjö tíma ferðalag aftur heim
um Fjallabaksleið nyrðri. „Leik-
stjóranum fannst það hins vegar
skemmtilegast og mér sýnist
stærsti hlutinn af myndbandinu
hafa verið tekinn þar. Við vorum
allavega alltaf að stoppa og taka
HELGI RÚNAR BJARNASON: BARA ROSALEGA GAMAN
Skagastrákur stelur sen-
unni í Bon Iver-myndbandi
BRÆÐURNIR OG
LEIKSTJÓRINN
Helgi Rúnar ásamt bróð-
ur sínum, Birni Inga,
og leikstjóra mynd-
bandsins, Nabil.
Tökurnar voru
mikið ævintýri, en
brúin yfir Múlakvísl
fór þegar þær stóðu
yfir fyrir austan og
þurfti tökuliðið því
að leggja á sig sjö
tíma ferðalag um
Fjallabaksleið
nyrðri.
„Nei, ég átti nú ekki von á því að enda
sem vínframleiðandi,“ segir fyrrverandi
Kastljósstjarnan Elsa María Jakobs-
dóttir.
Hún og pabbi hennar, mjólkurfræð-
ingurinn Jakob Svanur Bjarnason, hafa
ásamt Ólafi Erni Ólafssyni og Gunnari
Karli Gíslasyni af veitingastaðnum Dill
þróað líkjör og snafs sem unnir eru upp
úr íslensku birki. Líkjörinn nefnist Björk
en snafsinn Birkir og verða drykkirnir
formlega kynntir til leiks á morgun.
Elsa segir þetta eiga sér sinn aðdrag-
anda. Pabbi hennar hafi verið að gera til-
raunir með birki og svo hafi hún heyrt af
því að Ólafur og Gunnar væru í svipuðum
pælingum í eldhúsinu hjá sér. „Það voru
einhvern veginn allir að hugsa það sama
og það var bara ákveðið að sameina þessi
verkefni undir einn hatt.“
Fjórmenningarnir leituðu til Catco vína
í Borgarnesi sem framleiðir meðal annars
Reyka vodka og segir Elsa að þar hafi þau
mætt miklum skilningi. „Við fengum að
gera alls konar tilraunir inni á gólfi hjá
þeim.“ Elsa segir norræna birkið vera ein-
stakt að því leyti að það sé sætt á bragðið.
Því hafi legið í augum uppi að nota birkið,
það sé enda líka frumbyggi Íslands. Þetta
verður eitt af síðustu verkefnum Elsu hér
á landi því hún heldur brátt utan til Kaup-
mannahafnar, þar sem hún hyggst setjast
á skólabekk en hún kláraði nýverið BA-
verkefni sitt í félagsfræði við Háskóla
Íslands. „En ég verð eitthvað með puttana
í þessu frá Danmörku.“ - fgg
Elsa María gerist vínframleiðandi
BIRKISNAFS OG LÍKJÖR Elsa María ásamt föður sínum, Jakobi,
og Ólafi Erni, veitingamanni af Dill, með líkjörinn Björk og snafs-
inn Birki. Drykkirnir verða formlega kynntir til leiks á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Fyrst var gert svolítið grín að
mér og sagt að ég væri alltaf á
þessu hjóli en nú eru allir hættir
því. Þegar maður er líka farinn að
gera flott myndskeið öðlast maður
smá virðingu,“ segir Magnús Þór-
lindsson, ungur BMX-hjólreiða-
maður á Selfossi. Hann hefur sýnt
áhugamálinu sínu mikla ástríðu
þrátt fyrir að vera nánast sá eini
í bæjarfélaginu sem hjólar á slíku
hjóli. Hann tekur til að mynda
strætó með hjólið sitt yfir Hellis-
heiðina allar helgar til að æfa sig
í Reykjavík því aðstaðan, að hans
sögn, er ekki upp á marga fiska í
heimabænum.
Magnús segist snemma hafa
fengið áhuga á hjólum, hann byrjaði
á fjallahjóli en færði sig síðan yfir í
BMX-flokkinn fyrir þremur árum.
„Þá voru nokkrir strákar hérna á
BMX en þeir eru eiginlega allir
hættir núna, ég er því eiginlega
eini BMX-strákurinn í bænum.“
Hjólreiðakappinn nýtti sumarið
vel því hann fór ásamt nokkrum
öðrum BMX-köppum hringinn í
kringum landið á BMX-hjólunum;
hjólin voru reyndar keyrð á milli í
sendiferðarbíl en þeir sjálfir voru
í Volkswagen. „Þetta var ótrúlega
skemmtilegt og við lentum aldrei
í neinum stælum. Við stukkum
meðal annars ofan af þaki á Húsa-
vík og fengum mat fyrir hjá fólk-
inu.“ Og Magnús gætir fyllsta
öryggis á hjólinu og er alltaf með
hjálm. „Ég hef skallað jörðina það
oft að ég nota alltaf hjálm.“ - fgg
Ungur hugsjónamaður á BMX-hjóli
FJÖR Á HJÓLINU Magnús Þórlindsson er
eini BMX-hjólreiðakappinn á Selfossi en
hann lætur það ekki stoppa sig heldur
fer með strætó yfir Hellisheiðina til að
geta æft sig í Reykjavík.
eitthvað upp.“ Ingibjörg bætir því
við að hún hafi ekki átt von á því
að myndbandið myndi hljóta jafn
mikla athygli og raun beri vitni.
„Við vissum í raun ekkert hver
þessi Bon Iver var og datt aldrei
í hug að þetta myndi vinda svona
upp á sig.“ freyrgigja@frettabladid.is
„Þetta var auðvitað alveg frábær
afmælisgjöf fyrir staðinn,“ segir
Sverrir Gunnarsson, starfsmaður
söluturnsins Drekans við Njálsgötu.
Danska stórstjarnan Viggo Morten-
sen leit þar við á Menningarnótt og
keypti sér einn Marlboro-sígarettu-
pakka.
Drekinn nýtti tækifærið á Menn-
ingarnótt og hélt upp á tuttugu ára
afmæli sitt. Blazroca lék fyrir gesti
og gangandi og boðið var upp á pyls-
ur. Rúsínan í pylsuendanum var þó
án nokkurs vafa heimsókn Viggos.
„Hann kom bara og spurði um sígar-
ettupakkann. Ég spurði hvort hann
væri Viggo Mortensen og hann
kinkaði kolli, vildi greinilega ekki
að fólk vissi af honum. Ég sagði við
hann að það væri ekki á hverjum
degi sem alvöru Hollywood-stjarna
kæmi hingað og hvort ég mætti ekki
láta mynda mig með honum. Og það
var ekkert mál. Hann var bara mjög
almennilegur,“ segir Sverrir.
Drekinn var ekki eini staðurinn
sem Viggo leit við á því hann heiðr-
aði frumsýningargesti Týndu kyn-
slóðarinnar með nærveru sinni.
Viggo staldraði stutt við, rak nefið
aðeins inn og lét sig síðan hverfa út
í nóttina. - fgg
Viggo í Drekanum
VIÐKUNNANLEGUR Sverrir Gunnarsson ásamt Hollywood-stjörnunni Viggo Morten-
sen sem keypti sér Marlboro-pakka í Drekanum með þúsund króna seðli.